fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegur forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir góða og málefnalega spurningu í andsvari. Samfylkingin hefur auðvitað lagt áherslu á að farið verði í aukna tekjuöflun til þess að herða einmitt á aðhaldsstigi ríkissjóðs, aukna tekjuöflun til þess að geta bæði staðið undir útgjöldum sem ellegar væru þensluhvetjandi en líka kallað eftir því að tekjuöflunin verði meiri en nemur þessum auknu útgjöldum til þess að herða á aðhaldsstiginu. Auk þess höfum við verið að tala fyrir t.d. leigubremsu. Það er aðgerð sem hefur bein áhrif á verðlag. Það er aðgerð sem skilar sér beint inn í vísitölu neysluverðs, hægir á hækkun verðlagsvísitölunnar. Þetta höfum við séð í öðrum Evrópuríkjum sem hafa gripið til aðgerða eins og þessara. Loks vil ég nefna það að styrking á millifærslukerfunum, tekjutilfærslukerfunum, styrking á hinu félagslega og þessu sem við eigum saman, er eðli máls samkvæmt eitthvað sem getur gagnast við að draga úr þrýstingi á vinnumarkaði. Þannig hefur margoft verið farið að í ríkjum sem við berum okkur saman við. Samtök launafólks eru til í að gefa aðeins eftir í sínum kröfum, vitandi það að tilfærslukerfin verða styrkt, að byggt verði upp meira af húsnæði o.s.frv. Að því leytinu til held ég að útgjaldahugmyndir sem eru vel fjármagnaðar geti spornað gegn verðþrýstingi og þeim verðþrýstingi sem stafar af vinnumarkaði. Ég get farið betur yfir þetta í síðara svari.