Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[19:16]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F):

Virðulegi forseti. Við ræðum hér í dag fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar, áætlun sem miðar að því í samvinnu við Seðlabanka Íslands að ná niður verðbólgunni sem er alltumlykjandi í okkar samfélagi. Verðbólgan hefur vissulega sett allar okkar áætlanir upp í loft. Sú góða saga sem við höfum haft frá að segja síðustu ár er fljót að hverfa í gleymskunnar dá, ef svo má segja. Ég vil því koma hér inn á það og segja að við höfum svo sannarlega haft góða sögu að segja og þegar við náum aftur niður og tökum á verðbólgunni er engin ástæða til annars en að gera ráð fyrir því að sú góða saga hafi framhald. Við, líkt og fjöldi annarra landa í Evrópu, lentum í mótvindi sem við ætlum okkur þó að komast í gegnum. Það munum við gera með samhentu átaki allra. Af því tilefni hefur ríkisstjórnin sett fram áætlanir um metnaðarfullar og markvissar aðgerðir til þess að ná tökum á ástandinu og verðbólgunni og í því samhengi er lögð áhersla á að beita frekari ráðstöfunum á tekjuhliðinni, sækja tekjur til þeirra atvinnugreina sem standa sterkt ásamt því að draga úr skattaívilnunum þar sem mikil þensla er fyrir. Í núverandi ástandi er mikilvægt að hægja tímabundið á hagkerfinu og spara. Þetta eru vissulega ekki skemmtilegar aðgerðir en eru nauðsynlegar þegar þörf er á því að sýna ráðdeild og aðhald í ríkisrekstri. Fjármálaáætlun gerir ráð fyrir sparnaði í ríkisrekstri með það að markmiði að draga úr verðbólguþrýstingi. Það er aðhald á næsta ári upp á 8,8 milljarða með auknum sparnaði í rekstri stofnana, sérstöku viðbótaraðhaldi á aðalskrifstofu ráðuneyta og frestun fjárfestinga. Í dag vegna þenslu er vandasamt að ráðast í kostnaðarsamar framkvæmdir, hvort sem það er fyrir ríki, sveitarfélög eða almenning í landinu. Það mun þó birta til á ný og það ástand mun skapast að það verður skynsamlegt og raunhæft aftur að ráðast í brýnar fjárfestingar og nauðsynlegar framkvæmdir.

Hér eru lagðar fram aðgerðir sem hafa það að markmiði að draga úr opinberum útgjöldum en það mikilvægasta er að allar þessar aðgerðir miða að því að skerða ekki heilbrigðis- og grunnþjónustu í landinu. Um þá þjónustu ætlar ríkisstjórnin að standa vörð. Afkomutryggingakerfin og velferðarþjónusta eru áfram undanþegin aðhaldi og engin aðhaldskrafa er gerð á almannatryggingar, atvinnuleysistryggingar, sjúkratryggingar og heilbrigðis- og öldrunarstofnanir. Þá er aðhaldsmarkmið í rekstri framhaldsskóla og háskóla lægra en almennt aðhald, eða 0,5%, og felld er niður aðhaldskrafa á fangelsismál og löggæslu á árunum 2024 og 2025. Ríkisstjórnin mun áfram styðja þá hópa sem erfiðast eiga með að mæta áhrifum verðbólgunnar og vaxtahækkana. Til að verja kaupmátt elli- og örorkulífeyrisþega verða bætur almannatrygginga hækkaðar á miðju ári um 2,5%. Til að húsnæðisbætur skerðist ekki á móti er frítekjumark húsnæðisbóta jafnframt hækkað um 2,5% afturvirkt frá og með 1. janúar 2023. Hvort tveggja er til viðbótar við 7,4% hækkun í upphafi árs.

Síðustu misseri hef ég fjallað mikið um stöðuna í húsnæðismálum og viðrað áhyggjur mínar af stöðunni á húsnæðismarkaði til framtíðar ef ekkert yrði að gert, þ.e. að afleiðingarnar yrðu hátt fasteigna- og leiguverð sem á endanum myndi að óbreyttu leiða til aukins þrýstings á verðbólgu. Það er því mjög jákvætt að ríkisstjórnin hafi kynnt raunverulegar og skynsamlegar aðgerðir um kröftuga húsnæðisuppbyggingu inn í úrræði sem munu gagnast þeim hópum samfélagsins sem hafa átt hvað erfiðast með að koma þaki yfir höfuðið á undanförnum árum. Það er auk þess sérstakt fagnaðarefni að verið er að tvöfalda stofnframlög til uppbyggingar leiguíbúða innan almenna íbúðakerfisins, auk þess sem framlög til hlutdeildarlána verða aukin enn frekar. Í stað þess að 500 íbúðir verði byggðar árlega árin 2024 og 2025 með stuðningi ríkisins verða þær 1.000. Þessar aðgerðir telja og það hjálpar svo sannarlega til. Auk þess verður 250 nýjum íbúðum bætt við fyrri áætlun þess árs og verða þá samtals 800. Þetta styður augljóslega og klárlega við aukið framboð á húsnæðismarkaði.

