fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Frú forseti. Við ræðum hér fjármálaáætlun sem er mikilvægt stefnumörkunarplagg fyrir þau fjárlög sem munu birtast hér í haust og í ríkisfjármálunum núna næstu fjögur árin. Umhverfið sem við ræðum þessa fjármálaáætlun í er náttúrlega þannig að það er há verðbólga og vaxtaþrýstingur, háir vextir, þannig að það er verkefni hjá okkur á Alþingi að bregðast við þessu og gera það sem við getum gert í því. En við erum ekki ein í þessu. Það er oftast talað um að það séu þrír aðilar. Það er peningastefnan sem Seðlabankinn sinnir, það eru ríkisfjármálin sem þurfa að vera ábyrg, það heyrir til okkar friðar, og svo þurfa aðilar vinnumarkaðarins að koma með okkur í þetta verkefni. En það er samt ekki hægt að ræða þetta hér án þess að nefna fjórða liðinn sem við hér höfum kannski minni áhrif á, það er hin fjölbreytta staða í heimsmálunum. Það er nýbúinn að vera heimsfaraldur, það geisar stríð og það eru ýmsar blikur á lofti á erlendum fjármálamörkuðum. Allt hefur þetta áhrif hér líka og þetta er eitthvað sem við getum ekki gert neitt við, en við þurfum að taka ábyrgð á því sem við getum gert.
Það er gott að finna það að ríkisstjórnin sé samstillt í því að takast á við þetta verkefni og stjórnarflokkarnir og mörg mikilvæg skref hafa verið stigin. Vegna þess að stunduð hefur verið styrk efnahagsstjórn hefur ríkissjóður sem betur fer verið í góðri stöðu til að bregðast við, fyrst við Covid-faraldrinum og verja heimilin og fyrirtækin, og sýnir sig svo í mjög góðri afkomu og viðspyrnu núna þegar við komum inn í þetta skeið. Því er það mjög gott að bætt afkoma ríkissjóðs nemur um 90 milljörðum frá því að við kláruðum fjárlögin í desember. Það munar um það og það hjálpar. Það er viss aðhaldsaðgerð að hafa betri afkomu og skiptir miklu máli og það er gríðarlega mikilvægt. En í sambandi við það sem við erum að tala um, áætlun sem er byggð á fjármálastefnunni, þá er mjög mikilvæg sú yfirlýsing sem birtist frá stjórnvöldum um þau áform að flýta því að taka upp fjármálareglurnar eftir að þær voru teknar úr sambandi út af heimsfaraldri kórónuveiru. Okkur hefur tekist að halda þannig á fjármálunum þannig að það má taka þá ákvörðun að flýta þeim um eitt ár. Það segir okkur að við þurfum að sýna aukna ráðdeild í ríkisrekstrinum sem eru mikilvægustu skilaboðin sem við sendum af því að það sem við erum að fjalla um hérna skiptir hvert einasta heimili máli, sérstaklega heimilin og fyrirtækin sem eru í veikari stöðu. Þar berum við mikla ábyrgð. Því verðum við að gera allt sem við getum til að draga úr greiðslubyrði heimilanna og að framfærslukostnaður, eins og kostnaður við matarkörfuna, sé ekki að halda áfram að hækka heldur fari frekar að lækka. Það gerum við með ábyrgum ríkisfjármálum og það erum við að sýna með þessari fjármálaáætlun og þeirri stefnu sem við leggjum hér og aðgerðum sem tengjast henni. Það eru líka mikilvæg skilaboð sem fólust í yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar þar sem er búið að taka þá ákvörðun að afkomubatinn upp á 9 milljarða, sem var óútfærður, verði allur gjaldamegin. Það verður dregið úr útgjöldum um þessa 9 milljarða, sem er mikilvægt, og nefndir nokkur hlutir varðandi það hvernig á að ná þessum 9 milljörðum þannig að það er kominn aukinn trúverðugleiki í þessa yfirlýsingu líka með því, bæði búið að ákveða að þetta sé gjaldamegin og að það eigi að ná þessu með t.d. lækkun ferðakostnaðar o.fl., ég fer betur í það á eftir. Skuldaþrýstingur ríkissjóðs er allt annar, afkoman er til hins betra og það er enn þá mikill hagvöxtur og við erum búin að sýna það og senda skýr skilaboð að við ætlum að taka þátt í því að sýna ábyrgð og takast á við þetta til þess að við getum hjálpað heimilunum að lækka sinn framfærslukostnað, hvort sem það eru afborganir af lánum eða rekstur heimilisins. Svona er staðan.
