fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Mig langar að leggja orð í belg varðandi þessi fjármálaáætlun sem ég var reyndar búinn að ræða aðeins um í fyrri umræðu þegar hún var lögð fram. Ég taldi að gerðar yrðu á henni einhverjar breytingar, svona miðað við orð ráðamanna um að hér væri allt að verða svo gott. Það væri svo mikill tekjuauki núna að þetta væri allt í lukkunnar velstandi. Þannig að ég taldi að það væri eðlilegt miðað við orð ráðamanna að þær breytingar sem þeir segja að séu að verða eða séu orðnar staðreynd væru skrifaðar inn í fjármálaáætlunina, það væri ekki hægt að koma hér og halda því fram að afkomubatinn væri 90 milljarðar á meðan það er síðan ekki skrifað inn í áætlanir. Auðvitað byggja áætlanir framtíðarinnar á raunveruleika dagsins í dag. Þess vegna væri eðlilegt ef það sést breyting á stöðunni að það sé skrifað inn í áætlun t.d. næsta árs, af því að vonandi verður hallinn ekki jafn mikill og boðað hefur verið. Þess vegna er eðlilegt að við fáum að sjá hvernig þetta lítur út ef þetta er skrifað inn í þá áætlun sem við ætlum að fjalla um, bæði í fjárlagagerðinni í haust og síðan í áætlun til næstu fimm ára. Það væri eðlilegt að þetta væri skrifað þar inn.
Mikið hefur verið talað um hagvöxt, 6,5%, ótrúlega góð staða. En þegar maður fer að skoða þetta af einhverri dýpt, þegar maður fer að meta viðskiptahalla er hægt að reikna hann upp á sirka 80 milljarða á síðasta ári, þar sem við erum þá í skuld við útlönd, sem er þá eitthvað sem við þurfum annaðhvort að borga með auknum lántökum eða bara hreinlega gengisfellingu ef við ætlum að rétta þetta af, ná einhverju jafnvægi þarna.
Það eina sem maður sér í þessum aðgerðum sem var verið að boða núna um daginn er það sem var kallað að koma fjármálareglum í samband á nýjan leik ári fyrr en ætlað var. Þarna er verið að tala bæði um skuldareglu og jafnvægisreglu sem ekki bara ríkið þarf að undirgangast heldur sveitarfélögin líka. Þegar ríkið segir: Við ætlum að setja fjármálareglurnar í gang ári fyrr, þá spyr maður: Er það gert í samráði við sveitarfélögin og voru sveitarfélögin tilbúin í það að þetta yrði gert ári fyrr, hafandi miðað við að fjármálareglur færu í gang, held ég, árið 2025? Mér er það til efs að sveitarfélögin hafi verið undir það búin að fjármálareglur yrðu teknar upp ári fyrr.
Það eru fjölmargar umsagnir um þessa fjármálaáætlun og þær eiga það nánast allar sammerkt að það eru allir óánægðir með þetta. Það er enginn ánægður með fjármálaáætlunina og það vekur auðvitað athygli þegar aðilar vinnumarkaðarins á sitthvorum vængnum, bæði Alþýðusambandið og Samtök atvinnulífsins, Félag atvinnurekenda, Viðskiptaráð, þegar þau eru sammála um að aðhaldið í þessari fjármálaáætlun sé ekki nægt. Síðan hefur fjármálaráð ítrekað það mat sitt að sjálfvirkir sveiflujafnarar fái að vinna sitt verk og að fjármálastefnan styðji betur við aðgerðir í peningamálum við núverandi aðstæður. „Með því móti fæst meiri stöðugleiki í efnahagsmálum. Því er mikilvægt að ný fjármálaáætlun fyrir árin 2024–2028 gangi eftir, en þar er teflt á tæpasta vað hvað afkomuna varðar, að óbreyttum þjóðhagsforsendum.“
Mér þykir eftirtektarvert að sjá fyrirsögn umsagnar Samtaka atvinnulífsins þar sem yfirskrift umsagnarinnar er: „Froðunni fleytt“. Um hvaða froðu er þá verið að tala? Ég held að ég geti náð að átta mig á því þegar ég velti fyrir mér hagvextinum á þessu ári og ætluðum hagvexti á næsta ári. Það er mikill munur þar á. Það er ekki er hægt að sjá að þessi hagvaxtarbati sem er núna verið að tala um muni lifa eitthvað í framtíðinni þannig að frumjöfnuður, eins og oft og einatt er verið að tala um, sem er jákvæður á þessu ári, haldi sér út þetta tímabil af því að hagvöxturinn verður ekki eins í framhaldinu. En útgjöldin eru auðvitað komin á sinn stað. Ég get ekki séð að það sé verið að taka neitt til í rekstri ríkisins, alla vega ekki enn þá, þannig að maður sér ekki þennan afkomubata. Ég er ekki með sömu glýju í augunum og þeir sem sitja í ríkisstjórn.
