Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[19:05]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Frú forseti. Ég vil byrja á því í þessari umræðu um fjármálaáætlun fyrir árin 2024–2028 að vekja athygli á rammagrein 2 sem er á bls. 38 í áætluninni. Þessar rammagreinar eru ákaflega góðar að mínu mati og veita ákveðna sýn á það hvernig fjárveitingum hins opinbera mun fram líða og þróun í þeim efnum, þ.e. aukning og útgjöld. Rammagrein 2 er mjög áhugaverð grein. Hún lýtur að efnahagslegum áhrifum flóttafólks, sem mér finnst kannski að hafi ekki verið gefinn nægilegur gaumur í þessari umræðu. Ég vil hvetja hv. þingmenn til að lesa þessa rammagrein. Hún er mjög fróðleg og veitir ákveðna sýn á það hvers er að vænta í málefnum flóttafólks á Íslandi á komandi árum og á þá gríðarlegu aukningu fjármuna sem eru að fara í þennan málaflokk. Í greininni kemur fram að á undanförnum árum hafi fjöldi fólks á flótta aukist og að fjölgun umsókna um alþjóðlega vernd hafi áhrif á ríkisfjármálin, að sjálfsögðu, og geti umfang þeirra haft þjóðhagsleg áhrif, svo sannarlega, bæði til skemmri og lengri tíma. Á síðasta ári sóttu um 4.500 einstaklingar um alþjóðlega vernd hér á landi og hún var veitt tæplega 3.500 einstaklingum. Langflestir þeirra sem hlutu vernd komu frá Úkraínu og Venesúela þar sem umsækjendum frá þeim löndum er nær undantekningarlaust veitt vernd. Við þekkjum það náttúrlega með Úkraínu að við virkjuðum ákvæði í útlendingalögunum um að þau fengju skjóta afgreiðslu og ég held að það sé alger samstaða um það meðal Íslendinga að taka á móti Úkraínumönnum sem koma frá hinu stríðshrjáða landi Úkraínu. Þannig að á síðasta ári fengu 2.300 einstaklingar frá Úkraínu vernd og 700 frá Venesúela.

Venesúela er mjög athyglisvert vegna þess að núna á þessum fyrstu mánuðum ársins, eða alveg frá áramótum og fram til 1. maí, eru flóttamenn frá Venesúela fjölmennasti hópurinn sem sækir um hæli á Íslandi. Nú geisar ekki stríð í Venesúela og við höfum meira að segja fengið fréttir af því að þar séu ferðaskrifstofur að auglýsa Ísland sem ákjósanlegt land fyrir fólk að flytja til og þá undir merkjum þess að fá hér alþjóðlega vernd. Ég hef skrifað greinar um þetta og sagt það hér í ræðu og riti að ég held að því miður séu flestallir sem koma frá Venesúela svokallaðir efnahagslegir flóttamenn sem eiga þá ekki réttindi í hælisleitendakerfinu.

Á árinu 2022 voru um 10.000 erlendir ríkisborgarar sem fluttu til landsins umfram brottflutta — 10.000 erlendir ríkisborgarar. Þessi þróun mun halda áfram og spá Hagstofunnar, sem lá til grundvallar fjármálaáætluninni, gerir ráð fyrir að mannfjölda á vinnufærum aldri fjölgi um 2,4% á árinu 2023. Allt kostar þetta peninga þegar straumurinn er svona mikill til landsins og nú er svo komið að þessi málaflokkur kemur til með að kosta á þessu ári u.þ.b. 15 milljarða og á árinu 2024 og 2025, þ.e. á ári hverju, er því spáð að þetta verði um 16 milljarðar. Þetta eru gríðarlegar upphæðir. Þetta eru t.d. á árunum 2024–2025 yfir 30 milljarðar. Að sjálfsögðu hefur þetta áhrif á ríkisútgjöldin og er mikilvægt að fara ofan í saumana á því hvort það sé ekki hægt að draga úr þessum útgjöldum með einhverjum hætti. Nú bíða hér fjölmargir umsækjendur um alþjóðlega vernd frá Venesúela niðurstöðu í sínu máli hvað varðar það hvort þeir fái hér vernd eða ekki. Ég held að upphafið að þessu máli, þ.e. þessi mikli fjöldi frá Venesúela sem kemur hingað, eigi rætur að rekja til þess að þeir fengu hér og fá hér svokallaða viðbótarvernd, fjögurra ára vernd, sem gerir það að verkum að þeir hafa sömu réttindi og Íslendingar í velferðarkerfinu. Auðvitað hefur þetta áhrif þegar fólk í Venesúela veit þegar það leggur af stað að það fær hér fjögurra ára vernd. Ástæða þess er sú að kærunefnd útlendingamála, sem endurskoðar í raun og veru ákvarðanir Útlendingastofnunar þegar málum er vísað til kærunefndarinnar, annaðhvort með sjálfkrafa hætti eða einstaklingar áfrýja til kærunefndarinnar, hefur komist að þeirri niðurstöðu að allir þeir sem koma frá Venesúela skuli fá skilyrðislausa fjögurra ára vernd. Þess vegna er að mínum dómi þessi mikli straumur til landsins og nú eru þessir flóttamenn orðnir fjölmennasti hópur flóttamanna. Ég endurtek að þeir koma ekki frá stríðshrjáðu landi. Þetta hefur gert það að verkum að útgjöld til þessa málaflokks hafa aukist verulega. Þarna höfum við ákveðna nefnd, sjö manna nefnd sem starfar samkvæmt lögum um útlendinga og tekur þessa ákvörðun. Með þessari ákvörðun er hún í raun og veru að segja að það muni koma til með að kosta verulegar upphæðir úr ríkissjóði og þannig má segja í raun og veru að þessi nefnd hafi svokallað fjárveitingavald, vegna þess að hér er verið að tala um milljarða króna.