Við þurfum líka að tryggja það í þessum aðgerðum öllum saman að við séum að auka framleiðnina þannig að ábatinn komi í gegnum það líka. Við þurfum að huga vel að því að fjölga ekki opinberum störfum og öðru slíku. Það mun senda mjög sterk skilaboð upp á lánshæfismat og fjármögnun og annað slíkt ef við náum að auka framleiðnina í samfélaginu. Það flýtir fyrir okkur við að lækka vaxtakostnaðinn sem er einn mesti kostnaður ríkissjóðs núna og við þurfum að draga verulega úr. Það hjálpar okkur í þessu aðhaldi.
En talandi um þetta, það var líka ánægjulegt að heyra góðar viðtökur seðlabankastjóra við yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar. Það er mjög gott. Ég tek undir með seðlabankastjóra og tek þá ábyrgð sem hann varpar til Alþingis. Ég fær hér, með leyfi forseta, að vitna í orð hans þar sem hann segir: „Mér finnst að þessi skref hafi verið jákvæð. Ég býst náttúrlega við einhverju meira þegar kemur að fjárlagagerðinni.“ Þetta var það sem seðlabankastjóri sagði. En af því að það hefur verið mikið rætt um þessa yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar, það sé ekkert nýtt í henni og annað slíkt, þá er ríkisstjórnin bara að sýna að hún ætlar að taka ábyrgð, hún sé að flýta fjármálareglunum, sé búin að taka ákvarðanir sem auka trúverðugleika yfirlýsingarinnar, eins og ég fór yfir. Svo mun nánari útfærsla á þessu aðhaldi og þessum ábyrga ríkisrekstri, að ríkisstjórnin ætli að taka þátt í þessu með Seðlabankanum, koma fram í fjárlögunum í haust og þá verður líka miðað svolítið við stöðuna í efnahagsmálunum þá. Það verður aukið aðhald. Ég held að það sé bara það sem við þurfum öll og ég lít svo á að ríkisstjórnin sé búin að lýsa því yfir að í öllu Stjórnarráðinu verði leitað leiða til að nýta fjármunina sem best, auka framleiðnina og setja aðhald í rekstri, vera með, eins og við segjum í okkar nefndaráliti, svolitla endurskoðun á útgjöldum hvers málaflokks, hvernig hægt er að gera betur. Það skiptir miklu máli.
Áður en ég fer lengra inn í einstakar aðhaldsaðgerðir sem hægt er að nefna þá vil ég meina að fyrir utan það sem ég er búinn að fara yfir hér þá heyrum við hvað vinnumarkaðurinn er að kalla eftir, við vitum hvar skórinn kreppir hjá heimilunum. Það vantar húsnæði á viðráðanlegu verði. Það er það sem vantar. Það sem við getum gert í því, fyrir utan að draga úr kostnaðinum, er að auka stofnframlögin og húsnæðisstuðninginn. En sveitarfélögin verða að koma með okkur þar. Þau verða að koma með okkur í það verkefni að fjölga lóðunum undir hagkvæmt húsnæði og það sé fjölbreytt húsnæði. Sveitarfélögin bera gríðarlega ábyrgð í því að hjálpa okkur að lækka húsnæðiskostnað, gríðarlega ábyrgð. Ég vil segja það að með því að setja þak á laun æðstu stjórnenda núna, upp á 2,5%, með því að mæta kröfu vinnumarkaðarins um að auka stofnframlög til húsnæðismála til að mæta þessum útgjaldamesta lið heimilanna, þá finnst mér við vera búin að senda boltann mjög ákveðið til vinnumarkaðarins, að sýna ábyrgð, gera hóflegar launakröfur. Við erum að reyna að hjálpa þeim að mæta mesta útgjaldaliðnum í gegnum húsnæðisliðinn þannig að við getum, allir þrír aðilarnir, verið saman í þessu. Það er gríðarlega mikilvægt. Ef það koma skýr merki um það að þetta slaki á kröfum vinnumarkaðarins, þ.e. að við séum að draga úr launahækkuninni hjá æðstu stjórnendum og séum að mæta þessu stærsta baráttumáli vinnumarkaðarins með húsnæðisliðinn, þá mun það hafa jákvæð áhrif áður en næsti vaxtaákvörðunardagur rennur upp. Ég er alveg sannfærður um það. Ég hef mikla trú á því að vinnumarkaðurinn og aðilar vinnumarkaðarins komi með okkur þar.