Mig langar, af því að tíminn er nú takmarkaður í þessu, að nefna það sem ég skrifaði m.a. um í blaðagrein og nefndi í umræðu hér við hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra þegar fjármálaáætlunin var kynnt. Það varðar það að það á að bæta kjör öryrkja og talað um að gert sé ráð fyrir 16,3 milljörðum á tímabili áætlunarinnar vegna heildarendurskoðunar örorkulífeyriskerfisins. En það sem á að gera er að það á að færa til fjármuni sem ætlaðir voru og hafa verið nýttir í að jafna örorkubyrði milli lífeyrissjóða sem hafa misjafna örorkubyrði. Hún er misjöfn í lífeyrissjóðunum vegna þess að þeir eru í eðli sínu ólíkir. Það eru lífeyrissjóðir sem eru með félagsmenn innan borðs sem hafa unnið erfiðisvinnu og eru slitnir og þreyttir og hafa þurft að fara á örorku. Þeir lífeyrissjóðir bera miklu hærri og meiri örorkubyrði en aðrir — það er vont að kalla þetta byrði, það er ekki fallegt orð. Þeir þurfa að borga meira í örorkubætur en aðrir lífeyrissjóðir og um það var samið á árinu 2005 að svona yrði þetta gert. Í kjarasamningum 2005 var ákveðið að gera þetta með þessum hætti; að ríkið legði til fjármuni til að jafna þessa örorkubyrði. Það sem er að gerast núna er að hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra ætlar að taka þetta til baka, sem þýðir bara það að þeir sem eru að fá greitt úr lífeyrissjóðunum verða fyrir skerðingu hjá þessum sjóðum sem bera þessa miklu örorkubyrði. Mér finnst það algjörlega ótækt að verið sé að nýta þessa fjármuni, sem hafa í gegnum kjarasamninga verið nýttir á þennan hátt, til þess að gera það sem búið er að lofa, að bæta réttindi öryrkja. Mér finnst það algerlega ótækt að það sé framkvæmt með þessum hætti. Við sáum hvernig þetta gerðist, þetta var framlag af tryggingagjaldi á sínum tíma og keyrt inn á þremur árum, 2007, 2008 og 2009, og hefur gilt allar götur síðan. En einhverra hluta vegna telur félagsmálaráðherra Vinstri grænna að það sé allt í lagi að taka af þeim hópi, sem stendur bara mjög illa, hefur kannski litlar örorkubætur, og skerða þá réttindi þeirra eða skerða möguleika lífeyrissjóðsins þeirra til að borga örorkubætur úr þeim sjóði. Þetta er eitthvað sem þarf að skoða.
Ég veit að Alþýðusambandið gerði athugasemd við þetta í sinni umsögn og mér fyndist vera góður bragur á því að draga þetta til baka. Það er ótækt að fella niður jöfnun á örorkubyrði sem fékkst í gegnum kjarasamninga á sínum tíma.