Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[11:13]
Horfa

Njáll Trausti Friðbertsson (S):

Forseti. Í gær fóru fram ágætar umræður um þingsályktunartillögu um fjármálaáætlun til næstu fimm ára, fyrir árin 2024–2028. Þrátt fyrir að við séum sammála í breiðu línunum um stöðu hagkerfisins og verkefnið fram undan, að endurheimta verðstöðugleika og ná niður verðbólgu og vaxtastigi, greinir okkur á um leiðir. Ríkisstjórnin boðar aðhalds- og tekjuöflunaraðgerðir en mætir nýjum útgjaldahugmyndum stjórnarandstöðunnar. Það þarf að kæla hagkerfið. Það er eina meðalið sem virkar. Þessi fjármálaáætlun er lyfseðillinn gegn verðbólgunni í hagkerfinu en svo getur okkur greint á um hversu sterkur skammturinn eigi að vera. Það er mikill þróttur í atvinnulífinu og hagvöxtur hér á landi sem er ólíkt því sem margir í nágrannalöndum okkar í Evrópu þurfa að venjast nú um mundir. Það gerir okkur kleift að auka aðhaldsstig ríkisfjármálanna en um leið standa vörð um mikilvæga grunnþjónustu og tekjulægri hópa. Við þurfum alls staðar og alltaf að leita leiða til að draga úr ríkisútgjöldum. Ég ítreka það sem ég sagði í ræðu minni í gær: Almenn aðhaldskrafa ríkisstofnana er ekki hámark heldur lágmark. Það á að spara meira þar sem því verður komið við og skoða hvernig féð nýtist best, en ekki hvar þarf að skera niður til að spara eins mikið og þarf samkvæmt aðhaldskröfunni.

Herra forseti. Tækifærin eru víða. Við höfum á undanförnum árum náð miklum árangri með sameiningu stofnana og við verðum að halda áfram þeirri vegferð. Skýr áform eru um frekari sameiningar, t.d. á sviði matvælaráðuneytisins, umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytisins og dómsmálaráðuneytisins þar sem sameining héraðsdómstólanna og sýslumannsembættanna er áætluð árið 2024. Einnig er stefnt að sameiningu Samkeppniseftirlitsins og Neytendastofu í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar.

Í þessari áætlun er einnig boðaður niðurskurður á skrifstofufermetrum ríkisins sem mun spara ríkissjóði 2 milljarða fyrir lok áætlunartímabilsins. Þetta eru skynsamlegar ráðstafanir sem við eigum að hraða eins og kostur er.

Í gær ræddi ég um fund fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans þar sem farið var yfir stöðuna. Nefndinni fannst mikilvægt að kynna stöðuna á grundvelli staðreynda og gagna sem einkenna ekkert alltaf umræðuna. Í ljós kom að yfirlýsingar um vandamál fasteignaeiganda voru ekki á rökum reistar. Eiginfjárstaðan er góð. Ofskuldsetning á sér ekki stað og flestir eru í stakk búnir til að takast á við hærri greiðslubyrði með ýmsum úrræðum.

Nú vil ég fara aðeins yfir hvað við höfum gert undanfarin misseri. Þessi ríkisstjórn hefur staðið með þeim sem minnst hafa milli handanna. Bætur almannatrygginga hækkuðu um tæp 9% á síðasta ári og 7,4% í upphafi þessa árs. Því til viðbótar er verið að bæta 2,5% við núna á miðju ári. Frítekjumark atvinnutekna örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega hækkaði í 200.000 kr. í upphafi þessa árs. Húsnæðisbætur hafa hækkað um fjórðung frá miðju síðasta ári og tekjumörk voru hækkuð til jafns við hækkun bóta. Barnabætur hafa hækkað mikið að raunvirði undanfarin ár og fleiri fjölskyldur eiga kost á stuðningi en áður. Persónuafsláttur og þrepamörk í tekjuskattskerfinu hækkuðu um 10,7% í ársbyrjun. Áhrifin eru mest hjá tekjulægri heimilum. Þá verða framlög til hlutdeildarlána aukin enn frekar og stofnframlög til uppbyggingar leiguíbúða innan almenna kerfisins tvöfölduð. Þannig verða 1.000 íbúðir byggðar árlega 2024 og 2025 með stuðningi ríkisins í stað 500 á ári.

