fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir sína ræðu. Já, það er verðbólga og vextir hafa því miður verið að hækka. Mér heyrist flestir vera sammála því að þetta kemur sér hvað verst fyrir þá sem lægstu tekjurnar hafa. Það hefur mestu áhrifin þar þegar fjármagnskostnaður eykst og verðlag hækkar og annað slíkt. Hér höfum við heyrt mikil áform Samfylkingarinnar um tekjuöflun, seilast í vasana, auka tekjur og millifæra, þ.e. millifærsluaðferðir. Ég tek undir það að það getur vel verið ein lausn og það er náttúrlega það sem ríkisstjórnin hefur verið að taka þátt í, í samvinnu við hv. þingmann og hans flokk, að auka vaxtastuðninginn, þannig að í einhverjum tilvikum eru þarna lausnir. En ég spyr þá: Hvernig hjálpa þessar tillögur Samfylkingarinnar og þessi áform um endalausa tekjuaukningu og millifærslur til við það að draga almennt úr verðbólgunni og vaxtaþrýstingnum, þrýstingi til vaxtahækkana? Ég sé engar aðrar aðgerðir sem Samfylkingin leggur til til þess að ná þeim árangri. Jú, við verðum að bregðast við til skamms tíma en stóra verkefnið er að draga úr verðbólguþrýstingi og vaxtahækkanaþrýstingi, að lækka frekar. Hvað er það sem Samfylkingin leggur til til þess að ná þeim árangri?