Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[19:26]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum að fjalla um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar fyrir árin 2024–2028, þessa stórmerkilegu skáldsögu upp á 422 blaðsíður, eiginlega skáldsaga ársins ef ég á að segja alveg eins og er. Það furðulegasta við þessa skáldsögu er að stjórnarliðar eru búnir að vera hérna í dag að reyna að sannfæra einhverja þarna úti og okkur hér inni um að þetta sé ekki skáldsaga heldur sannleikur og allt sé rétt og flott í þessu. Þvílíkar hækkanir og þvílík yndislegheit. En því miður, það er ekki svo. Þeir hafa reynt að sannfæra okkur hér og ykkur um að þetta sé allt rosalega flott. Öryrkjar og aldraðir eiga að hækka og þvílík blómatíð og meira að segja, eins og kom hér fram rétt áðan, er verið að hæla sér af 2,5% aukahækkun til öryrkja um mitt sumar. Það voru 3% í fyrra í minni verðbólgu en 2,5% núna. Óskiljanlegt fyrirbrigði því ef eitthvað er þá ætti að vera meiri hækkun í þessari verðbólgu sem er í dag, mun meira. 2,5% eru smáaurar í þessu samhengi. Þó að þannig hækkun geti verið ágætispeningur hjá hálaunafólki þá eru það smáaurar hjá þeim sem eru í lægstu þrepum almannatrygginga og ég tala nú ekki um þá sem fá 10% minna en lægsta ellilífeyri og krónu á móti krónu skerðingar ofan á það. En fyrir flesta eru þetta um 8.000 kr. og þá 5.000 kr. eftir skatta, það eru nú öll ósköpin.

Í allan dag hef ég verið að hlusta á stjórnarliða benda á og tala um hvað þetta séu alveg rosalega flottar hækkanir hjá þeim og meira að segja heyrði ég talað um að það færu 43 milljarðar í hækkanir til öryrkja og 36 milljarðar í hækkanir á þessu tímabili til aldraðra. Þetta eru auðvitað rosalega flottar tölur. En ég hef ekki heyrt einn einasta stjórnarliða, ekki einn, og engan hér í dag, tala á sama tíma um hvenær skerðingar verða. Samt er nýliðinn sá dagur þar sem var verið að senda 49.000 almannatryggingaþegum skerðingar upp á 8 milljarða kr., sem þeir þurfa að endurgreiða. Jú, það voru nokkrir sem fengu borgað til baka en þegar frá er dregið þá þarf að endurgreiða 5–6 milljarða inn í kerfið. Kemur það fram í þessari skáldsögu? Nei. Kemur það fram yfirleitt hjá stjórnarliðum? Nei. Þeir segja ekki frá því. Þeir reyna að hæla sér af því að þeir hafi sett rosalega mikið inn í kerfið og sérstaklega þegar hæstv. fjármálaráðherra talar um tíundir og tekjusöguna, lægstu tíund frá 2021. Það lifir enginn á því sem var gert 2021 í dag, 2023, ekki heldur á þeim launum sem hann fékk 2021. Hann lifir bara á laununum sem hann fær í dag og það gildir líka um þá sem eru þarna úti. Það er það sem við eigum að tala um og við eigum líka að tala um réttar tölur. Það er því miður aldrei í þessari skáldsögu, hvort sem það eru fjármálin frá ári til árs eða fjármálaáætlun, tekið tillit til þess sem er tekið af fólki til baka, í öllum þeim ótrúlegu skerðingarflokkum sem fjórflokkurinn hefur búið til hér á undanförnum áratugum, merkt og aukið í þennan bútasaumaða óskapnað þannig að það er gjörsamlega vonlaust að fylgjast með hvað þar er í gangi, enda er eina leiðin til að fá eitthvað vit í það og til að einhver geti svarað fyrir það í Tryggingastofnun að láta gervigreind svara fyrir sig.

