Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

Land og skógur.

858. mál
[19:51]
Horfa

Þórunn Sveinbjarnardóttir (Sf):

Hæstv. forseti. Já, seint koma sumir en koma þó. Þetta mál var rætt mjög ítarlega í hv. umhverfis- og samgöngunefnd eins og hér hefur komið fram hjá hv. þm. Orra Páli Jóhannssyni sem er framsögumaður hins æði vandaða álits sem fullkomin samstaða er um í nefndinni. Það er ástæða til að geta þess hér að það var til mikillar fyrirmyndar hvernig tókst að ná utan um málið í nefndinni og að við skyldum ná saman um þessar mjög svo mikilvægu breytingar. Ég ætla kannski ekki að fara langt aftur í söguna en þó samt að minna þingmenn á að við erum að tala um stofnanir sem starfað hafa í meira en 100 ár, fyrst Sandgræðsluna og síðan Skógræktina sem varð að Skógrækt ríkisins, og löngu tímabært að sameina starfsemi þessara góðu stofnana. Og bara svo að það komi fram, eins og stendur auðvitað líka í álitinu, þá er það skilningur okkar allra að starfsfólk og starfsemi hinnar nýju stofnunar, eðli málsins samkvæmt, verði um allt land eins og hún þarf að vera og að gætt verði að því að jafnvægið á milli þessara tveggja mikilvægu stofnana verði gott í starfsemi hinnar nýju stofnunar. Nú er það þannig að þegar við ráðumst í svona viðamiklar breytingar og búum í raun til nýjan vinnustað skiptir mjög miklu máli að vel takist til og þetta er í raun bara fyrsta skrefið í því að gera það. Öll vinnan er eftir hjá starfsfólki stofnananna við að búa til nýja stofnun af því að það þarf að gerast og það þarf að gefa sér tíma til þess.

Ég tók auðvitað þátt í umræðunni um heitið. Eins og hér hefur komið fram var ýmsu fleygt í púkkið, ef þannig má að orði komast, um það hvað þessi nýja stofnun ætti að heita. Niðurstaða nefndarinnar var að vísa í land og skóg, m.a. vegna þess að það vísar í heiti beggja stofnananna sem nú verða að einni nýrri. Ég var, eftir að hafa hugsað málið nokkuð vel, á því að það væri farsæl lending að hin nýja stofnun héti Land og skógur og væri að því leyti þeim gæðum merkt sem íslenskan gefur okkur að heiti geta verið mjög gagnsæ og lýsandi fyrir það sem verið er að sýsla með. Ég hef ekkert á móti Foldu þannig séð, heldur ekki Storð eða Flóru eða öðrum nöfnum sem nefnd voru í umfjöllun okkar, en ég held samt, og ætla þá að leyfa mér að vera íhaldskonan í þessum sal í kvöld, að við eigum ekki að umpólast og kalla hana Foldu heldur að stofnunin fái að heita Land og skógur af því að stofnunin snýst líka um fleira en sig sjálfa og fólkið sem starfar þar, hún snýst líka um að fólkið í landinu hafi einhverja hugmynd um hvað þar fari fram og mjög margir tengja sterkt við bæði skógrækt og landgræðslu. Að þessu sögðu þá kemur það auðvitað bara í ljós í lýðræðislegri atkvæðagreiðslu hvert verður nafn hinnar nýju stofnunar. Ég ætla nú samt að fá að segja að ég er ekkert endilega viss um að það að gefa einhverju nafn eigi að vera lýðræðislegt. En gott og vel. Tillagan er fram komin og það ber að þakka fyrir hana. Hún kallar á mjög góða umræðu og kannski gerir hún það að verkum að hver einasti þingmaður í þessum sal mun bæði þurfa að lesa þetta fína nefndarálit, kynna sér málið og koma sér upp menntaðri skoðun á því hvað hin nýja stofnun eigi að heita. En eins og ég segi, mér finnst hún eiga að heita Land og skógur.