fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegur forseti. Á undanförnum árum höfum við upplifað einstaka tíma, heimsfaraldur Covid-19, stríð í Úkraínu, aðfangakeðjur hafa rofnað og orkukreppa reið yfir heiminn. Það hafa víða riðið yfir miklir efnahagslegir erfiðleikar og verðbólga vaxið mikið í heimshagkerfinu. Væntanlega þarf að fara aftur til orkukreppanna á áttunda áratug síðustu aldar til að finna jafn hátt verðbólgustig. Alþjóðlega er verðbólgustigið hátt og flestar þjóðir að keppast við að ná henni niður.
Hér ræðum við fjármálaáætlun og þar ræðum við stóru myndina í ríkisfjármálum næstu árin og því er mikilvægt að ræða um samhengi hlutanna. Byrjum á erfiðu málunum, tölum um stýrivexti sem eru hér orðnir þeir hæstu í meira en áratug. Nú vil ég ekki að neinn misskilji orð mín og tek því fram að ég er hér að horfa á heilsu hagkerfisins þegar ég segi: Mikið er ég feginn að stýrivextir séu frekar aðeins of háir en aðeins of lágir. Af hverju? Jú, það er betra að vera í góðæri en í kreppu. Við Íslendingar höfum prufað hvort tveggja margoft. Sveiflurnar eru of hraðar. Jafnframt vil ég segja: Við þurfum að taka í taumana til að lækka stýrivexti. Þetta segi ég með heimilin í huga. Ég vil að vélarnar hægi aðeins á sér, ekki of mikið heldur nógu mikið til að ná jafnvægi, til að hægt sé að verja lífskjörin sem okkur hefur tekist að skapa undanfarin ár, verja kaupmáttinn. Við þurfum að ná fram þeim stöðugleika sem við höfðum náð í verðþróun í landinu áður en heimsfaraldur Covid-19 skall á og hræðilegt innrásarstríð Rússa í Úkraínu hófst. Gerðum við of mikið í Covid? Það kann vel að vera. Það getur enginn spáð fyrir fram um hvað nákvæmlega er rétt. Ég vil ekki einu sinni hugsa til þess hvernig ástandið væri hér ef við hefðum gert of lítið. Lítil fjölskyldufyrirtæki um allt land hefðu þurft að leggja upp laupana, atvinnuleysi væri hér líklega talsvert og lífskjör verri. Viðskipta- og ráðningarsambönd hefðu tapast í meira mæli og eignirnar sem litli maðurinn byggði upp væru að safnast á fáar hendur. Ég er ekki viss um að fólk hér inni sem gagnrýnir aðgerðir stjórnvalda hvað harðast átti sig á því hvað það hefði kostað samfélagið að fara í gegnum svipaðar afleiðingar af þessum efnahagsáföllum og áttu sér stað í kjölfar bankahrunsins.
Ræðum aðeins hvað er ólíkt með stöðu heimilanna nú og í bankahruninu, því að mörgum er tíðrætt um að hér sé allt í skralli, eins og fólk sé að fara að lenda á götunni o.s.frv. Það er mikið ábyrgðarleysi að tala niður góða stöðu landsins því að það hefur t.d. áhrif á verðbólguvæntingar. Hér þarf stjórnarandstaðan að líta í eigin barm.