Hér var talað um að staðan væri svo góð hjá ungu fólki sem var að kaupa sér íbúð, það væri að græða svo rosalega á því að kaupa, en það er ekki á sama tíma verið að segja frá því að þeir sem verst settir eru í því kerfi og trúðu því að lágvaxtalandið Ísland væri komið til að vera eru að borga allt upp í 200.000 kr. aukalega, bara aukalega. Fólk sem var í góðri trú um að það ætti að borga 160.000 kr. á mánuði er að borga 360.000 kr. á mánuði. Það er auðvitað alveg með ólíkindum að það skuli vera hægt að koma svona fram við fólk.

Þetta væri ekki staðan í dag ef það hefði verið hlustað á okkur í Flokki fólksins sem margoft, byrjuðum 2020, bentum þeim á að það þyrfti að taka á verðbólgunni. Verðbólgan kæmi, verðbólgudraugurinn myndi ganga aftur. Þau sögðust hafa fullt af lausnum til að redda því og það þyrfti engar áhyggjur að hafa af því. Þá vildum við taka húsnæðisliðinn út úr vísitölunni og festa vexti í 3%. Þá væri staðan allt önnur í dag. Nei, það mátti auðvitað ekki vegna þess að það þarf auðvitað að sjá til þess að þeir ríku og bankarnir græði.

En á sama tíma er verið að segja að tillögur okkar í Flokki fólksins séu ekki fjármagnaðar. Ég held að ríkisstjórnin ætti að líta sér nær vegna þess að við erum svo sannarlega með fjármagnaðar tillögur í þessari fjármálaáætlun og meira að segja afgang. Það væri hægt að bæta mjög vel í það, t.d. með því að hætta við að vera með utanríkisráðuneytið í rándýru snobbhill-bákni við höfnina, við hliðina á Hörpu, í húsi Landsbankans, marmarahöllinni þeirra sem kostar milljarða. Það mætti sleppa því. Þessi ríkisstjórn hefði líka getað fækkað ráðherrum og ráðuneytum en þau fjölguðu þeim og juku þar af leiðandi útgjöldin.

Það er hægt að gera ýmislegt, t.d. eins og með 400 milljónirnar sem við vorum að samþykkja í dag til svokallaðra frjálsra fjölmiðla. Frjálsir fjölmiðlar sem nú er komnir á á ríkisjötustyrk. En það hefur enginn t.d. talað um það hvernig við í ósköpunum getum leyft okkur að láta fólk sem á ekki til hnífs og skeiðar, á ekki fyrir mat, borga afnotagjöld af RÚV. Og ef við látum það fólk á annað borð borga afnotagjöld, af hverju látum við það borga jafn há afnotagjöld af RÚV eins og menn sem eru með milljón í laun? Ég var með frumvarp um það að við ættum að láta umferðarsektir fylgja launum, prósent af launum í sektir. Ég heyrði frétt um daginn að í Finnlandi, það var að vísu á hluta af Álandseyjunum en innan finnsku landamarkanna, tóku þeir einn forríkan fyrir of hraðan akstur. Hann var á 80 km hraða þar sem 50 km voru leyfilegir. Á Íslandi hefði hann fengið smá sekt, sömu sekt og sá sem fær einhverjar 200.000 kr. útborgað, en í Finnlandi fékk hann 14 millj. kr. sekt, takk fyrir. Hann var búinn að fá 40 millj. kr. sekt á stuttum tíma fyrir of hraðan akstur. Þetta var auðmaður. Hann þurfti að borga hlutfallslega það sama og sá sem er á lægstu laununum. En hér á Íslandi er alltaf verið að pína þá sem eru á lægstu laununum og það er aldrei tekið tillit til þessa ótrúlega óréttlætis fyrir þá sem varla hafa til hnífs og skeiðar, eiga ekki fyrir mat, þurfa jafnvel að fara í raðir hjá hjálparstofnunum þar sem auðvitað eru ekki til 400 milljónir eins og hægt var að henda í þessa frjálsu fjölmiðla. Nei, þeir skulu sko ekki fá það af því að það eru ekki til peningar. En eins og hendi er veifað, 400 milljónir hér, 3 milljarðar í Snobbhill, ekkert vandamál. Þá eru sko til peningar.

Ég held að þetta segi okkur það og staðfesti það sem ég var að segja áðan: Þetta er alveg stórkostleg skáldsaga og ég ráðlegg öllum sem eru með svefnvandamál að lesa hana fyrir svefninn.