fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegur forseti. Við ræðum hér í dag fjármálaáætlun fyrir árin 2024–2028 sem er stefnumarkandi plagg í fjármálum ríkisins á umræddu tímabili. Tillagan sjálf tekur til lykiltalna um afkomu og efnahag, rekstraryfirlits opinberra aðila í heild, skipt í A1-hluta ríkissjóðs og A-hluta sveitarfélaga, heildarútgjalda málefnasviða ríkissjóðs og rammasettra útgjalda og sjóðstreymis ríkissjóðs. Áætlunin hefur verið uppfærð miðað við nýjustu spá Hagstofu Íslands og fjallar í meginatriðum um hagstjórnarlegt hlutverk hins opinbera og efnahagsframvindu.
Hv. formaður fjárlaganefndar hefur í sinni ræðu farið vel yfir nefndarálitið og langar mig því í þessari ræðu minni að horfa frekar á ákveðna afmarkaða hluta fjármálaáætlunar ásamt því að fara í grófum dráttum yfir efnahagshorfur tímabils áætlunarinnar og þær afkomubætandi aðgerðir sem birtast í áætlun þessari og er ætlað að koma til móts við ákall Seðlabanka Íslands og fjármálaráðs um aðhald í fjármálum hins opinbera í því stóra og krefjandi verkefni okkar að ná verðbólgu og vaxtastigi niður hér á landi. Sú aðgerð er mest aðkallandi í dag og gangi það eftir, mun það hafa veruleg afkomubætandi áhrif á heimili og fyrirtæki hér í landinu.
Verðbólga hefur verið þrálátari en væntingar stóðu til. Innlend verðbólga hefur verið mikil en á móti hefur verðbólga á heimsvísu lækkað og gengi krónunnar styrkst sökum mikils gangs í ferðaþjónustunni. Væntingar markaðsaðila um verðbólguhorfur eru enn of háar og Seðlabankinn spáir því að verðbólga verði 8% út árið. Samkvæmt könnun Seðlabanka Íslands frá því í maí búast markaðsaðilar við að stýrivextir verði 8,5% út þennan ársfjórðung og þeir verði svo komnir niður í 6% eftir tvö ár. Þetta er of há verðbólga og því hafa stjórnvöld brugðist við með afgerandi hætti til að stemma stigu við verðbólguhorfum. Má þar nefna að lögum verður breytt þannig að laun þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna ríkisins hækka um 2,5% í stað 6% hinn 1. júlí nk. og þannig tryggt að laun æðstu embættismanna skapi ekki aukinn verðbólguþrýsting. Hækkunin tekur mið af verðbólgumarkmiðum Seðlabanka Íslands, sem eru 2,5%. Þetta eru skýr skilaboð um að ríkisstjórnin er á skýrri vegferð um að verðbólgumarkmiðin náist. Ríkisstjórnin hefur komið fram með aðgerðir sem miða að því að ná verðbólgunni niður sem eru í samræmi við peningamálastefnu Seðlabanka Íslands, en mikilvægt er að fjármálastefna hins opinbera og peningastefnan séu í takt. Eins koma aðgerðir heim og saman við ábendingar fjármálaráðs sem hefur m.a. bent á mikilvægi þess að færa fjármálareglur hins opinbera framar þannig að þær taki gildi árið 2025 í stað 2026. Sú ákvörðun er að mínu mati skynsamleg og sendir skýr skilaboð um boðað aðhald í fjármálum hins opinbera á næstu árum. Fjármálareglurnar eru þrjár, þ.e. afkomuregla, skuldaregla og skuldalækkunarregla, svo því sé til haga haldið. Lögum verður breytt þannig, eins og áður sagði, að laun þjóðkjörinna fulltrúa og æðstu embættismanna hækka ekki um 6% heldur 2,5% og stofnframlög til uppbyggingar leiguíbúða innan almenna íbúðakerfisins verða tvöfölduð og framlög til hlutdeildarlána aukin enn frekar þannig að í stað þess að 500 íbúðir verði byggðar árlega á árunum 2024 og 2025 með stuðningi ríkisins verði þær 1.000. Auk þess verður 250 nýjum íbúðum bætt við fyrri áætlanir þessa árs og verða því samtals tæplega 800. Þetta styður við aukið framboð á húsnæðismarkaði.
