Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.

941. mál
[20:49]
Horfa

Frsm. minni hluta um.- og samgn. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Hæstv. forseti. Ég geri hér grein fyrir nefndaráliti frá minni hluta umhverfis- og samgöngunefndar. Undir það rita auk mín hv. þingmenn Andrés Ingi Jónsson og Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir. Það eru í sjálfu sér ekki deilur um frumvarpið sem hér er til umfjöllunar og voru það ekki í hv. umhverfis- og samgöngunefnd. Málið fékk vandaða umfjöllun og gestakoma var eins og tilgreint er í nefndaráliti meiri hlutans en okkur þótti rétt í minni hluta nefndarinnar að nálgast málið kannski með eilítið öðrum hætti en meiri hlutinn gerir.

Það er ljóst að mest púður hefur farið í umræðuna um svokallað varaflugvallargjald í þessu frumvarpi. Eins og fram hefur komið á það sér eldri rætur og hefur verið ætlað til þess að byggja upp innanlandsflugvelli sem jafnframt nýtast sem varaflugvellir í millilandaflugi. Frumvarpinu er sem sagt ætlað að tryggja fjármögnun uppbyggingar innviða á innanlandsflugvöllum þannig að þeir geti gegnt hlutverki sem varaflugvellir fyrir Keflavíkurflugvöll með fullnægjandi hætti. Eins og fram hefur komið í máli hv. framsögumanns meiri hlutans lá fyrir nefndinni minnisblað frá Isavia þar sem er fullyrt að uppsöfnuð fjárþörf til viðhaldsframkvæmda á innanlandsflugvöllum sé 16 milljarðar kr.

Okkur í minni hlutanum þykir mikilvægt að taka fram að þegar varaflugvallargjaldið var lagt af endanlega með breytingu á lögum árið 2011, og það var gert, ef ég man rétt, vegna ábendinga frá ESA, að gjaldið var aðeins lagt á innanlandsflug en ekki millilandaflug. Það stóðst ekki samkeppniskröfur. Þetta var sem sagt gert fyrir rúmum tíu árum og það má lesa í nefndaráliti samgöngunefndar þess tíma, á 139. löggjafarþingi ef ég man rétt, með leyfi forseta:

„Samkvæmt athugasemdum í greinargerð frumvarpsins munu tveir skattstofnar falla niður við framangreinda samræmingu, þ.e. flugvallaskattur og varaflugvallargjald. Við niðurfall skattstofnanna hækkar gjaldskrá ISAVIA ohf. sem þeim nemur en þjónustusamningur fyrirtækisins og fjármálaráðuneytisins að sama skapi lækka og staða ríkissjóðs þannig verða óbreytt.“

Það er mikilvægt að þetta komi fram vegna þess að mér fannst það ekki alveg ljóst í upphafi umfjöllunar nefndarinnar um þetta frumvarp — í fyrsta lagi auðvitað jú, flestum var kunnugt um að áður hefðu verið lögð á sambærileg gjöld. Það er alveg rétt. Þau voru lögð af vegna þess að ekki var gætt jafnræðis í innheimtu þeirra. En það sem ég a.m.k. hafði ekki gert mér grein fyrir var að hv. samgöngunefnd þess tíma og þeir þingmenn sem í henni sátu töldu í raun að breytingin myndi ekki fela í sér lækkun framlaga til Isavia, þ.e. að félagið, þetta opinbera hlutafélag, myndi afla fjárins með öðrum hætti og bæta sér þannig upp niðurfellingu skattstofnanna. Það hefur líklega ekki verið gert, alla vega ekki með fullnægjandi hætti og afleiðing þess er sú, og hún er skjalfest af Isavia, að uppsöfnuð fjárþörf vegna viðhaldsframkvæmda við flugvelli innan lands er heilir 16 milljarðar kr.

