uppbygging og rekstur flugvalla og þjónusta við flugumferð.
Virðulegur forseti. Á 139. þingi 2010–2011 hefur Isavia ohf., núverandi Isavia, hafið starfsemi í maí 2010. Þetta er bara mjög áhugavert og ég held, eins og ég sagði áðan, að það sé mjög mikilvægt að þetta komi í ljós vegna þess að þetta hefur búið til alveg gríðarleg vandamál, vítt og breitt, í framhaldinu sem ríkið, framkvæmdarvaldið, fjárveitingarvaldið og annað hafa aldrei klárað fyrr en við erum að reyna að laga þetta eitthvað núna. Eins og hv. þingmaður benti á og kemur fram í minnisblaði Isavia innanlandsflugvalla, sem kom fyrir nefndina og forsvarsmaður kynnti fyrir okkur, er viðhaldsþörfin talin 16 milljarðar í flugvallakerfinu. Síðan eru líka miklar framkvæmdir í sambandi við uppbyggingu á þessum þremur flugvöllum til þess að geta sinnt þeim kröfum sem gerðar eru til alþjóðaflugvallakerfisins, að þeir séu allir varaflugvellir fyrir hvern annan. Því er ég bara alveg undrandi og var undrandi þegar þetta kom upp um daginn og ég held að þetta geti orðið með okkar fyrstu málum, a.m.k. í umhverfis- og samgöngunefnd og væri eðlilegt að einhver frumkvæðisathugun yrði þar, og síðan er spurning með nefnd hv. þingmanns.
Hv. þingmaður kom í sinni ræðu inn á umhverfismálin og það hefur verið bent á hversu mikilvægt það er að hafa góða flugvelli þannig að ekki sé verið að bera mikið eldsneyti langar leiðir. Það er töluvert sem sparast þar í útblæstri og í starfsemi og rekstri flugfélaganna. Það væri kannski hægt að koma að því í öðru, en ég þakka kærlega fyrir minnihlutaálitið og held að við verðum að takast á við þetta mál þegar líður að nýju þingi í haust.