Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[17:16]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf):

Herra forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti okkar í Samfylkingu um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2024–2028. Í áætluninni eru hvorki boðaðar afgerandi aðgerðir til að ná niður verðbólgu og vaxtastigi né til að verja heimilin í landinu fyrir áhrifunum af hækkandi verðlagi og skörpum stýrivaxtahækkunum. Þá er enga skýra framtíðarsýn að finna í áætluninni þegar kemur að stóru áskorunum okkar daga, svo sem í heilbrigðismálum, menntamálum og velferðarmálum almennt, og vandséð að áætlunin standi undir þeim fyrirheitum sem núverandi stjórnarflokkar gáfu þjóðinni við endurnýjun stjórnarsamstarfsins síðla árs 2021.

Ráðherrar ríkisstjórnarinnar hafa boðað hinar og þessar aðgerðir sem ljóst er að rúmast ekki innan ramma þessarar fjármálaáætlunar og þetta dregur auðvitað úr trúverðugleika hennar. Ráðherrar hafa líka ítrekað talað á þá leið að útgjöld muni nú alveg örugglega þróast með einhverjum allt öðrum hætti en mælt er fyrir um í áætluninni. Þetta, eins og ég segi, grefur undan trúverðugleikanum og kannski bara vekur upp spurningar um tilgang þessarar áætlunar og áætlunargerðar yfir höfuð. En fjármálaáætlunin og sú stefna þegar kemur að tekjuöflun sem þar er boðuð staðfestir líka að það er ekki pólitískur vilji við ríkisstjórnarborðið til að beita skattkerfinu og beita tekjutilfærslukerfunum okkar með afgerandi hætti til að stuðla að auknum jöfnuði á Íslandi.

Frá því snemma árs 2022 hefur þingflokkur jafnaðarmanna kallað eftir auknu aðhaldi í ríkisfjármálum en líka eftir markvissum aðgerðum til að verja tekjulægstu hópa samfélagsins fyrir verðbólgu og vaxtahækkunum. Ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur hefur skellt skollaeyrum við og kynt undir verðbólgu með óábyrgri stefnu í ríkisfjármálum og hunsað ákallið um afgerandi stuðningsaðgerðir fyrir heimilin. Kaupmáttur ráðstöfunartekna dróst saman í fyrra. Hann jókst árið á undan en þá dreifðust auknar ráðstöfunartekjur með alveg ævintýralega ójöfnum hætti milli tekjuhópa og jukust þrisvar sinnum meira hjá tekjuhæstu 10% heldur en hjá hinum. Nú á þessu ári heldur kaupmáttarrýrnunin áfram. Verðbólga hefur aukist um helming á Íslandi síðustu sex mánuði meðan hún hefur dregist saman víðast hvar í Evrópu. Samkvæmt úttekt sem Varða, rannsóknastofnun vinnumarkaðarins, kynnti þann 3. maí sl. hefur hlutfall heimila sem eiga erfitt eða mjög erfitt með að ná endum saman nær tvöfaldast milli ára og byrði húsnæðiskostnaðar þyngst umtalsvert, bæði hjá leigjendum og hjá fólki með húsnæðislán.