Mér finnst þetta svolítið alvarlegt mál og það er ekki kannski þannig að við höfum verið að ræða það til hlítar í umfjöllun nefndarinnar um þetta frumvarp, enda varðar þetta mál miklu frekar starfsemi Isavia, opinbers hlutafélags, og hvernig því er stýrt og hvernig fjárfestingum er þá forgangsraðað innan þeirra fjárheimilda sem félagið hefur. Ég er þeirrar skoðunar að það segi okkur að við þurfum, fjárveitingavaldið og löggjafinn, að stýra með betri hætti hvernig þessi starfsemi fer fram þó að um opinbert hlutafélag sé að ræða. Það þarf að finna út úr því hvernig við gerum það af því að mér finnst ekki viðunandi að 11–12 árum eftir að gamla varaflugvallargjaldið var lagt af, og fram kemur að skilningur löggjafans er sá að félagið muni afla þessa fjár með þjónustugjöldum með öðrum hætti, þá stöndum við frammi fyrir því — og þetta eru ekki litlar upphæðir, 16 milljarðar kr. eru ekki litlar upphæðir — að féð vantar hreinlega.

Ég held að við í hv. umhverfis- og samgöngunefnd ættum að rýna betur hvernig svona gerist og það eru fleiri opinber hlutafélög sem Alþingi þarf, held ég, að íhuga alvarlega hvernig hægt er að setja betri ramma utan um eigendastefnu eða annað þar sem kemur skýrar fram t.d. forgangsröðun fjárfestinga, vilji löggjafans sé skýr um það í hvaða framkvæmdir eigi að fara fyrst o.s.frv. Þetta er auðvitað ekki einfalt mál en ég held að það sé vel þess virði að við gefum okkur tíma til að ræða það betur.

Eins og fram hefur komið liggur fyrir að gjaldið sem slíkt er að sjálfsögðu skattlagning og engar deilur um það þó að það kallist gjald. Það leggst á flugrekendur og upphæð þess tekur mið af fjölda farþega í innanlands- og millilandaflugi. Samkvæmt frumvarpinu er gert ráð fyrir því að varaflugvallargjaldið renni einungis til þriggja flugvalla, Reykjavíkurflugvallar, Akureyrarflugvallar og flugvallarins á Egilsstöðum. Það hlýtur þá að þýða að gjaldtakan fari til framkvæmda á þessum þremur flugvöllum og þar með losni fjármagn til að byggja upp aðra innanlandsflugvelli þannig að það verður að vera skilningur löggjafans, tel ég, og má ekki fara á milli mála og því þarf auðvitað að koma skýrt til skila til Isavia, að það sé vilji okkar sem erum væntanlega að fara að afgreiða þetta frumvarp hér í þinginu á morgun.

Það verður heldur ekki hjá því komist að benda á að í athugasemdum fjölmargra umsagnaraðila kom fram að hugtakið varaflugvöllur væri í sjálfu sér ekki skilgreint með einhlítum hætti. Sú skylda er á flugrekanda að skilgreina varaflugvöll fyrir hverja flugferð. Mér skilst að það gerist jafnvel þegar vélin er komin á loft, aðrir þekkja það betur en ég, en mjög margir erlendir flugrekendur skrá varaflugvelli í Skotlandi og Kanada frekar en að skrá þá hér, að mér skilst, en ég geri ráð fyrir að stærstu flugfélögin hér á landi skrái þá frekar Akureyri og Egilsstaði sem varaflugvelli og/eða Reykjavík. Á þetta er bent hérna til að minna okkur á að skilgreiningar skipta máli og hvernig við fjöllum um þetta mál. Í rauninni fjallar þetta mál um að afla skatttekna til þess að geta sinnt viðhaldi við innanlandsflugvelli, þá stærstu flugvellina eins og Reykjavík, Egilsstaði og Akureyri.

