uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir fína ræðu. Ég tek svo sannarlega undir það sem minnihlutaálitið snýst um og alvarleika þess sem er að gerast hér. Hv. þingmaður er mögulega með dagsetninguna á því hvenær þessi umræða fór fram í samgöngunefnd þess tíma en það virðist gilda um stofnanaminnið í þessu máli, hvort sem er á þingi eða hjá framkvæmdarvaldinu, að það hafi orðið einhver alvarlegur misbrestur á þessum tíma. Mig grunaði kannski að svo gæti orðið, þarna urðu miklar breytingar eftir að Flugmálastjórn Íslands hætti starfsemi 1. janúar 2007. Svo er það þessi nefnd og, minnir mig, þetta álit sem er á bak við og var það nefndin sem ákvað að þetta yrði gert þrátt fyrir mikinn fyrirvara frá starfsmönnum Flugstoða, sem hafði tekið við af Flugmálastjórn Íslands. Síðan varð til Keflavíkurflugvöllur ohf. og svo er þetta sameinað í maí 2010, Keflavíkurflugvöllur ohf. og Flugstoðir ohf. Þetta virðist allt vera að gerast á þessum sama tíma.
Þegar þetta kemur upp í nefndinni og hv. þingmaður fór að ræða þetta á fundum hennar þá þóttist ég þekkja ágætlega sögu þessa máls til 30 ára, en þetta hafði ég aldrei heyrt. Meira að segja í starfshópnum þegar við unnum að þessu í 18 mánuði frá sumrinu 2017 þar til við skiluðum af okkur í lok nóvember 2018 þá hafði nákvæmlega þetta aldrei komið fram neins staðar. Við vorum búin að komast að því að gjöldin á flugrekendur höfðu ekkert verið lækkuð en svo virtist vera sem þetta hefði allt runnið inn í Keflavíkurflugvöll. Mér finnst því alvarleikinn mikill og ég held að það sé ekki spurning að umhverfis- og samgöngunefnd taki þetta upp í haust. Reyndar er hv. þingmaður formaður þeirrar nefndar í þinginu, stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar, sem ætti mögulega að taka upp þetta mál og skoða sögu þess, vegna þess að alvarleikinn á bak við það er mikill að mínum dómi.