Í álitsgerð fjármálaráðs, sem er óháður sérfræðingahópur um ríkisfjármál, er ríkisstjórnin gagnrýnd fyrir að sýna lausung í fjármálastjórn og gagnrýnd fyrir að reka ríkissjóð með ótæpilega miklum halla á þenslutímum. Fjármála- og efnahagsráðherra og auðvitað fleiri stjórnarliðar hafa hreykt sér af því að afkomubati ríkisins hafi reynst meiri en spáð var og frumjöfnuðurinn meiri. Í þessu samhengi vil ég benda á að í nýjasta Peningamálariti Seðlabanka Íslands er bent á að afkomubati ríkissjóðs frá því að kórónuveirufaraldurinn gekk yfir hefur verið minni heldur en hefði mátt ætla út frá sögulegu sambandi efnahagsumsvifa og afkomu ríkisins. Þetta er ekki til marks um að haldið hafi verið vel á stjórn efnahagsmála á Íslandi. Birtingarmyndir þessarar losaralegu fjármálastjórnar eru auðvitað ýmsar. Í nefndaráliti um tekjubandorm vegna fjárlagaársins 2022 benti ég á að svo virtist sem framleiðsluslakinn í hagkerfinu væri á útleið og það kynni að verða töluverð áskorun að halda aftur af verðbólgu á árinu 2022. Sú varð nú sannarlega raunin, eins og við þekkjum. Í þessu nefndaráliti sem ég er að vitna hér til kallaði ég eftir því að haldið yrði aftur af ómarkvissum og þensluhvetjandi útgjöldum og skattstyrkjum og að ráðist yrði strax, ekki einhvern tímann 2026 eða 2027 heldur strax, í aðhaldsaðgerðir á tekjuhlið ríkisfjármálanna með hærri sköttum á tekjuhæstu og eignamestu hópa landsins og fjársterkustu fyrirtækin og þar sem þenslan er mest. Þessi sjónarmið voru algerlega hunsuð við afgreiðslu fjárlaganna, og nú er ég enn þá að tala um fjárlagaárið 2022, en hið sama gerðist svo ári seinna í umfjöllun um fjárlagafrumvarp og tekjubandorm ársins 2023. Það frumvarp gerði í upphafi ráð fyrir 89 milljarða hallarekstri þrátt fyrir að þá væri staðan sú að það var mælast mjög mikill hagvöxtur og þensla, atvinnustigið í hæstu hæðum. Meðan þessi fjárlög voru til umfjöllunar á Alþingi voru að koma fram dekkri og dekkri verðbólguspár, stýrivextir voru hækkaðir og ákveðin hættumerki voru að koma fram um að verðbólga kynni að aukast. Stjórnarmeirihlutinn á Alþingi skeytti engu um þetta heldur ákvað þvert á móti að ýta enn þá fastar á bensíngjöfina og gera breytingar á frumvarpinu samkvæmt pöntun frá ríkisstjórninni sem fólu í sér útgjaldaaukningu upp á tugi milljarða króna til viðbótar án þess að aflað væri nýrra tekna til að vega á móti þensluáhrifunum af þessum auknu útgjöldum. Þetta mun mögulega hægja á því að við náum verðbólgunni niður, sagði seðlabankastjóri í viðtali þegar það var að koma í ljós að þetta væri það sem stjórnarmeirihlutinn hygðist fyrir. En það var engu skeytt um þessi hættumerki, fjárlagahallinn keyrður upp í 120 milljarða og allar tillögur okkar jafnaðarmanna, sem hefðu bætt afkomu ríkissjóðs, voru felldar. Ég sagði í þingræðu 8. desember 2022: „Það er eins og stjórnarmeirihlutinn sé að grátbiðja um að verðbólga verði meiri og vextir hærri.“ Þetta sagði ég 8. desember 2022 og eftirleikinn þekkjum við. Verðbólga jókst einmitt þeim mun meira og brugðist var við því með enn frekari stýrivaxtahækkunum, sem við reyndar sjáum ekki fyrir endann á.

Kjarapakkinn svokallaði sem við í Samfylkingu kynntum 6. desember 2022 gekk út á þetta hérna: Að verja tekjulægri hópa fyrir verðbólgunni með eflingu tekjutilfærslukerfa en að taka á þenslunni þar sem þenslan er í raun og veru eftir sprengingu í fjármagnstekjum, methagnað í fjármálageiranum og hjá stórútgerð. Ríkisstjórnin leit ekki við tekjuöflunartillögum og féllst aðeins á þær tillögur í kjarapakkanum okkar sem fela í sér aukin útgjöld. Þá vil ég nefna sérstaklega breytingartillögu Samfylkingarinnar um 50% hækkun á eignaskerðingarmörkum vaxtabóta sem var blessunarlega samþykkt hér í þingsal og hefur skipt máli á þessu ári fyrir tekjulág heimili með þunga greiðslubyrði. Ríkisstjórnin lét líka undan kröfunni um hækkun húsnæðisbóta sem verkalýðshreyfingin hafði kallað eftir en hún mátti ekki til þess hugsa að fara út í neins konar verðstýringu á leigumarkaði, t.d. að lögfesta leigubremsu eins og var lofað hér við gerð lífskjarasamninga 2019. Eins og ég segi leit stjórnarmeirihlutinn ekki við afkomubætandi tillögum og hvers kyns tekjuöflunartillögum sem hefðu einmitt verið til þess fallnar að sporna gegn þenslu. Umfang þeirra tillagna sem við lögðum til þá á tekjuhlið voru 17 milljarðar kr. eða sem nemur tæpri hálfri prósentu af vergri landsframleiðslu. Fjármála- og efnahagsráðherra gerði lítið úr þessum tillögum, var með skæting og sagði að með þessu værum við að ala á öfund. Þetta sagði hæstv. fjármálaráðherra og talsmaður þessarar ríkisstjórnar í ríkisfjármálum og skattamálum, að Samfylkingin væri með því að kalla eftir hóflegri hækkun á fjármagnstekjuskatti, að kalla eftir auknum álögum á stórútgerðina í landinu á tímum methagnaðar einhvern veginn að ala á öfund meðal þjóðarinnar í garð sterkra einstaklinga sem gengur vel. Þetta var einhvern veginn orðræðan hér í þingsal hjá hæstv. fjármálaráðherra. Sjálfur kaus hann, og ekki bara hann heldur stjórnarmeirihlutinn í heild, að ná fram aðhaldi á tekjuhlið ríkisins með ofsahækkun á krónutölugjöldum, flötum sköttum, sem leggjast þyngst á tekjulægstu heimilin, og síðan hafa auðvitað verið boðaðar sams konar gjaldahækkanir næstu ár. Það kom fram í viðtali við hæstv. fjármálaráðherra á Stöð 2, 26. maí sl. að það væru engar hugmyndir uppi um að hækka skatta á þá tekjuhærri, að slíkar hugmyndir væru ekki einu sinni til skoðunar.

