fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir hans svar. Maður upplifir þetta svolítið þannig að eftir hrun er eins og það hafi verið tekinn tappi úr tómatsósuflösku sem maður náði ekki neinu út úr, svo bara allt í einu kom gusan. Það er einhvern veginn það sem við erum að upplifa núna, við erum að fá yfir okkur þessa gusu sem var ekki til staðar í samdrættinum í raun og veru sem átti sér stað á Covid-tíma. Viðskiptahalli getur í raun og veru verið sjálfbær ef við erum að nýta það sem við flytjum inn í arðbærar fjárfestingar til lengri framtíðar, fjárfestingar sem munu skila einhverjum arði. En ég er ekkert viss um að ég sé að sjá það gerast akkúrat núna, það er eins og það sé mest um að ræða einkaneyslu sem ég veit ekki hvort skili okkur miklu til framtíðar. Ég óttast að við séum að fara upp í þetta sama, eins og við þekkjum sem erum ekki alveg nýskriðin úr skóla, maður er búinn að upplifa marga svona hringi. Mér sýnist bara, ef við erum að safna upp í ósjálfbæran viðskiptahalla svo árum skiptir, að þá muni það bara þýða, eins og hv. þingmaður bendir á hér, annaðhvort auknar lántökur eða að krónan, sem á nú að vera forsenda fyrir öllu því sem við erum að gera, muni falla. Annars réttum við ekki af viðskiptahalla. Hann er náttúrlega bara skuld við útlönd og það liggur í augum uppi að við þurfum með einhverjum hætti að borga það og oft og tíðum höfum við gert það með því að fella gengi krónunnar. Þannig hefur það verið oft og einatt.