Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

Land og skógur.

858. mál
[19:48]
Horfa

Birgir Þórarinsson (S):

Herra forseti. Ég mæli fyrir breytingartillögu við frumvarp til laga um Land og skóg. Tillagan hljóðar þannig að í stað orðanna Land og skógur í 1. gr. og sömu orða hvarvetna annars staðar í frumvarpinu komi í viðeigandi beygingarfalli: Folda.

Við þá sameiningu sem nú stendur fyrir dyrum og frumvarp þetta mælir fyrir um koma saman í eina stofnun stofnanir sem til þessa hafa starfað sjálfstætt á sviði landgræðslu og skógræktar. Mikilvægt er að stofnunum ríkisins séu valin heiti sem séu í senn þjál og lýsandi fyrir starfsemina. Breytingartillagan, eins og ég segi, herra forseti, lýtur að því að hin nýja stofnun fái heitið Folda. Þegar litið er á markmið starfseminnar, sem felur í sér að græða íslenska fold í þágu landverndar og komandi kynslóða, er vel við hæfi að velja stofnuninni heitið Folda. Ég vona að þingheimur sé mér sammála.