Ríkisstjórnin hefur heykst á því að beita ríkisfjármálunum til að vinna gegn þenslu og slá á verðbólguvæntingar. Þetta þýðir auðvitað að ráðamenn eru fyrst og fremst að treysta á peningastefnunefnd Seðlabankans, sem býr þó yfir ósköp fáum öðrum úrræðum en bara þeim að hækka stýrivexti. Þetta er orsakasamband sem er mikilvægt að við höfum í huga í þessum sal og þetta orsakasamband og þessi fórnarskipti eru dregin mjög sterkt fram í nýjasta Peningamálariti Seðlabankans þar sem er beinlínis verið að slá mati á það hversu mikið ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn hér á Alþingi, við sem förum með fjárveitingavaldið, gætum létt í rauninni álagi af peningastefnunni með því að herða á aðhaldi. Það er verið að slá mati á það hver verðbólgan yrði, hvað þetta myndi þýða með tilliti til vaxtastigs næstu árin o.s.frv. Þetta er mjög mikilvæga umfjöllun sem kemur fram í þessu Peningamálariti sem sýnir svo vel þetta samspil. Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hvetur ríkisstjórnina til þess í úttekt sinni á íslensku atvinnulífi frá 9. maí sl. að herða á aðhaldsstigi hins opinbera á næstu árum en jafnframt að standa vörð um kjör viðkvæmra hópa og sjónarmið fjármálaráðs, sem ég minntist á áðan, eru eiginlega á sama veg, það er kallað eftir auknu aðhaldi. Svo er eiginlega sama hvar maður ber niður þegar maður skoðar umsagnir við frumvarpið, t.d. frá aðilum vinnumarkaðarins o.s.frv. Engu að síður, og það kom mér talsvert á óvart verð ég að segja, hefur meiri hlutinn í fjárlaganefnd, og það gerðist bara daginn eftir mikla flugeldasýningu frá ríkisstjórninni þar sem var látið eins og verið væri að boða stóraukið aðhald í ríkisfjármálum, er lagt til að þessi fjármálaáætlun verði samþykkt alveg óbreytt.