Hér er um tvíþættar aðgerðir að ræða, annars vegar stofnframlög sem eru veitt til byggingar og kaupa á hagkvæmum leiguíbúðum og hins vegar aukin framlög til hlutdeildarlána sem veitt eru til kaupa á nýjum íbúðum og standa til boða fyrstu kaupendum sem eru undir tilteknum tekjumörkum. Á mannamáli má segja að þetta þýði að það verður farið í stórátak í uppbyggingu hagkvæmra íbúða fyrir þann hóp samfélagsins sem hefur, eins og við öll vitum, staðið einna verst og hefur átt erfitt uppdráttar á fasteignamarkaðnum.

En staðan á leigumarkaðnum hefur líka verið erfið vegna ástandsins og þar er mikilvægt að koma á stöðugleika. Samhliða þeim aðgerðum sem ég hef hér farið yfir er unnið að lagabreytingum sem munu tryggja betur réttarstöðu leigjenda á húsnæðismarkaði en búast má við tillögum þess efnis fyrir 1. júlí nk., auk þess sem frítekjumark húsnæðisbóta leigjenda verður hækkað um 2,5% fyrir yfirstandandi ár, afturvirkt frá 1. janúar sl., til viðbótar við hækkun þess í upphafi árs, sem var 7,4% eins og áður hefur komið fram. Einnig til að draga úr þrýstingi á húsnæðismarkaði á að gera breytingar á lagaumhverfi heimagistingar.

Allar þessar aðgerðir eru til þess fallnar að létta á þrýstingi, jafna stöðuna og á endanum draga úr verðbólgu til lengri tíma. Við verðum þó að gæta okkar á því að leysa ekki eitt vandamál með því að skapa nýtt vandamál á öðrum stað. Við erum með atvinnugrein, ferðaþjónustuna, sem hefur vaxið mikið á undanförnum árum og það þarf að huga að henni í allri þessari vinnu.

Virðulegi forseti. Undir forystu Sigurðar Inga Jóhannssonar, hæstv. innviðaráðherra, hafa verið kynnt metnaðarfull markmið um uppbyggingu 35.000 íbúða til ársins 2032 í samvinnu við sveitarfélögin í landinu. Vinnan felst m.a. í því að kortleggja lóðir sem eru til staðar, hvort sem það eru nýbyggingarsvæði eða þéttingarreitir, og gera kostnaðarmat svo að hægt sé að byggja íbúðir á viðráðanlegu verði fyrir almenning. Hér er um að ræða mikla vinnu þar sem verið er að greina stöðuna á íslenskum íbúðamarkaði og nú í fyrsta skipti eru til haldbær gögn til að styðjast við og vinna áfram út frá. Við vitum að til þess að raunveruleg uppbygging eigi sér stað sem stenst þann metnaðarfulla tímaramma sem hefur verið kynntur þarf að tryggja nægilegt framboð lóða á næstu misserum. Sveitarfélög þurfa, og ég hef sagt það áður, að hafa svigrúm og getu til þess að brjóta nýtt land samhliða því að þétta byggð með skynsamlegum hætti. Þannig og einungis þannig munum við komast í mark í því mikilvæga verkefni sem við stöndum frammi fyrir

Þær aðgerðir sem ríkisstjórnin hefur kynnt og ég hef farið hér yfir eru raunverulegar og þær eru klárlega skref í hárrétta átt varðandi uppbyggingu húsnæðis á næstu árum. Nú þurfa allir að taka höndum saman því með samhentu átaki er hægt að koma í veg fyrir þá sviðsmynd sem ég hef ítrekað haldið á lofti, að aukinn skortur og samdráttur í uppbyggingu íbúða muni koma í bakið á okkur með miklum áhrifum á fasteigna- og leiguverð sem síðar mun leiða til hárrar verðbólgu. Það er ástand sem við megum ekki undir nokkrum kringumstæðum láta raungerast. Það er auðvitað þannig að húsnæði er ein af grunnþörfum mannsins og hefur áhrif á allt okkar daglega líf. Það er óumflýjanlegt að staðan á húsnæðismarkaði verður áfram eitt af okkar stærstu viðfangsefnum næstu mánuði og þá sérstaklega í því verkefni að ná tökum á verðbólgunni til lengri tíma. Þrýstingur og ójafnvægi á húsnæðismarkaði snertir okkur öll með einum eða öðrum hætti og við sem störfum á vettvangi stjórnmálanna verðum að bera gæfu til þess að horfa til framtíðar og tryggja stöðugleika í húsnæðismálum. Með því að byggja meira um allt land náum við tökum á verðbólgunni, annars ekki.

Þessar aðgerðir sem ég hef farið yfir eru því risastórt og hárrétt skref í rétta átt og þeim aðgerðum ber að fagna.