Fulltrúar stjórnarandstöðuflokkanna hafa lítið lagt til málanna annað en stærra ríki og auknar tilfærslur þrátt fyrir óljósan ávinning í baráttunni gegn verðbólgu. En erum við að gera nóg? Ég tek undir með seðlabankastjóra, þetta eru jákvæð skref en um leið tel ég að við þurfum að vera vakandi yfir stöðunni og vera tilbúin að auka enn frekar við aðhaldið við fjárlagagerðina í haust. Hagvöxtur er kröftugri hér á landi en í Evrópu og atvinnuleysi er lágt en það þurfa allir að leggjast á árarnar. Ég hef áhyggjur af stöðunni á vinnumarkaði. Það þarf að semja um hóflegar launahækkanir til að fyrirbyggja víxlhækkanir launa og verðlags. Við þurfum á hóflegum langtímasamningum að halda til að hægt sé að verja lífskjörin sem okkur hefur tekist að skapa undanfarin ár, verja kaupmáttinn.

Herra forseti. Við þurfum að ná aftur þeim stöðugleika sem við höfðum náð í verðþróun í landinu áður en heimsfaraldur Covid-19 skall á og hræðilegt innrásarstríð Rússa í Úkraínu hófst. Frá því að Sjálfstæðisflokkurinn tók sæti í ríkisstjórn í maí 2013 og út árið 2020 var meðalverðbólga í landinu 2,4%. Á þessu tímabili náðust verðbólgumarkmið Seðlabankans og verðbólgan fór einungis fjórum sinnum út fyrir vikmörk Seðlabankans í einn til þrjá mánuði í senn. Tvisvar fór verðbólgan örlítið upp fyrir og tvisvar örlítið niður fyrir. Á sama tíma jókst kaupmáttur heimilanna gríðarlega, sérstaklega tekjulægri hópa. Við náðum kröftugri endurreisn eftir bankahrunið, miklu kröftugri en fólk hafði almennt trú á. Ráðdeild í ríkisrekstri á þessum tíma varð til þess að þegar á okkur dundu efnahagsáföll vegna heimsfaraldurs og stríðs þá gátum við brugðist við með lítið skuldsettan ríkissjóð. Við gátum stutt við bakið á fyrirtækjum og heimilum ólíkt því sem vinstri stjórnin gerði á sínum tíma.

Áður en ég lýk máli mínu hér vil ég enn og aftur tala um mannfjölgun og framleiðni. Jú, við erum að ræða fjármálaáætlun þar sem við ræðum breiðu línurnar í ríkisfjármálunum. Íbúum á Íslandi fjölgað um 39% frá aldamótum til loka síðasta árs samkvæmt tölum Hagstofunnar. Þannig fjölgaði íbúum á Íslandi um 11.510 á síðasta ári eða um rúmlega 3%. Til samanburðar hefur fjölgað í Evrópu um rúmlega 2% frá aldamótum. Elstu tölur Hagstofunnar eru frá 1734 eða 1735 og hefur fjölgun aldrei áður farið yfir 3% á ársgrundvelli. Fæddir Íslendingar umfram dána voru 1.260 og fæddir erlendir ríkisborgarar umfram dána voru 465 árið 2022. Fæddir umfram dána eru þannig 15% af fjölgun ársins 2022. Aðfluttir umfram brottflutta skýra 85% af fjölguninni. Fleiri Íslendingar fluttu frá landinu en til þess og fækkaði íbúum vegna búferlaflutninga Íslendinga um 577. Hins vegar fjölgaði erlendum ríkisborgurum vegna flutninga til og frá landinu um 10.341, þar af 8.369 á aldrinum 20–65 ára. Störfum erlendra ríkisborgara fjölgaði um 7.924 á sama tíma. Ef litið er á þróun í helstu atvinnugreinum hjá erlendum ríkisborgurum kemur í ljós að störfum þeirra í einkennandi greinum ferðaþjónustu fjölgaði um 3.017 og 2.120 í atvinnugreinum iðnaðarins, þar af 1.272 í byggingarstarfsemi og mannvirkjagerð. Þar að auki fengu 3.591 erlendur ríkisborgari alþjóðlega vernd. Slík fjölgun reynir á innviði landsins, sama til hvaða geira er litið. Í raun hefur mannfjölgun verið helsti drifkraftur hagvaxtar undanfarin ár en framleiðnivöxtur hefur ekki verið upp á marga fiska.

Við getum ekki treyst á að söguleg fólksfjölgun drífi áfram hagvöxt til lengri tíma. Við erum nú þegar komin í innviðaskuld sem ríkisstjórnin er að vinna í að bæta úr. Við hljótum öll að vera sammála um mikilvægi þess að ráðast í aðgerðir til að auka framleiðni hér á landi til að viðhalda og efla kaupmátt landsmanna. Það er lykilmálið, að viðhalda og efla kaupmátt landsmanna. Hið opinbera getur lagt sín lóð á vogarskálarnar og þá á ég bæði við ríkið og sveitarfélögin. Framleiðniaukning til lengri tíma er besta leiðin til þess að auka kaupmátt ráðstöfunartekna, okkur öllum til hagsbóta og sérstaklega þeim tekjulægstu. — Ég hef lokið máli mínu.