Vaxtahækkanirnar sem ég kom hér að koma auðvitað harkalega niður á mörgum heimilum, mismikið og koma mjög harkalega niður á t.d. þeim sem tóku óverðtryggð lán á breytilegum vöxtum þegar vextir voru hvað lægstir. Samkvæmt mánaðarskýrslu Húsnæðis- og mannvirkjastofnunar fyrir maímánuð nemur greiðslubyrði af 40 millj. kr. óverðtryggðu láni til 40 ára núna 326.000 kr. Fyrir ári var greiðslubyrðin af slíku láni 204.000 kr. og árið þar áður var greiðslubyrðin 155.000 kr. Þetta er náttúrlega alveg gríðarleg hækkun á mjög skömmum tíma. Það eru andlit á bak við þetta, það er fólk sem finnur fyrir þessu og það birtist mjög athyglisverð fréttaskýring í Heimildinni núna 26. maí þar sem er einmitt rætt við þetta fólk, rætt t.d. við par með fjögur börn sem býr í blokkaríbúð. Í byrjun síðasta árs greiddi fjölskyldan tæpar 200.000 kr. af óverðtryggðu íbúðaláni í hverjum mánuði. Núna er afborgunin kominn upp í 315.000 kr. Í sama blaði er rætt við par sem keypti fasteign í fyrra og var þá með 300.000 kr. í mánaðarlega greiðslubyrði og greiðir nú 388.000 kr. á mánuði og svo er rætt við einstakling með íbúðalán hvers greiðslubyrði hefur hækkað úr 140.000 kr. upp í 200.000 kr. Þessi einstaklingur hafði misst vinnuna á sama tímabili og ber að hafa það í huga að atvinnuleysisbætur hafa rýrnað verulega að raunvirði núna síðustu tvö árin. Svo birtist frétt á mbl.is fyrir nokkrum dögum þar sem er rætt við mann sem keypti blokkaríbúð í Breiðholti í september ásamt konunni sinni. Fyrst var afborgunin hjá honum 300.000 kr. á mánuði. Nú hefur hún stökkbreyst og er komin upp í 450.000 kr. Aðspurður hvernig honum leið þegar tilkynnt var um þessa nýjustu stýrivaxtahækkun segir hann: er nú komin í um 450 þús. kr. Aðspurður hvernig honum hafi liðið þegar tilkynnt var um síðustu vaxtahækkun segir hann: „Mig langaði bara að gráta. Það versta við þetta er að þú hefur ekkert val. […] Ég þarf að vinna eins mikið og ég get til að borga reikningana. Ég get ekki farið í frí með fjölskyldunni, ég get ekki keypt neitt og eins og þú sérð eru veggirnir auðir. Það er ekkert hér. Allir peningarnir fara í reikninga til að lifa af.“

Þegar peningastefnunefnd Seðlabankans lækkaði vexti í 13. skipti í röð núna 24. maí kom fram í yfirlýsingu nefndarinnar að horfur væru á því að vextir yrðu hækkaðir enn meira í framhaldinu. Sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins hefur hvatt peningastefnunefndina til að halda sínu striki og viðhalda þröngu taumhaldi peningastefnunnar. Sendinefndin segir í sinni úttekt: „Gætu meginvextir þurft að hækka enn frekar frá því sem nú er og raunvextir gætu þurft að vera yfir hlutlausu stigi eins lengi og nauðsynlegt er til að ná verðbólgu í verðbólgumarkmið, sér í lagi við skilyrði ofþenslu og þrálátari verðbólgu á breiðum grunni.“ Þannig kemst sendinefnd Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að orði.

Í þessu samhengi, því samhengi að það er hætt við að vextir haldist háir næstu mánuði, jafnvel langt fram á næsta ár, þá verður að hafa í huga að það eru hundruð milljarða króna skuldir á sögulega lágum vöxtum að koma til vaxtaendurskoðunar bæði á þessu ári og því næsta sem hefur í för með sér, eins og Seðlabankinn hefur orðað það, umtalsverða aukna greiðslubyrði hjá heimilunum. Það hefur verið haft eftir Ástu Sigrúnu Helgadóttur, umboðsmanni skuldara, í fjölmiðlum að embættið sé að búa sig undir skell fasteignaeigenda á næsta ári: „Við gerum ráð fyrir að eigendur fasteigna geti margir lent í greiðsluerfiðleikum á næstu misserum.“

