fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Mér finnst hv. þingmaður kannski gera fullmikið úr því að hér sé bara einhver besta staða sem hefur verið uppi um áratugaskeið, ég man ekki alveg hvernig hann orðaði það en það var eitthvað á þá leið. Við erum að glíma við 10% verðbólgu og vextir á húsnæðislánum eru komnir yfir 10%. Þetta eru ákveðnir erfiðleikar sem við erum að glíma við núna og sem heimilin í landinu eru mörg hver eru glíma við og það sem ég er að kalla eftir er að við beitum tilfærslukerfunum okkar til þess að verja þessa hópa sem eru að verða fyrir hvað mestu höggi.
Hv. þingmaður er hér að spyrja um breytingartillögur og það er gott að hann tók eftir því sem við í Samfylkingunni kynntum í fyrradag. En það eru ekki breytingartillögur sem varða fjármálaáætlun. Þar erum við að tala fyrir aðgerðum sem við viljum að komi strax til framkvæmda á þessu ári og við munum flytja breytingartillögur um það á morgun, m.a. í umræðum um frumvarp um lækkun á endurgreiðsluhlutfalli virðisaukaskatts.
Varðandi breytingartillögur við þessa tilteknu fjármálaáætlun þá sé ég enga ástæðu til að leggja fram neinar breytingartillögur við hana. Þessi fjármálaáætlun er í grundvallaratriðum að boða allt aðra forgangsröðun en við tölum fyrir. Við höfum lagt fram breytingartillögur við fjárlög, afmarkaðar breytingartillögur. Sumar hafa verið samþykktar. Allar tillögur sem við höfum mælt fyrir um aukið aðhaldsstig, bætta afkomu, um aukna tekjuöflun hafa verið felldar af hálfu stjórnarmeirihlutans. Þannig að ef hann var að reyna að kalla eftir breytingartillögum við þessa fjármálaáætlun þá er svarið bara: Nei, við ætlum ekki að leggja fram neinar breytingartillögur við hana. Ríkisstjórnin og stjórnarmeirihlutinn verða að eiga þessa blessuðu fjármálaáætlun. Við hefðum stjórnað með allt öðrum hætti.