Frumvarp um stofnun þjóðarsjóðs verður lagt fram að nýju til að styrkja enn frekar áfallaþol ríkisins til framtíðar og lagt verður mat á árangur af núverandi fjármálareglum og tækifæri til úrbóta. Afkoma ríkissjóðs verður bætt um 36,2 milljarða á næsta ári með sparnaði í rekstri ríkisins, þar með er talinn niðurskurður í ferðakostnaði, frestun framkvæmda, nýjum teknum og með því að draga úr þensluhvetjandi skattaívilnunum, eins og fram kemur í fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar sem hér er til umræðu. Þar af verður framkvæmdum fyrir a.m.k. 3,5 milljarða frestað tímabundið til að draga úr þenslu. Meðal verkefna er nýbygging Stjórnarráðsins og samhæfingarmiðstöð viðbragðsaðila. Til þess að verja kaupmátt örorku- og ellilífeyrisþega verða almannatryggingar hækkaðar um 2,5% frá miðju ári til viðbótar við 7,4% hækkun í upphafi árs. Frítekjumark húsnæðisbóta leigjenda verður hækkað um 2,5% fyrir yfirstandandi ár, afturvirkt frá 1. janúar, til viðbótar við hækkun þess í upphafi sem var sömuleiðis 7,4%. Þá er unnið að lagabreytingum sem munu bæta réttarstöðu leigjenda á húsnæðismarkaði og mun starfshópur skila tillögum sínum þar að lútandi fyrir 1. júlí nk.
Það er hins vegar ljóst að þessar aðgerðir og þær aðgerðir sem ríkið mun mögulega koma til með að beita í framhaldi duga ekki einar og sér til þess að verðbólga eða vextir fari niður á þeim tíma sem æskilegur þykir og því ljóst að aðkomu fleiri hagaðila þarf til þess að þetta markmið náist. Taka þarf höndum saman með verkalýðshreyfingunni, atvinnurekendum og atvinnulífinu, svo sem fjármálastofnunum og lífeyrissjóðum, og ekki síst almenningi í landinu svo vel takist til. Þar þarf samvinnuhugsjón og skýr sýn á stóru heildarmynd hlutanna að vera í forgrunni allrar ákvörðunartöku. Það er stærsta einstaka hagsmunamál almennings í landinu að við náum tökum á verðbólgunni og vextir lækki. Um það eru allir sammála í þessum sal.
Mikill þróttur hefur verið í íslenska hagkerfinu en vöxtur þess á síðasta ári mældist 6,4% og hefur ekki verið meiri síðan 2007. Hagvöxturinn heldur áfram að vera knúinn áfram af miklum vexti innlendrar eftirspurnar og hefur hún vaxið um 8,6%. Líklegt er þó að hægist á vexti einkaneyslunnar vegna þess að aðgengi heimila og fyrirtækja að lánsfé er að minnka og fjármálaleg skilyrði þrengjast vegna ítrekaðra stýrivaxtahækkana Seðlabanka Íslands. Við erum þegar farin að sjá teikn þess þar sem einkaneysla jókst á fyrsta ársfjórðungi um 2,5%. Að sama skapi hefur atvinnufjárfesting dregist saman um 14% á þessum ársfjórðungi. Að lokum má nefna að kortavelta hefur dregist saman að raunvirði og er það í fyrsta sinn í langan tíma. Að auki er jákvætt að sjá að viðskiptakjör vöru og þjónustu hafa batnað á milli ára um 3% sem hefur jákvæð áhrif á gengi krónunnar og ætti að hafa jákvæð áhrif á verðbólguþróun, enda hefur gengið verið að styrkjast.