Það er auðvitað við aðstæður eins og þessar, virðulegi forseti, sem þörf er á sterku vaxtabótakerfi eða öðru sambærilegu kerfi. Það eru tiltölulega sambærileg kerfi á hinum Norðurlöndunum, hvort sem þetta er skilgreint sem einhvers konar tilfærslukerfi eða sem einhvers konar skattaívilnanir, en niðurstaðan er alla jafna nokkurn veginn sama; kerfi sem hjálpar til við að dempa höggið. Við hérna á Íslandi, með vexti sem skoppa upp og niður í okkar litla hagkerfi með okkar sjálfstæða gjaldmiðil — ég held að hvergi sé meiri þörf á því að vera með einhvers konar svona stuðningskerfi fyrir heimili. Þetta er auðvitað og var lengi í raun bakbein einmitt séreignarstefnunnar í húsnæðismálum en það sem hefur gerst núna, sérstaklega á undanförnum tíu árum eða svo, er að þetta kerfi hefur grotnað niður því að eignaskerðingarmörkin í kerfinu hafa rýrnað að raunvirði, þ.e. ekki fylgt fasteignaverði. Þessi raunrýrnun vaxtabóta hefur einfaldlega étið upp talsvert af ávinningi fólksins í landinu af lækkandi vaxtastigi, t.d. á tímabilinu 2016–2021, þannig að með því að láta kerfið drabbast niður er verið að éta upp ávinning fólksins í landinu af lækkandi vöxtum. Nú þegar vextir hafa hins vegar hækkað gríðarlega hratt á mjög skömmum tíma þá skortir alveg tilfinnanlega öryggisnet fyrir þessi heimili, sérstaklega heimilin í lægri tekjuendanum sem eru með þunga greiðslubyrði.

Í þessu samhengi vil ég nefna að í umsögn fjármálaráðs um fjármálaáætlunina er einmitt kallað eftir, með leyfi forseta, „markvissum tilfærslum til þeirra sem bæði eru skuldsettir og tekjulágir og ráða þannig illa við núverandi aðstæður“. Þetta er ráðgjöf fjármálaráðs til okkar hér á Alþingi, að grípa til markvissra tilfærslna til þeirra sem bæði eru skuldsettir og tekjulágir og ráða þannig illa við núverandi aðstæður. Það er einmitt vegna þessara sjónarmiða, sem við í Samfylkingunni deilum með fjármálaráði, sem við lögðum fram breytingartillögu við afgreiðslu síðustu fjárlaga og tekjubandorms um 50% hækkun á eignarskerðingarmörkum vaxtabóta. Hún var samþykkt hér, með þessu hækkuðu greiðslurnar og þeim heimilum fjölgaði sem eiga rétt á vaxtabótum í stað þess að fjöldi fólks dytti út úr kerfinu. Þessari aðgerð þarf að fylgja eftir með enn frekari styrkingu á vaxtabótakerfinu, það er alveg á hreinu. Þá er t.d. hægt að líta til úrræða sem var gripið til 2011 og 2012 þegar vaxtastigið var ekkert ósvipað því sem það er núna, að fara í einhvers konar eingreiðslu sem er þá beint mjög markvisst að þessum hópi heimila sem eru bæði tekjulág og ekki með mjög sterka eiginfjárstöðu.

Virðulegi forseti. Neyðin er kannski einna mest hjá fólki á leigumarkaði og á Íslandi er réttarstaða leigjenda með þeim veikari í okkar heimshluta. Leiguverðshækkanir bitna harðast á þessum tekjulægri hópum sem eiga erfiðara og erfiðara með að ná endum saman. Samtök leigjenda hafa reiknað út á grundvelli upplýsinga af vefnum Global Property Guide að húsaleiga sem hlutfall af kaupverði fasteigna sé 60% hærri á Íslandi en að meðaltali í Evrópu og að húsaleiga hafi hækkað rúmlega tvöfalt meira en verðlag frá árinu 2011 og að raunhækkun húsaleigu hafi verið 36% umfram hækkun byggingarvísitölu. Þetta þykja mér sláandi tölur. Nú er staðan þannig að íbúum hefur fjölgað alveg gríðarlega á örskömmum tíma. Frá því í ársbyrjun 2022 hefur þeim fjölgað um 15.000 sem setur eðli máls samkvæmt mikinn þrýsting á leiguverð. Við lesum bara í blöðunum reglulegar fréttir af fyrirvaralitlum leiguverðshækkunum sem fólk ræður einfaldlega ekki við. Ég vil vitna hér í Má Wolfgang Mixa, dósent í viðskiptafræði, sem segist hafa áhyggjur af því að ástandið eigi eftir að versna á næstu mánuðum og eigi eftir að versna töluvert mikið: „Það er ákveðin snjóhengja núna á leigumarkaði hvað leiguverð varðar og ég held að hún sé jafnvel nú þegar komin af stað, miðað við síðustu fréttir.“