Nú er það þannig að þessi nefnd kemur til með að úrskurða, vonandi fljótlega, um niðurstöðu þess hvort þessu fyrirkomulagi verði haldið áfram, að þeir fái áfram fjögurra ára vernd, eða hvort þeim verði hafnað, eins og Útlendingastofnun hefur gert í nokkrum úrskurðum, og bíða þess að kærunefnd útlendinga taki ákvörðun. Mér finnst þetta umhugsunarefni, frú forseti, að hér sé nefnd úti í bæ sem getur hreinlega ákveðið það að útgjöld ríkisins aukist um milljarða. Við verðum að fara yfir þessa verkferla og það er alveg ljóst að ef kærunefndin kemur ekki til með að breyta niðurstöðunni varðandi flóttafólk frá Venesúela — áttum okkur á því að Útlendingastofnun hefur talið svo vera núna að það sé ekki grundvöllur fyrir því að veita þessu fólki alþjóðlega vernd. Ástandið sé þannig í Venesúela að það sé ekki grundvöllur fyrir að veita því vernd og þeim verði því synjað og er synjað hjá Útlendingastofnun. Það þýðir að þeir verða þá að snúa aftur heim og bíða þess að kærunefnd útlendingamála ákveði hvort hún staðfesti þessa synjun. Ef hún gerir það ekki sjáum við hér fram á verulegan straum fólks frá Venesúela til landsins. Þá er búið að senda út skilaboð um að áfram sé litið svo á að þeir eigi að fá hér fjögurra ára vernd og þess vegna er afar mikilvægt að þessi úrskurður kærunefndar liggi fyrir sem allra fyrst. Ef hún staðfestir þessa niðurstöðu er komin ákveðin staða fyrir það fólk sem er statt í landinu hér frá Venesúela og mun það hafa áhrif á stöðu þeirra í landinu. Ef hún synjar niðurstöðu Útlendingastofnunar þá er, eins og ég segi, verið að opna fyrir frekara flóttafólk til landsins.

Við sjáum hver niðurstaða þessa verður en þetta vekur mann til umhugsunar um það á hvaða vegferð við erum þegar ein nefnd, sjö manna nefnd, getur ákveðið það að hingað streymi fólk frá öðru landi sem t.d. kærunefndin norska hefur úrskurðað að eigi ekki rétt á vernd, aðstæður í landinu séu með þeim hætti að það sé ekki rétt að veita því vernd. Það er rétt að geta þess að á fyrstu mánuðum þessa árs, frá janúar til 1. maí, höfðu rúmlega 800 einstaklingar frá Venesúela sótt um vernd á Íslandi en á sama tímabili í Noregi voru þeir 30. Nágrannalöndin eru að vísa þessum umsóknum frá; Spánn vísaði 10.000 umsóknum frá síðasta ári, Svíþjóð vísaði fjölmörgum umsögnum frá og veitir enga fjögurra ára vernd. Við höfum hér sérreglu og algjörlega sérstakar aðstæður sem nauðsynlegt er að vinda ofan af að mínu mati, frú forseti, vegna þess að hér eru heilmikil útgjöld á ferðinni. Það er búið að sýna fram á það, Norðmenn sendu sérstaka sendinefnd til Venesúela til að kanna aðstæður og niðurstaðan varð sú að þeir töldu ekki ástæðu til að veita þessu fólki vernd. En kærunefndin hér heima hefur ekki sent einn einasta einstakling til þess að skoða aðstæður í Venesúela, þannig að þetta skýtur allt skökku við.

Ég vil segja það að lokum að þetta er málaflokkur sem við verðum að fylgjast afar vel með (Forseti hringir.) vegna þess að þróunin er með þeim hætti að við komum ekki til með að standa undir þessum mikla fjölda (Forseti hringir.) ef fram heldur sem horfir. Þess vegna er mikilvægt að við komum þessum málaflokki endanlega (Forseti hringir.) í það horf sem hann á að vera í samræmi við nágrannaþjóðir okkar. (Gripið fram í: Heyr, heyr.)