En til að þessar aðgerðir ríkisstjórnarinnar valdi ekki aukinni þenslu, að fara að spýta í við uppbyggingu húsnæðis, þá verðum við að fresta framkvæmdum. Það er búið að lýsa því yfir að það eigi að fresta framkvæmdum. Það er bara oft þannig að það tekst ekki að koma öllum þeim fjármunum út sem hið opinbera er búið að áætla í framkvæmdir. Hér hefur Stjórnarráðið verið nefnt og björgunarmiðstöðin, en svo eru aðrar framkvæmdir, t.d. hafa framkvæmdir vegna hjúkrunarheimila oft ekki komist í vinnu, það eru örugglega einhverjar svoleiðis framkvæmdir sem munu ekki fara af stað. Ég efast um að t.d. þjóðarhöllin sé komin það langt í undirbúningi að það náist að hefja framkvæmdir þar. Ég hef oft sagt að það sem tefur okkur mest í samgöngumálum og sérstaklega hér í höfuðborginni eru skipulagsmál. Ég get séð fyrir mér að mikið af áætluðum framkvæmdakostnaði muni ekki fara út. Húsnæði eins og uppbygging fyrir Listaháskólann gæti kannski beðið. Það er fullt af alls kyns svona framkvæmdum sem ríkið á ekki að vera að drífa sig af stað í. Það er líka margt sem kemst ekki af stað af því að undirbúningur er ekki kominn nógu langt.
Við getum líka þurft að endurskoða og setja þak á endurgreiðslur til kvikmyndaiðnaðarins. Ég held að kvikmyndamarkaðurinn á Íslandi sé bara orðinn uppseldur af því að ásóknin hefur verið það mikil og mikið að gera þar og það er þensluhvetjandi. Ég held að við getum ekki haft endalausar endurgreiðslur þannig að við þurfum að setja þak þar, það er ein hagræðingaraðgerðin. Orkuskiptin, við verðum að athuga hvort allir þeir fjármunir þar séu að nýtast, við eigum ekki einu sinni rafmagn í það allt og það tekur lengri tíma þannig að við getum kannski hægt á einhverju þar. Mér finnst bara atvinnulífið líka vera að taka vel við sér. Stjórnvöld þurfa bara að vinna hraðar við að skaffa orkuna á móti. Varðandi fjölmiðlaliðinn þá held ég að við getum hagrætt mikið þar og hvort sem styrkir til einkarekinna fjölmiðla verði færðir yfir á tekjuhliðina, ég er miklu hlynntari því, þá vil ég að Ríkisútvarpið sýni aðhald eins og allar aðrar stofnanir, þurfi ekki að fá endalausar hækkanir. Það á að sýna aðhald eins og aðrar stofnanir og við þurfum að ýta undir það. Ferðakostnaður er hér nefndur. Við þurfum að setja stórt greiningarteymi í heilbrigðiskerfið til að auka framleiðni og nýtingu fjármuna þar, átta okkur betur á tölunum, stórar kröfur þar. Sameining stofnana mun halda áfram. Stafrænt Ísland hefur gefið okkur mikið. Sértekjur á friðlýstum svæðum held ég að við getum aukið og gert friðlýst svæði sjálfbærari þar sem ferðamenn koma og þeir borga sem njóta þjónustunnar. Selja ríkiseignir, Íslandspóst, Isavia, fullt af bújörðum og það er fullt af öðru og mætti lengi telja.
Ég vil þó koma inn á eitt þar sem er ekki aðhaldskrafa hjá mér, það eina, en það er sagt í fjármálaáætluninni að aðhaldskrafa á lögregluna komi inn eftir tvö ár. Við höfum margrætt það í fjárlaganefnd að þar er launakostnaður, aukið álag, aukin og fjölbreyttari verkefni lögreglunnar og það er ekki hægt að hagræða, það þýðir bara fækkun í lögreglunni sem við erum að reyna að byggja upp.
Ég hef mikla trú á þeim skilaboðum sem við sendum. Ég trúi því að við séum í þessu saman og við þurfum að leita allra leiða til að bæta afkomu ríkissjóðs og það verðum við helst að gera gjaldamegin.