fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Hæstv. forseti. Hér hefur mikið verið rætt um þessa fjármálaáætlun hvað varðar verðbólgu og ég styð það og tek undir margt sem þingmenn stjórnarandstöðunnar hafa verið að nefna. Mig langar að fara yfir nokkra punkta og vangaveltur varðandi orku- og umhverfismál í þessari fjármálaáætlun því að mér finnst mjög mikilvægt að þar fylgi einmitt orð og aðgerðir. Ég fagna árangri og áherslum í loftslagsmálum og ég fagna því að fjármagn til þessara málaflokka hækki á næstu árum. Ég fagna líka áherslu á orku og þeim fókus sem er á hana, enda er orka grunninnihaldsefni allra efnahagslegra aðgerða, alls viðskiptalífs, heimila, nýsköpunar og nútímalífs.
Mig langar aðeins að tala um í hvað við nýtum orkuna, af því að við vitum að þetta er grunnihaldsefni okkar efnahags. Í þessari áætlun er talað um að það þurfi að vera meira af henni. Það gefur einfaldlega til kynna að það verði meira af viðskiptum og framleiðslu. Það er verið að stækka þetta ský, ef við ímyndum okkur það, það verður stærra, en á sama tíma vitum við öll að skýið er á röngum stað og því finnst mér að við þurfum aðeins að hugsa um hvert við erum að beina þessari orku sem fer í uppbyggingu. Auðvitað er það fagnaðarefni að þessi orka er græn en það skiptir ekki bara máli að við byggjum upp græna orku heldur í hvaða verkefni hún fer. Í fjármálaáætluninni er mikið talað um uppbyggingu á grænni orku og það er flott, en þá spyr maður spyr sig: Í hvað er orkan að fara, þetta grunninnihaldsefni? Hvar erum við að spýta inn í?
Hér hefur uppsetningu vindmylla og fleiri virkjunum verið mótmælt af umhverfissinnum um land allt. Ég skil pínu sjónarmið þeirra og langar að tala um ásýnd þeirra, af hverju verið er að mótmæla og hvað það kennir okkur og hvað við getum gert til þess að markmið um græn umskipti á orku og markmið umhverfissinna fari hönd í hönd. Frá sjónarmiði fólks ríkir óvissa um hvert orkan stefnir og hvert hún fer og þess vegna skil ég vel fólk sem sér fyrir sér að það verði ekki fallegt að sjá vindmyllur fyrir einhverjum fallegum fjallgarði ef það er ekki skýrt hvað samfélagslega tilgangi þessi orka þjónar. Er hún að fara í aukin gagnaver? Er hún að fara í fleiri álver? Við vitum það ekki og út af þessari óvissu getur verið erfitt fyrir suma sem búa úti í sveit að styðja slík verkefni. Auðvitað er það minn vilji að vilji umhverfissinna og vilji þeirra sem styðja græn orkuskipti fari hönd í hönd því að þetta eru keimlík málefni og í þessari fjármálaáætlun og bara í allri framtíðarsýn hvað varðar þessi mál munum við leggja áherslu á í hvaða verkefni orkan fer. Það verður mynduð ákveðin stefna um nýtingu í orkumálum, hvert orkan fer, því að auðvitað er íslenska þjóðin sem elskar þetta land að taka á sig ákveðinn skell með uppbyggingu virkjana. Við erum að missa land. Það er ekki ópólitískt að segja það og maður vill hugsa alla svona löggjöf út frá kostnaði samfélagsins og svo því góða sem maður fær á móti. Eins og er þá sér það fólk sem býr í sveit og sér einhverja vindmylluáætlun ekki nógu mikla kosti við það að byggja upp vindmyllur því að samfélagslegur tilgangur þeirrar orku sem mun myndast er ekki nógu skýr. En ég trúi því að ef ríkið myndi móta stefnu um það hvert orkan eigi að fara þá yrði allt í einu meiri samfélagsleg sátt varðandi það að taka á sig ákveðinn kostnað með það að sjónarmiði að byggja upp verkefni sem fara í þessi mikilvægu orkuskipti sem hér er alltaf talað um.