Virðulegi forseti. Í gær hélt fjármálastöðugleikanefnd Seðlabankans fund og kynnti helstu niðurstöður nefndarinnar. Nefndin taldi sérstaklega mikilvægt að fara yfir nokkrar staðreyndir þar sem umræðan hefur ekki alltaf byggst á gögnum og staðreyndum. Staðan sem kynnt var í gær er þessi: Mikil hækkun nafnlauna hefur leitt til þess að kaupmáttur hefur haldist góður undanfarið þrátt fyrir verðbólgu. Árangurinn er talsvert betri en í þeim löndum sem við berum okkur saman við. Skörp hækkun fasteignaverðs og neikvæðir raunvextir hafa skilað hraðri eignamyndun á fasteignamarkaði, sérstaklega hjá þeim sem hafa fjármagnað kaup með óverðtryggðu láni. Þessi sterka eiginfjárstaða sem hefur myndast skapar mikinn viðnámsþrótt til að mæta hækkandi greiðslubyrði. Þetta er ólíkt því sem var að gerast í hruninu þegar greiðslubyrði jókst og húsnæðisverð var að lækka gríðarlega á sama tíma. Nú hefur hægst á kaupsamningum og hlutfall fyrstu kaupenda lækkar, en það er lækka niður í langtímameðaltal eftir mikinn kraft í fyrstu kaupendum undanfarin ár. Fyrstu kaupendur eru síður en svo horfnir af markaðnum eins og margir halda fram. Skuldahlutfall heimila af ráðstöfunartekjum fer ekki hækkandi. Það er enn á svipuðum stað og 2017 eftir mikla lækkun árin á undan. Veðsetningarhlutfall fer lækkandi. Það er m.a. vegna skilyrða sem Seðlabankinn hefur sett. Þetta kemur í veg fyrir ofskuldsetningu heimilanna sem myndi koma í bakið á þeim nú þegar verðbólga er há. Hlutfall greiðslubyrðar af ráðstöfunartekjum hefur haldist nokkuð stöðugt en fer aðeins upp á við fyrir fyrstu kaupendur. Fyrir meginþorra lána hefur greiðslubyrði verið að hækka um allt að 30.000 kr. á mánuði. Ef horft er á lán útgefin frá janúar 2020 hafa um 85% heimila verið yfir þessu hámarki sem Seðlabankinn setti um hver greiðslubyrði mætti vera í hlutfalli við ráðstöfunartekjur. Það er þó 40% fyrir fyrstu kaupendur. Þegar búið er að uppfæra þessar tölur miðað við hækkun greiðslubyrði og launavísitölu er hlutfallið komið í 10,9%. Margir hafa einnig talað snjóhengju sem vofir yfir okkur vegna fastra vaxta sem eru að losna. Seðlabankinn birtir áhugaverða myndir í kynningu sinni sem sýnir að hún er ekki jafn alvarleg og haldið hefur verið á lofti af stjórnarandstöðunni og verkalýðshreyfingunni. Vissulega eru fastir vextir af losna á næstunni. Stærsta bylgjan byrjar næsta sumar en það er núna jafn há fjárhæð lána á breytilegum vöxtum og tímabundnum vöxtum til allt að fimm ára. Þessi lán losna jafnt og þétt á næstu fimm árum þótt mest losni frá júní 2024 til ársbyrjunar 2026. Okkar stóra verkefni er að vera búin að ná verðbólgunni niður fyrir þann tíma. Á næstu 12 mánuðum koma einungis um 6% af heildarfasteignalánum til endurskoðunar. Heimilin sem festu óverðtryggða vexti fyrir þrem til fimm árum hafa upplifað mikla hækkun á fasteignaverði og eru því með gott eiginfjárhlutfall í eignunum sínum vegna mikillar hækkunar fasteignaverðs og neikvæðra raunvaxta. Almennt er staðan góð en auðvitað eru alltaf einhver heimili sem þurfa á hjálp að halda og þau þarf að verja. Bankarnir eru tilbúnir með margvíslegar lausnir fyrir heimili sem ekki geta staðið undir þessari hærri greiðslubyrði og Seðlabankinn beinir sterkum skilaboðum til þessara heimila um að tala við bankann sinn fyrr en seinna. Fólk hefur verið að ráðstafa séreignarsparnaði inn á lánin, verið að lengja lánstíma eða færa hluta af vöxtum á höfuðstól. Það eru engin teikn á lofti um að hér stefni í mikil vanskil sem bankakerfið geti ekki tekist á við og myndi þar af leiðandi leiða til óstöðugleika í fjármálakerfinu.