Það sem er auðvitað erfitt hér er að við búum ekki yfir nógu greinargóðum upplýsingum um það hvernig leiguverð er að þróast. Hæstv. innviðaráðherra lagði fram frumvarp, eins og verkalýðshreyfingunni hafði verið lofað fyrir margt löngu og hafði verið boðað fyrir margt löngu, um að koma upp skráningarskyldu og ákveðinni umgjörð um þetta. En nei, nei, þá ákváðu auðvitað stjórnarliðar að beygja sig undir vilja Sjálfstæðismanna sem litu á þetta sem einhverja ægilega aðför að, ég veit það ekki, persónuvernd eða hvað, að gera kröfu um skráningu á leigusamningum og einhvers konar lágmarksumgjörð um leigumarkaðinn á Íslandi. Þannig að frumvarpið varð eiginlega ekki að neinu við lokaafgreiðslu á Alþingi og að einhverju leyti erum við í móðu um það hvernig þróunin nákvæmlega er. En það eru þessar sterku vísbendingar og eðli máls samkvæmt þegar íbúum er að fjölga svona mikið á svona skömmum tíma þegar það er skortur á leiguhúsnæði þá eru blikur á lofti á leigumarkaði. Samfylkingin hefur talað fyrir því, og ég held það hafi ekki farið fram hjá neinum, að hér verði lögfest leigubremsa að danskri fyrirmynd sem taki þá bæði til langtímasamninga og til endurnýjunar á skammtímasamningum og þetta er eitthvað sem þarf að útfæra mjög vel. Við ætlum ekki að fara að leika okkur að því að leggja fram breytingartillögur um þetta eða elta breytingartillögur annarra um þetta sem eru kannski ekki hugsaðar alveg í gegn og geta jafnvel valdið skaða, jafnvel bakað ríkinu skaðabótaskyldu. Það er mjög viðkvæmt að útfæra svona lagað og það þarf að gera það mjög vandlega. Það hefur ákveðin vinna átt sér stað í starfshópum, sem hafa reyndar starfað lengi. En ég vil bara minna á í þessu samhengi að það er langt, langt langt síðan aðilum vinnumarkaðarins, verkalýðshreyfingunni sérstaklega, voru gefin fyrirheit um að það yrðu settar hömlur á hækkun leiguverðs. Það gerðist árið 2019 við gerð lífskjarasamninga. Það er ekki hægt að draga fólk endalaust á asnaeyrunum og það er ekki hægt að fela sig árum saman á bak við einhverja starfshópa. Við erum með tækin til að gera þetta, við erum með fyrirmyndirnar frá hinum Norðurlöndunum og ég verð að viðurkenna að það hryggir mig að Alþingi geti ekki sameinast hér um skynsamlega útfærða leigubremsu áður en við förum í sumarfrí þegar ástandið á leigumarkaði er jafn stjórnlaust og raun ber vitni.

Þetta eru svona til skamms tíma þær aðgerðir sem er brýnast að grípa til vegna ástandsins í efnahagsmálum; hærri vaxtabætur og leigubremsa. Það þarf að fjármagna þetta með skynsamlegum hætti og eins og ég hef sagt þá hefur ekki staðið á okkur að leggja fram tekjuöflunartillögur. Við höfum lagt fram tekjuöflunartillögur upp á 17 milljarða. Þetta þarf að gerast sem allra fyrst og mér finnst ansi dapurlegt að við förum í sumarfrí án þess að grípa til nokkurra einustu aðgerða fyrir þessa hópa sem ég hef hér verið að rekja hvernig hafa það. Veik viðbrögð ríkisstjórnarinnar eru ámælisverð og ég ætla að taka undir það sem fram kemur í ályktun miðstjórnar Alþýðusambands Íslands frá 9. febrúar sl.: „Aðgerðarleysi ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur gengur þvert á viðtekin viðbrögð í nágrannalöndum þar sem ráðamenn beita tækjum ríkisvaldsins til að lina áhrif afkomukreppunnar og vinna skipulega að því að hemja verðbólgu. Í þeirri staðreynd birtist forgangsröðun ríkisstjórnarinnar og sinnuleysi gagnvart afkomu fólksins í landinu.“ Það er sinnuleysi að fara bara inn í sumarið án þess að bregðast við. — Ég á kannski ekki mikinn tíma eftir. Nei, ég held að ég nýti seinni ræðu mína til að fara betur yfir ákveðin atriði.