fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir ræðuna. Leigubremsan, þið tókust hér á, hv. þingmenn, um hana. Ég held að það sé ljóst að það vinnur ekki með því að auka framboð á leigumarkaði að setja leigubremsu. Eins og hefur komið fram í dag er gríðarleg mannfjölgun í landinu, 39% frá aldamótum, 2% í Evrópu til samanburðar, og á sama tíma förum við í gegnum lóðaskort, t.d. á höfuðborgarsvæðinu, og lítið framboð á lóðum vítt og breitt og þá sérstaklega hér í Reykjavík í gegnum þéttingarstefnu sem var sett í aðalskipulag 2010. Á sama tíma er þetta þróunin, það fjölgar gríðarlega í landinu og hvað þá núna síðasta árið, yfir 3% fjölgun, sú mesta frá 1735. Það er gríðarlega erfitt að eiga við þetta, mikill túrismi í gangi og allt að gerast.
Fjármálastöðugleikanefnd Seðlabanka Íslands fundaði í gær og sendi frá sér yfirlýsingu og gögn. Þar kemur einmitt fram annað en kannski mætti halda miðað við umræðu hjá minni hlutanum hér á þingi og stéttarfélögunum vítt og breitt um að það sé mikill kúfur sem er að lenda í erfiðleikum núna varðandi vextina og vaxtakostnað: Þetta eru um 6% næstu 12 mánuðina. Þetta er fróðleg mynd inn í samhengi hlutanna, til að skilja betur þetta samhengi. Eftir 12 mánuði kemur miklu meiri kúfur. En það er margt sem fólk, almenningur, getur gert til að takast á við þetta. Það eru úrræði hjá bönkunum og almennt í kerfinu. Á sama tíma er rétt að benda á eiginfjármyndun í kerfinu hjá þeim sem eru að missa þessa bindingu t.d. í vöxtunum, sem voru með bindingu upp á þrjú, fjögur, fimm ár, að það hefur orðið gríðarleg eiginfjármyndun á undanförnum árum hjá þessum sömu einstaklingum (Forseti hringir.) og neikvæð raunávöxtun síðustu misseri, (Forseti hringir.) til að koma þessu hér að.