uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Virðulegi forseti. Ég þakka hv. þm. Njáli Trausta Friðbertssyni fyrir andsvarið. Já, þetta varðar nefnilega stofnanaminni. Það er algjört lykilorð hérna og þarna urðu mjög miklar breytingar á stofnunum á nokkrum árum. Nefndarálitið sem hér er vísað í í minnihlutaálitinu er ritað á 139. löggjafarþingi, veturinn 2010–2011 þegar þetta er afgreitt og það er alveg ljóst hver vilji nefndarinnar er. Síðan er það einmitt að fylgja því eftir og að það skili sér til hinnar nýju og sameinuðu einingar sem nefnd var Isavia. Ég ætla líka að fá að segja að ég tek undir með hv. þingmanni með það að svo virðist sem gjaldtakan hafi þá verið til staðar en í rauninni ekki runnið til innanlandsflugvallanna. Það er ekki hægt að lesa neitt annað í það sem við erum hér með í höndunum. Auðvitað vitum við að það hefur verið gríðarmikil uppbygging á Keflavíkurflugvelli, en þetta er samt sem áður ekki í samræmi við vilja löggjafans og það er það sem er svo alvarlegt. Þetta er auðvitað misbrestur, það er ekki hægt að kalla það neitt annað, og eitthvað sem ég tek undir með hv. þingmanni að við þurfum að rýna betur og kannski reyna að fara ofan í saumana á þannig að ljóst sé að við gerum ekki sömu mistök aftur.