Frá 2017 til loka áætlunarinnar árið 2028 hækka rammasett útgjöld í heildina um 381 milljarð, sem er 45% hækkun. Hækkunin endurspeglar áherslur ríkisstjórnarinnar allt frá árinu 2017 þar sem kerfisbundið hafa verið aukin framlög til heilbrigðisþjónustu, almannatrygginga og nýsköpunarmála, auk þess sem stór fjárfestingarverkefni hafa verið fjármögnuð. Ef fjárfestingar eru undanskildar hækka framlög í heild um 298 milljarða, eða um 38%. Mesta hækkunin er til sjúkrahúsþjónustu, um 66 milljarðar, því næst til örorkulífeyrisþega, um 43 milljarðar, og 36 milljarðar eru til komnir vegna málefna aldraðra.
Meiri vöxtur í landsframleiðslunni í ár leiðir til þess að nafnvirði landsframleiðslunnar er hærra út tímabil áætlunarinnar. Leiðir það til lægra skuldahlutfalls og enn betri afkomu í ár en spáð var fyrir og gróflega er metin á um 20 milljarða. Miðað við fjárlög ársins er þá samtals verið að spá bættri afkomu sem nemur um 90 milljörðum. Að þessu sögðu er útlit fyrir að tekjur ársins dugi fyrir útgjöldum að frátöldum vaxtagjöldum, þ.e. að frumjöfnuður verði jákvæður. Frumjöfnuður hins opinbera versnaði um ríflega 200 milljarða á milli áranna 2019 og 2020 vegna Covid-19, eða sem svarar um 7% af vergri landsframleiðslu. Á móti hefur batinn í frumjöfnuðinum frá 2020–2023 verið um 220 milljarðar, sem nemur ríflega 7% af vergri landsframleiðslu, og hlutfallslega er viðsnúningur í rekstri hins opinbera einn sá mesti meðal þróaðra ríkja á þessu tímabili.
Í áætluninni er gert ráð fyrir auknu umfangi afkomubætandi ráðstafana á tímabilinu. Í raun hefur umfang þessara ráðstafana fram til þess mælt hversu mikið mun þurfa að bæta afkomu hins opinbera á næstu árum til þess að ná settum markmiðum um afkomu og skuldaþróun sem fram koma í fjármálaáætlun hverju sinni. Umfang þessara ráðstafana er óbreytt að nafnvirði frá gildandi áætlun eða sem nemur um 9 milljörðum árin 2024–2027 eða 36 milljarðar uppsafnað árið 2027. Í áætluninni eru taldar upp afkomubætandi aðgerðir á tekjuhlið og má þar nefna að endurgreiðsluhlutfall vasks af vinnu við íbúðarhúsnæði lækki úr 60% í 35% og tekjuskattur lögaðila verði tímabundið lækkaður til eins árs vegna rekstrarhagnaðar ársins 2024, úr 20% í 21%. Unnið er að þróun í aukningu á gjaldtöku í ferðaþjónustu, hækkun fiskeldisgjalds og tekjum af ökutækjum og eldsneyti og endurskoðun á lögum um veiðigjald, svo eitthvað sé nefnt. Áætluð tekjuáhrif þeirra skattbreytinga sem hér hafa verið nefndar eru samanlagt 18 milljarðar til hækkunar árið 2024, eða sem nemur um 0,4% af vergri landsframleiðslu. Þegar allir áfangar hafa komið að fullu til framkvæmda árið 2027 er áætlað að áhrif þeirra á tekjur ríkissjóðs verði samanlögð um 42 milljarðar til hækkunar, eða sem nemur 8% af vergri landsframleiðslu. Ef talin er með aukning tekna vegna aukinnar gjaldtöku í fiskeldi frá og með árinu 2024 og vegna hækkunar veiðigjalds frá og með árinu 2025 hækka tekjur ríkissjóðs um 18–53 milljarða árlega fyrir áætlunartímabilið.
