Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

Land og skógur.

858. mál
[19:50]
Horfa

Orri Páll Jóhannsson (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vildi bara nota tækifærið og fá að koma aðeins hingað upp sem framsögumaður þessa máls. Þetta sýnir kannski hvað best hvernig hlutirnir geta tekið ýmsum snúningum á síðustu metrum ef vilji er til. Ég þakka hv. þingmanni fyrir að hafa lesið æði vandað nefndarálit, þó að ég segi sjálfur frá, þar sem því eru gerð góð skil að nafn á nýrri stofnun kom til töluverðrar umræðu í nefndinni, bæði á grundvelli innsendra umsagna en líka vegna þess að þetta hafði verið til umræðu í aðdraganda þessarar stofnunar sem töluverður aðdragandi hefur verið að. Nú erum við komin á þann punkt að geta sameinað þessar tvær stofnanir, sem er vel og ríkur stuðningur við eins og við finnum. Þetta er, svo að ég segi það nú hér, eitt af þeim nöfnum sem mér leist hvað best á af þeim tillögum sem komu til nefndarinnar. Ég held að það séu ágætisrök fyrir þessari tillögu hv. þingmanns og enn og aftur þakka ég honum fyrir að bera hana fram hér. Ég lýsi mig samþykkan henni. Það var reyndar önnur sem var reifuð, sem var Flóra, sem hefði alveg getað átt við miðað við lýsinguna hjá hv. þingmanni fyrir þessu heiti. Ég held þetta sé fallegt heiti. Ég tek undir rökstuðning hv. þingmanns og ég held að það væri mikill sómi að því að við horfðum á það með opnum hug að skoða þessa ágætu tillögu hjá hv. þingmanni og þakka fyrir hana.