heilbrigðisstarfsmenn.
Herra forseti. Þetta mál um heilbrigðisstarfsmenn fjallar um hámarksaldur heilbrigðisstarfsmanna ríkisins. Verði frumvarpið samþykkt þá leyfir það að heilbrigðisstarfsmenn sem hafa náð 70 ára aldri geti unnið lengur, allt að 75 ára aldri, ráðnir þá tvö ár í senn en ekki lengur en til 75 ára aldurs. Þetta er eitt pínulítið skref í því að reyna að koma til móts við þann mönnunarvanda sem við okkur blasir. Margir sem hafa náð 70 ára aldri eru með fullt starfsþrek og vilja sjálfir gjarnan vinna lengur og fyrir þá er þörf í heilbrigðisþjónustunni og þetta þekkjum við allt saman vel.
Gallinn við þetta frumvarp er hins vegar sá að þessir eldri starfsmenn verða ódýrari fyrir stofnanirnar en yngri starfsmenn vegna þess að við 70 ára aldur þá tekur LSR ekki við iðgjaldi, hvorki frá starfsmanninum sjálfum né atvinnurekanda. Eftir 70 ára aldur er ekki gert ráð fyrir því að starfsmaður greiði í samtrygginguna eða afli sér frekari lífeyrisréttinda. BHM bendir á að hjá flestum þeirra félagsmönnum séu þetta um 11,5% sem launagreiðandi greiðir að þessu leyti. Þetta er tilgreint í kjarasamningum og þeir eru mismunandi en flestir eru með þetta í kringum 11,5–12% sem er akkúrat sú hlutfallstala sem gerir þessa starfsmenn ódýrari fyrir stofnunina.
Okkur sem erum flytjendur breytingartillögu við þetta frumvarp finnst vanta að á þessu sé tekið, bæði að það sé ekki þannig að þessir starfsmenn verði ekki bara eldri en aðrir og líka ódýrari fyrir atvinnurekendurna heldur sé einhver gulrót fyrir þessa eldri starfsmenn til þess einmitt að vinna lengur hafi þeir til þess vilja og þrek. Þess vegna leggjum við til að framlag launagreiðanda, sem kveðið er á um í kjarasamningi, megi greiða í séreignarsjóð þannig að það færi inn í séreignarsjóði viðkomandi starfsmanns sem hann þyrfti þá ekki að borga skatt af fyrr en hann fengi greitt út úr séreignarsjóðnum eins og með aðra aura sem þangað hafa verið sendir.
Þetta væri búbót. Það má hugsa sér þetta sem búbót fyrir heilbrigðisstarfsmennina sem myndu fallast á að vinna lengur en til 70 ára aldurs og þeir myndu kosta það sama fyrir stofnanirnar og aðrir starfsmenn. Þetta held ég að sé afar mikilvægt mál og stéttarfélögin sem sendu inn umsagnir um þetta mál bentu á að þetta væri forsenda til að þau gætu hreinlega fallist á þetta, að það yrði tekið á lífeyrissjóðsmálunum á móti og það yrði ekki brotið í rauninni á starfsmönnunum með því að fara ekki eftir kjarasamningum að þessu leyti.
Við fórum í gegnum 2. umr. um þetta mál og svo þegar kom að atkvæðagreiðslunni þá var kallað eftir því að málið færi aftur inn til nefndar til 3. umr. Hæstv. heilbrigðisráðherra og þeir hv. stjórnarþingmenn sem tjáðu sig um atkvæðagreiðsluna gerðu það á þann veg að ég gat ekki skilið þá öðruvísi en að þau skildu nákvæmlega út á hvað málið gekk og fyndist í rauninni mikilvægt að mæta þessu en vildu bara ekki gera það núna heldur einhvern tímann seinna og eitthvað heildstætt og svona. Ég vonaðist til að það væri kannski hægt að hafa áhrif á þá; alveg eins og þeir sem styðja frumvarpið geta horft á þennan ákveðna hóp ríkisstarfsmanna og breytt aldursviðmiðuninni fyrir þennan hóp, þá gætu þeir líka breytt lífeyrisgreiðslunum fyrir þennan hóp að sama skapi og látið það bara passa saman í þessu tímabundna verkefni.
Það er skemmst frá því að segja að okkur sem flytjum þessa breytingartillögu tókst ekki að snúa stjórnarliðum að þessu leyti. Þeir vilja halda sig við að mismuna heilbrigðisstarfsmönnum hvað þetta varðar og fara sem sagt bónleiðina til eldri heilbrigðisstarfsmanna og segja: Við þurfum á ykkur að halda ef þið hafið þrek og vilja til að vinna hérna áfram, gerið það fyrir okkur, við erum hér í miklum mönnunarvanda sem er eitt helsta heilbrigðisvandamál sem við okkur blasir en við ætlum að láta ykkur hafa aðeins minna úr býtum. Þetta er ekki góð niðurstaða, forseti, og því miður mikil skammsýni hjá hv. stjórnarliðum að horfa ekki til þess sem stéttarfélögin kalla á. Málið væri bara ágætt og ég er viss um að það væri fullkomin sátt um það ef þessi breytingartillaga, sem fer nú aftur til atkvæðagreiðslu sennilega á morgun, yrði samþykkt. En svona er þetta. Það eru ekki allar ferðir til fjár og þessi nefndarfundur í velferðarnefnd var ekki til fjár fyrir þennan hóp heilbrigðisstarfsmanna sem vilja hugsanlega vinna lengur en til 70 ára aldurs.