Áfram verður stutt við kjör tekjulágra og afkoma fólks varin. Ráðist hefur verið í fjölmargar aðgerðir í því skyni síðustu misserin en þar má nefna mikla tekjuskattslækkun, hækkanir bóta almannatrygginga, hækkun húsnæðis- og vaxtabóta, auk hærri skerðingarmarka, tæplega tvöföldun frítekjumarks öryrkja og sérstakan barnabótaauka, auk vinnu við einföldun og eflingu barnabótakerfisins.
Ég hef farið hér yfir þær aðgerðir ríkisstjórnarinnar að stofnframlög til uppbyggingar leiguíbúða innan almenna íbúðakerfisins verði tvöfölduð og framlög til hlutdeildarlána verði aukin enn frekar þannig að í stað þess að 500 íbúðir verði byggðar á árunum 2024 og 2025 verði þær 1.000 hvort ár. Auk þess verður 200 nýjum íbúðum bætt við þessar áætlanir fyrir núverandi ár og eru þetta þá um 800 íbúðir, eins og ég kom inn á áður.
Virðulegur forseti. Að mínu mati eru þær aðgerðir sem nú er gripið til í húsnæðismálum mikilvægt skref í þá átt að fjölga íbúðarhúsnæði og slá þannig á þá uppsöfnuðu þörf fyrir íbúðarhúsnæði sem við höfum horft upp á síðustu ár. Það er engu að síður mikilvægt að halda áfram á þeirri vegferð sem mörkuð hefur verið hér en til langs tíma er unnið að margvíslegum aðgerðum sem miða að því að auka framboð húsnæðis til að auka húsnæðisöryggi, bæta aðgengi að húsnæði og koma í veg fyrir þær miklu sveiflur sem hafa einkennt það síðustu ár. Er það í samræmi við sáttmála ríkisstjórnarinnar. Í því sambandi er mikilvægt að ríkið stigi inn af festu til að bæta húsnæðisöryggi fyrir fólk sem er undir tilgreindum tekju- og eignamörkum þannig að húsnæðiskostnaður þess sé í samræmi við greiðslugetu. Til skemmri tíma er vandinn tímabundinn, að ekki hefur tekist að stuðla að auknu framboði til þess að mæta líffræðilegri þróun og aukinni fólksfjölgun. Frá 2020 hafa yfir 19.000 manns flust til landsins umfram brottflutta, þar af 2.700 á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Alls fjölgaði íbúum á Íslandi um 11.510 á milli 1. janúar 2021 og 1. janúar 2023, eða um 3,1%, sem er mesta fjölgun sem sögur fara af á einu ári. Að óbreyttu mun frekari vöxtur ferðaþjónustunnar ýta enn meira undir spennu á húsnæðismarkaði.
Virðulegur forseti. Ég hef stiklað á stóru varðandi fjármálaáætlun fyrir árin 2024–2028. Að mínu mati er hér um áætlun að ræða sem sýnir aðhald og inniheldur afkomubætandi aðgerðir fyrir ríkisstjórn á tímabili áætlunarinnar. Á sama tíma eru grunnkerfi okkar varin; heilbrigðiskerfi, tilfærslukerfi, löggæslan og menntakerfið, sem ég tel afar skynsamlegt að gera og í raun nauðsynlegt. Það er mikilvægt að á sama tíma og við sýnum aðhald og ráðdeild í ríkisfjármálum og aukum tekjur ríkissjóðs með það að markmiði að styrkja stoðir efnahagslegs öryggis landsins stöndum við vörð um velferðina. Stóra áskorun okkar allra er verðbólgan og hátt vaxtastig og er það mín trú að áætlun sú sem hér liggur fyrir sé eitt af þeim verkfærum sem við getum notað í þeirri baráttu sem fram undan er.