Hér hef ég eingöngu dregið fram staðreyndir um húsnæðismarkað. Ég get tekið undir með Seðlabankanum að það þyrfti frekar að hafa áhyggjur af stöðu þeirra sem ekki hafa náð að kaupa sér fasteign og eru fastir á leigumarkaði. Verkefnið er að ná tökum á verðbólgunni og styðja þannig við að hér skapist efnahagsaðstæður svo Seðlabankinn geti lækkað vexti. Til þess þarf ríkið og vinnumarkaðurinn að spila með. Við höfum séð umfjöllun um slaka framleiðniaukningu undanfarinna ára samanborið við áratugina sitthvorum megin við aldamót. Af þessu hef ég miklar áhyggjur. Ekkert lát virðist á kröfum um nafnlaunahækkanir á sama tíma og hagvöxtur er að mestu drifinn áfram af fólksfjölgun. Við hljótum öll að vera sammála um mikilvægi þess að auka framleiðni hér á landi til að viðhalda og efla kaupmátt landsmanna.
Alls fjölgaði íbúum á Íslandi um 11.500 í fyrra, eða um 3,1%, sem er mesta fjölgun sem sögur fara af hér á landi á einu ári. Þessa þróun sáum við halda áfram á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Íbúum hefur fjölgað um 39% hér frá aldamótum en aðeins um rúmlega 2% að meðaltali í Evrópu, svona til að bera það saman. Þessi gríðarlega fjölgun hefur sína kosti og galla. Við þurfum á þessari fjölgun að halda til að keyra áfram atvinnulífið en hún setur mikinn þrýsting á innviði, hvort sem það er í heilbrigðiskerfinu, menntakerfinu eða á húsnæðismarkaði. Við erum að bregðast við þessu, t.d. með byggingu nýs Landspítala, en húsnæðismálin þurfum við sérstaklega að taka föstum tökum og leiðin til þess er aukið framboð húsnæðis. Við verðum að einfalda regluverk og liðka fyrir hraðari uppbyggingu án þess að slá af öryggiskröfum. Sá sem hér stendur hefur sérstakar áhyggjur af því að dregið sé úr stuðningi með skattalegum ívilnunum íbúðabyggjendum til handa á þessum tímapunkti. Jafnvel þó að þenslan sé til staðar þá getur verið að aukin uppbygging húsnæðis vinni gegn verðbólgu með auknu framboði af húsnæði. Langtímaáhrifin verður einnig að hafa í huga. Við munum hvað gerðist eftir bankahrunið þegar íbúðauppbygging dróst saman og við erum ekki enn búin að ná að vinna upp þann samdrátt. Ef þessi mannfjölgun heldur áfram er ekki hægt að hægja á uppbyggingu íbúða. Ábyrgð sveitarfélaganna er einnig mikilvæg í þessu samhengi. Það er mikilvægt að þau standi undir þeirri skyldu sinni að bjóða upp á nægilegt framboð lóða og þá ekki bara á rándýrum þéttingarreitum.
Mér finnst við verða að ræða aðeins meira um framleiðni. Það er eitt af stóru markmiðunum með aðgerðum ríkisins næstu misseri að skapa grundvöll fyrir framleiðniaukningu. Framleiðni skiptir mestu máli þegar kemur að því að bæta lífskjör til lengri tíma. Við höldum ekki kaupmáttaraukningu launa lengi ef framleiðnin fylgir ekki, en undanfarin ár hefur framleiðni verið talsvert lægri en launahækkanir þrátt fyrir góðan hagvöxt. Við erum að sjá afleiðingar þess að einhverju leyti núna, það er of mikil þensla í hagkerfinu og verðbólgan er byrjuð að láta finna fyrir sér. Þetta er auðvitað ekki eina ástæða verðbólgu en spilar sinn þátt. Það eru fjölmargar aðgerðir sem fara má í til að auka framleiðni. Stuðningur við rannsóknir og nýsköpun er gott dæmi um hvernig má auka framleiðni til lengri tíma. Við höfum bætt vel í þann málaflokk á undanförnum árum. Þá höfum við séð hvernig Stafrænt Ísland hefur einfaldað þjónustu og aukið framleiðni hennar, sem dæmi má nefna umsóknir um fæðingarorlof sem eru langflestar í gegnum Ísland.is. Á þeirri vegferð verðum við að halda áfram. Það skiptir einnig máli að menntakerfið svari kalli atvinnulífsins og mennti nemendur í meira mæli í þeim greinum sem þarf á vinnumarkað. Við nefnum einnig í nefndaráliti að skoða ætti ábatakerfi vegna hagræðingar í rekstri ríkisins. Ég er þeirrar skoðunar að við eigum að útfæra skapalón svo að stofnanir og starfsfólk njóti ávinnings þess að gera betur í rekstri sinna stofnana. Þá vil ég ítreka að ég á við gjaldahliðina, ég er ekki að hvetja til tekjusóknar opinberra aðila.
