Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[17:57]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S) (andsvar):

Virðulegi forseti. Ég held að ég hafi mismælt mig áðan og talað um neikvæða raunávöxtun hjá húsnæðiseigendum, ég átti náttúrlega við neikvæða raunvexti, svo því sé haldið til haga. Það sem ég var að benda á hér í pontu Alþingis er að þeir sem hafa einmitt verið að binda sín vaxtakjör síðustu ár í óverðtryggðum vöxtum hafa náð gríðarlegri raunávöxtun eða eignamyndun, þ.e. eignamyndun þeirra hefur verið mikil og eiginfjárhlutfall í eignum þeirra, þar hefur náðst mikill árangur. Það eru ýmis úrræði til þess að takast á við þetta. Auðvitað munu einhverjir lenda illa í því og maður finnur til með þeim og það gerist alltaf á eðlilegum húsnæðismarkaði. En þetta hlutfall, þessi 6% sem er verið að benda á hjá Seðlabankanum að muni vera að fást við þetta næstu 12 mánuði, það eru ýmis úrræði sem er verið að boða bæði af bönkum og öðrum til þess að fjölskyldur í slíku húsnæði geti komið sér fram veginn. Það er hægt með ýmsum úrræðum.

Mér hefur fundist umræðan hér í þingsal og víða í samfélaginu vera á mjög slæmum stað þegar verið er að tala niður svo margt miðað við þá góðu stöðu sem við erum almennt í í þessu landi. Eiginfjármyndun heimilanna, eignarhlutföll eru með því besta sem við höfum nokkurn tíma þekkt. Við, þessi þjóð, erum á besta stað sem við höfum verið á efnahagslega síðustu áratugina og sú umræða sem við erum að verða vitni að hér almennt á þingi og víða í þessu samfélagi er ekki í samræmi við það. Þetta vil ég benda á.

Síðan vil ég rétt í lokin spyrja. Fyrir þremur dögum kom Samfylkingin með fréttatilkynningu á blaðamannafundi, eða hvað það var, og ætlaði að boða einhverjar aðgerðir í þessari umræðu. Nú hef ég ekkert séð af þeim tillögum. Hefur hv. þingmaður eitthvað að segja, sem hefur þá ekki verið komið inn í tillögu, varðandi útgjaldalækkun (Forseti hringir.) eða hvernig eigi að styrkja ríkissjóð í þessum hremmingum sem eru fyrst og fremst vegna mannfjölgunar og mikils hagvaxtar og annars, (Forseti hringir.) að reyna að stilla af (Forseti hringir.) hagkerfið miðað við peningaprentun og aðra þætti sem hafa verið í gangi á síðustu misserum?