Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[17:50]
Horfa

Frsm. 3. minni hluta fjárln. (Jóhann Páll Jóhannsson) (Sf) (andsvar):

Virðulegur forseti. Fyrst vil ég segja það að við í Samfylkingunni viljum að stöðugt sé leitað leiða til að hagræða í ríkisrekstri. Það er bara eitthvað sem stjórnvöld skulda skattgreiðendum þessa lands, að það sé farið vel með fjármuni. Hv. þingmaður talar hér um leigubremsu og áhrif á framboðshlið húsnæðismarkaðarins. Ef við værum hér að tala fyrir mjög stífu leiguþaki þá held ég að áhyggjur hv. þingmanns ættu rétt á sér en það er nú bara þannig að flest löndin í kringum okkur hafa verið með einhvers konar lágmarksverðstýringu á leigumarkaði án þess að nokkuð bendi til þess að það beinlínis sé að skapa einhverja skortstöðu á húsnæðismarkaði. Í þessu samhengi er mikilvægt að halda áfram að beita þeim tækjum sem við höfum til að skapa hvata til uppbyggingar á leiguhúsnæði og einkum á hagkvæmu húsnæði á viðráðanlegu verði. Í því samhengi minni ég á breytingartillögu sem við munum flytja hér á morgun, og vonumst eftir breiðum stuðningi við, um að nýbygging íbúða í almenna íbúðakerfinu verði undanþegin þeirri lækkun á endurgreiðsluhlutfalli virðisaukaskatts sem verður lögfest hér á morgun að óbreyttu. Hvað var aftur þriðja? (Gripið fram í.) Já, Reykjavíkurborg. Ég get náttúrlega glatt hv. þingmann með því að Reykjavíkurborg er það sveitarfélag sem hefur einmitt dregið vagninn þegar kemur að uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði á viðráðanlegu verði. Fjórar af hverjum fimm íbúðum í almenna íbúðakerfinu hafa risið þar. Nú er Reykjavíkurborg enn sem komið er eina sveitarfélagið sem hefur skrifað undir samning við innviðaráðuneytið á grundvelli rammasamnings um húsnæðismál, um að liðka einmitt fyrir framboði lóða til uppbyggingar á almennum íbúðum.