Í fjármálaáætlun er gerð aðhaldskrafa sem ég vil gera að umræðuefni hér í þessu samhengi. Mér finnst mikilvægt að það komi fram, og ég hvet forstöðumenn hins opinbera til að taka það til sín, að sú aðhaldskrafa sem við setjum er lágmark en ekki hámark. Þetta ætti ekki að snúast um hvar við finnum þessi 1–2% sem aðhaldskrafan kveður á um. Þetta ætti að snúast um hvernig nýtum við þessi 98% eða 99% sem úthlutað er á sem hagkvæmastan máta. Á tímum sem þessum þar sem þörf er á aðhaldi í ríkisrekstrinum er mikilvægt að endurmeta útgjöld í heild sinni, ekki bara reyna að skera af hér eða þar.
Undanfarin ár hefur ágætur árangur náðst með sameiningu stofnana og ber að halda áfram á þeirri vegferð. Ég nefni sameiningu tollstjóra og ríkisskattstjóra, sameiningu Seðlabankans og Fjármálaeftirlitsins, sameiningu nokkurra stofnana í Samgöngustofu og niðurlagningu Nýsköpunarmiðstöðvar Íslands. Þá runnu Fjölmenningarsetur og Vinnumálastofnun saman á vorþingi 2023. Skýr áform eru um frekari sameiningar, t.d. á sviði matvælaráðuneytisins, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og dómsmálaráðuneytisins þar sem sameining hvoru tveggja héraðsdómstólanna og sýslumannsembættanna er áætluð árið 2024. Þá er einnig stefnt að sameiningu Samkeppniseftirlitsins og Neytendastofu, líkt og fram kemur í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar. Veruleg tækifæri eru til staðar til að draga áfram úr yfirbyggingu og veita betri og hagkvæmari þjónustu innan stjórnsýslunnar. Þar sem sameiningum stofnana verður ekki við komið verður lögð áhersla á samrekstur og samnýtingu á aðstöðu í því skyni að minnka notkun á skrifstofuhúsnæði svo um munar á tímabili fjármálaáætlunar. Fækkun fermetra í skrifstofuhúsnæði á að skila sparnaði sem nemur um 2 milljörðum króna á ári fyrir lok tímabilsins.
Virðulegi forseti. Það er mikill hagvöxtur í íslensku efnahagslífi í dag og efnahag. Það er mikill þróttur í atvinnulífinu. Stærsta verkefni okkar er að endurheimta verðstöðugleikann, ná niður verðbólgu með sem minnstum efnahagslegum tilkostnaði. Í stóru myndinni er staða ríkissjóðs sterk og gott að hafa lítið skuldsettan ríkissjóð til að takast á við efnahagsmálin. Þó að skuldahlutfallið sé lágt er mikilvægt og raunar algjört lykilmál að halda áfram að greiða niður skuldir ríkissjóðs.
Frú forseti. Að lokum þetta: Eins og oft hefur verið nefnt er ríkissjóður vinafár og mikilvægt að hann eigi sem flesta vini í þessum sal. Það væri kannski gott að stofna til vinahóps ríkissjóðs hér á þingi eins og víða er gert í vinahópum mismunandi þjóða í alþjóðastarfi. — Ég hef lokið máli mínu, frú forseti. (Gripið fram í.)