Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 121. fundur,  8. júní 2023.

almannatryggingar og húsnæðisbætur.

1155. mál
[21:29]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Verið er að ræða hækkun almannatrygginga um 2,5% og hækkun frítekjumarks. Ég tek heils hugar undir nefndarálit hv. þm. Halldóru Mogensen, sem ég skrifa einnig undir, og vil bara ítreka það að 2,5% eru, eins og mér datt í hug áðan, eiginlega ekki upp í nös á ketti. En svo fór ég að hugsa: Bíddu, hvað kemur þetta kettinum við og hvað kemst upp í nös á ketti? Það hlýtur að vera eitthvað svo lítið að það er eiginlega ekki neitt. Og fyrst þarf auðvitað að ná kettinum til að koma einhverju upp í nösina á honum. En þetta er einmitt það, þetta er svo lítið að það er okkur eiginlega til háborinnar skammar, vegna þess að á sama tíma erum við með skerðingar á þessum hópi, 49.000 almannatryggingaþegum, sem fá að meðaltali 164.000 kall á mánuði og viðkomandi þarf að borga 15.000 kr. til baka. Þannig að þessi 2,5% eru 5.000 kr., einn þriðji af því, bara af þeirri upphæð. 6% eru strax mun skárri. En auðvitað hefði verið langbest að það væri eitthvað almennilegt og líka að það væri verið að ræða eingreiðslu. En hæstv. félags- og vinnumarkaðsráðherra tók það alveg skýrt fram að það stæði ekki til.

Ef við horfum líka á frítekjumörkin, sem er kannski svolítið skrýtið í þessu máli, sem eru sett inn í sambandi við húsnæðisbætur erum við þar með frítekjumark fyrir einstakling upp á 5.388.983 kr. Þetta eru rétt um 400.000 kr. í tekjur sem viðkomandi má vera með á mánuði. En ef við tökum bara dæmigerðan öryrkja sem verður 18 ára og hefur engar aðrar tekjur en tekjur almannatrygginga þá er hann að fá 449.254 kr. Þarna eru 50.000 kr. strax byrjaðar að skerða þetta frítekjumark. Þannig að við sjáum að frítekjumörkin standast enga skoðun. Þetta er okkur til háborinnar skammar að lægstu bætur sem viðkomandi, 18 ára, getur fengið frá ríkinu, skerði einhverjar húsaleigubætur. Þetta lítur heldur ekkert vel út ef við tökum bara tvo öryrkja sem búa saman og eru að reyna að ná einhverju hagræði í sínum búskap. Þeir missa þá heimilisuppbót og sérstaka uppbót og alls konar uppbætur. Skerðingarnar dynja á þeim og niðurstaðan verður sú að þótt þau séu tvö saman og sameini tekjur sínar þá lenda þau sennilega samanlagt í um 50.000 kr. skerðingu strax.

Þetta sýnir okkur hvers lags ómannúðlegt kerfi þetta er og sýnir okkur að við verðum að fara að gera eitthvað í þessu og taka á þessu. Öryrkjabandalagið bendir á að við verðum við að átta okkur á því að helsta ástæða ofgreiðslna og krafna örorku- og endurhæfingarlífeyristaka hjá TR eru skerðingar á framfærsluuppbótinni, en hún skerðist frá fyrstu krónu. Þetta kemur bara skýrt fram. Þeir biðja af hógværð sinni um að þetta verði 6% en ekki 2,5%, sem á að vera sjálfsagt. Og svo segja þeir hérna líka:

„Tryggja þarf að sveitarfélögin hækki tekju- og eignamörk sérstaks húsnæðisstuðnings í takt við hækkanir húsnæðisbóta. ÖBÍ leggur til að hefja strax vinnu við endurskipulagningu á formi húsnæðisbóta og sérstaks húsnæðisstuðnings í eitt stuðningskerfi á vegum ríkisins.“

— Vegna þess að þessar sérstöku húsnæðisbætur skerðast líka. Þær eru yfir í félagsbótakerfinu og tekjur eru fljótar að skerðast. Meira að segja styrkir skerða þetta. Þú gefur öryrkjanum styrk með annarri hendinni til að hjálpa honum, en þú rífur af honum allar þessar sérstöku uppbætur og húsaleigubætur með hinni hendinni. Það er nákvæmlega það sama inni í þessu kerfi og var á sínum tíma með bifreiðastyrkinn. Það þarf að breyta þessu kerfi. Ef það er vilji, sem ég tel vera, til þess að hjálpa fólki, þá hjálpar þú ekki fólki á einum stað til að geta rifið af því annars staðar. Það er ómannúðlegt. Það er rangt og ég get ekki trúað því að nokkur hér inni á þingi vilji hafa kerfið svoleiðis. En ég vona samt heitt og innilega að okkur takist a.m.k. að hækka þessar bætur sem eru í dag.