Ég trúi að þetta sé mjög mikilvægt til þess að orkumarkmið og markmið grænna umskipti náist, því að þau eru gríðarlega mikilvæg. Mér finnst afskaplega mikilvægt að þetta komi fram í fjármálaáætlun, til að mynda að setja upp einhverjar skattaívilnanir eða styrki fyrir orkufyrirtækin sem eru fleiri en áður og ákveðinn hluti orku Íslands er hjá einkageiranum. Hægt væri að setja t.d. einhverja skattaívilnun þannig að ef fyrirtæki er að íhuga hvort það eigi að setja orku í grænt verkefni eða setja orku í mengandi iðnað þá sé ákveðinn hvati fyrir það að setja orkuna í grænan iðnað. Við erum að tala um umskipti í öllu hagkerfinu. Það er ekki bara verið að tala um losun á beina ábyrgð stjórnvalda. Við erum að tala um að breyta efnahagnum og þá þarf að tryggja að þetta grunninnihaldsefni allra viðskipta og efnahagslífs fari í þá hluti sem ríkisstjórnin er búin að segja að séu mikilvægir. Þá getum við einmitt nýtt atvinnulífið og nýtt þannig séð markaðinn til þess einmitt að koma með lausnir, af því að þá er hvatinn orðinn meiri fyrir þessu.
Það eru ákveðin sjónarmið um markaðsfrelsi og ég get aðeins talað um af hverju mér finnst þau ekki alveg eiga við núna. Það er einfaldlega af því að í áranna rás hefur mengandi iðnaður fengið að þróast og fengið að vera til og hefur því náð að lækka sinn kostnað mjög mikið. En við erum enn þá á nýsköpunarstigi þegar kemur að græna iðnaðium, sem við vitum öll að er mikilvægur, og þess vegna er mikilvægt að ríkið komi hér inn á markað og setji upp ákveðnar ívilnanir fyrir fyrirtæki sem eru að reyna að gera góða hluti og eru að reyna að aðstoða ríkið í því að ná okkar loftslags- og orkumarkmiðum. Það er mikill þjóðhagslegur ávinningur fólginn í því að þessi orka fari í græn verkefni, getur það fólk sem er að vinna í iðnaði, oft úti á landi, notið hreinna andrúmslofts og einnig færir þetta okkur skrefi nær loftslagsmarkmiðum. Svo er það einnig fyrir orkuuppsprettuviðmiðin, að við getum verið með orku sem er nýtt í græn verkefni. Það þykir mér afar mikilvægt.
Þetta er mikilvægur punktur sem við erum með af því að þetta er staður sem önnur ríki munu ná á einhverjum tímapunkti. Það sem þarf að fara að hugsa um er að við erum ekki bara að búa til orku til þess að búa til orku og sjá svo til hvað gerist með hana, heldur erum við að búa til orku af því að þetta er mikilvægt innihaldsefni í efnahagnum. En á einhverjum tímapunkti verðum við að viðurkenna að það sé komið nóg. Það er einkenni þróaðra samfélaga og þróaðrar menningar að geta séð hvenær er komið nóg; það er búið að veiða nóg af hval, við erum með nóg af orku, og mér finnst við geta sagt það á einhverjum tímapunkti. Ég skil vel sjónarmið um að það þurfi kannski að auka aðeins við orku núna af því að við stöndum í ákveðnum grænum umskiptum en til þess að það geti gerst þá þarf að vera alveg skýrt hvert orkan er að fara. Það er alveg hægt að gera með stefnumótun innan Landsvirkjunar, innan fyrirtækja, eða með skattaívilnunum.
Ég vildi bara ítreka þetta af því að í þessari fjármálaáætlun er einmitt talað um uppbyggingu á grænni orku. Ég vil líka ítreka mikilvægi þess að orkan sé nýtt í þau málefni og þá flokka sem ríkisstjórnin hefur sagt í stefnu að séu mikilvægir og við viljum sjá gerast.