Minni hlutinn vill einnig koma því á framfæri og benda á að í umsögnum Umhverfisstofnunar og Landverndar er bent á að það sé engin tilraun gerð til þess í frumvarpinu að binda þessa gjaldlagningu við markmið Íslands í loftslagsmálum. Nefndinni var bent á, og það kom fram í umsögn Landverndar, að betri orkunýtni í flugsamgöngum, sem hefur sannarlega átt sér stað á síðustu áratugum, meira að segja mjög mikil bæting á orkunýtni í flugsamgöngum, hefur samt ekki leitt til samdráttar í losun gróðurhúsalofttegunda frá greininni af því að væntanlega fjölgar flugferðum og við kaupendur flugferðanna erum á faraldsfæti og svo eru auðvitað líka fraktflutningar og annað slíkt. En þetta er atriði sem skiptir mjög miklu máli af því að hugmyndin með betri orkunýtni er einmitt að þannig drögum við úr menguninni, að þannig drögum við úr útblæstrinum en bætum ekki í. En því miður hefur þetta þróast í ranga átt að mínu áliti og það má svo sem segja um annað er varðar loftslagsmálin og útblásturinn en það er nú efni í aðra ræðu.

Minni hlutinn vill einnig benda á að það hefur verið, eins og öllum er kunnugt, mikill vöxtur í ferðaþjónustu á síðustu árum, á síðasta áratug alveg sérstaklega, og ferðaþjónustan er orðin stærsta útflutningsatvinnugrein Íslands, mjög mikilvæg atvinnugrein og aflar mikilla tekna í ríkissjóð. Það er þó enn þá þannig að um hana hefur ekki verið settur rammi, alla vega sá rammi sem við í minni hlutanum teljum hana þurfa, þegar kemur að því að meta þolmörk ferðaþjónustu, þolmörk náttúrunnar vegna ferðaþjónustunnar og þess vaxandi fjölda ferðamanna sem koma til Íslands. Þessi fjöldi er mjög framboðsdrifinn og honum virðist vera stýrt af flugfélögunum, af sem sagt einkaaðilum sem sjá um flutning til landsins en hér þurfa stjórnvöld að setja mjög skýran ramma, bæði með það að meta þolmörkin og einnig reyndar, þótt það sé ekki beinlínis til umræðu hér, aðra gjaldtöku af ferðaþjónustunni sem er í samræmi við þær tekjur sem hún hefur og mikilvægi hennar í efnahagslífinu.

Hvers vegna tölum við um gjaldtökuna líka í þessu samhengi? Það er vegna þess að það er auðvitað mjög mikilvægt að byggja upp alla innviði vegna ferðaþjónustunnar, að sjálfsögðu innanlandsflugvellina, Vegagerðina og allt annað sem þarf að vera til staðar, þannig að við séum að sinna gestum okkar með sómasamlegum hætti og síðast en ekki síst að við höfum heildstæða sýn á það hvernig ferðamannaland við viljum að Ísland sé, hvernig ferðaþjónustu við viljum veita og að það sé alltaf forsenda þess sem við gerum að vernda náttúruna, sem er aðalástæða þess að fólk vill koma hingað og heimsækja landið. Hún er takmörkuð auðlind. Íslensk náttúra er takmörkuð auðlind á allan hátt, ósnortin víðerni alveg örugglega, og okkur ber að sjá til þess að um hana sé þannig gengið að hún bíði ekki skaða af fjölda ferðamanna hér á landi.

Heildstæðar lausnir eru það sem við hefðum viljað sjá í umræðunni um þetta mál. Flugumferðin er mjög mikilvægur þáttur í ferðaþjónustunni hér á landi en atvinnugreinin sem slík, uppbygging hennar og vöxtur getur ekki bara stýrst af vaxandi flugumferð. Ég held að við sjáum öll að það að það hafi setið á hakanum árum saman að sinna viðhaldi innanlandsflugvalla, eins og hefði þurft að gera, sýni okkur að við getum ekki haldið áfram með þessum hætti. Við þurfum að afla tekna til að sinna innviðunum, til að þeir grotni ekki niður heldur byggist upp og einnig að afla tekna til að sinna þeirri náttúruvernd sem er alger forsenda þess að hér geti blómstrað ferðaþjónusta til langs tíma.