Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[11:22]
Horfa

Guðmundur Ingi Kristinsson (Flf):

Virðulegur forseti. Við erum hér að fjalla um fjármálaáætlun ríkisstjórnarinnar frá 2024–2028. Það er eiginlega merkilegt að hver stjórnarþingmaðurinn af öðrum hefur komið hér upp og hælt sér af því hvað þeir hafi hækkað rosalega mikið fyrir almannatryggingaþega, öryrkja og aldraða. Nú síðast var hv. þm. Njáll Trausti Friðbertsson að hæla sér af þessu. En er virkilega hægt að hæla sér af því aftur og aftur að fara að lögum? Kannski er það vegna þess að menn hafa undanfarinn áratug ekki verið að fara að lögum heldur yfirleitt verið að hækka almannatryggingar þannig að það nær ekki upp í verðbætur og verðbólgu. Kannski er hægt að hæla sér af því að nú í fyrsta skipti sé nokkurn veginn verið að standa við lögin og hækka þannig að viðkomandi fái það sem hann á rétt á samkvæmt lögum. Aukahækkanir eru ekki á borðinu og þó að smávægilegar aukahækkanir yrðu þá næst bara rétt í kjaragliðnun undanfarinna ára.

Fjármálaáætlunin er auðvitað ágæt skáldsaga og það sem er kannski merkilegt við hana er það sem stendur ekki í henni. Þar koma t.d. ekki fram, það sér það enginn, skerðingar í almannatryggingakerfinu, skerðingar á öryrkja og aldrað fólk sem eru gígantískar. Ríkisstjórnin hælir sér af stórkostlegum hækkunum í almannatryggingakerfinu undanfarin ár en horfir viljandi og vísvitandi fram hjá skerðingum sem eru um 20 milljarðar á síðustu þremur árum. Það kemur ekki fram í fjármálaáætlun, skerðingar sem valda því að þeir sem verst eru settir í kerfinu hafa bara 2 kr. af hverjum 10 kr. í vasanum eftir keðjuverkandi skerðingar sem ná alla leið inn í félagsbótakerfi sveitarfélaganna. Á auðskiljanlegu skerðingarmáli almannatrygginga hljóða skerðingarnar svo og takið nú eftir: Fjárhæð ellilífeyris lækkar um 45% af eigin tekjum lífeyrisþega eftir að frítekjumörkum er náð uns hann fellur niður. Fjárhæð heimilisuppbótar til ellilífeyrisþega lækkar um 11,9% af eigin tekjum lífeyrisþega eftir að frítekjumarki er náð uns hún fellur niður. Fjárhæð örorkulífeyris lækkar um 9% af eigin tekjum lífeyrisþega eftir að frítekjumörkum er náð uns hann fellur niður. Sama gildir um aldurstengdu örorkuuppbótina. Tekjutrygging örorkulífeyrisþega lækkar um 38,35% af eigin tekjum lífeyrisþega eftir að frítekjumörkum er náð uns hún fellur niður. Fjárhæð heimilisuppbótar örorkulífeyrisþega lækkar um 12,96% af eigin tekjum lífeyrisþega eftir að frítekjumarki er náð uns hún fellur niður. Sérstök uppbót örorkulífeyrisþega skerðist strax um 65% af tekjum lífeyrisþega uns hún fellur niður. Og þá eru eftir skerðingar í húsnæðisbótum, sérstökum húsnæðisbótum, barnabótum, vaxtabótum og fleiri bótum.

Hverjir fundu þetta kerfi upp? Jú, Sjálfstæðisflokkur, Framsóknarflokkur, Vinstri grænir og Samfylkingin; þeir flokkar fundu þetta skelfilega skerðingarkerfi upp, hafa viðhaldið því og nært það. Það er okkur til háborinnar skammar að við skulum vera með svona kerfi. En þið getið ímyndað ykkur, haldið þið að þetta sé allt? Nei. Þann 8. júní, ef ég man rétt, birtist grein í Morgunblaðinu þar sem segir að styrkur sem hreyfihamlaðir einstaklingar fái hjá Tryggingastofnun ríkisins til kaupa á sérútbúnum bílum, stuðningur vegna hjálpartækja, greiðslur sanngirnisbóta, slysabóta og fleira valdi því að húsnæðisstuðningur viðkomandi einstaklings skerðist og jafnvel séu dæmi um að hann falli alveg niður.

Ég spyr stjórnarliða: Hvernig getið þið haft svona kerfi? Hvernig er hægt að veita styrk með annarri hendinni og rífa húsaleigubætur, eða sérstöku húsaleigubæturnar, af viðkomandi með hinni hendinni? Eruð þið stolt af þessu kerfi? Það virðist vera því að þið komið hér upp og hælið ykkur af því sem þið eruð að gera þegar þið eruð bara að fara að lögum. En það heyrist ekki orð um þessa ósanngirni, ekki orð.

Og áfram segir að ÖBÍ – réttindasamtök telji brýnt að þessu verði breytt og hvetji Alþingi til að breyta lögum svo að styrkir, bætur og lausafjáreignir, svo sem hjálpartæki, verði ekki til þess að einstaklingur missi rétt til húsnæðisbóta. Hvernig í ósköpunum getum við látið hjálpartæki, lausafé, bætur, styrki, skerða húsnæðisbætur? Þetta er eins og ég sagði: Gefum með vinstri, tökum meira af með hægri. Þetta var líka gert á sínum tíma í sambandi við bifreiðastyrki, þeir voru skattaðir og skertir þangað til þeir fóru niður í núll en sem betur fer breyttum við þeim þannig að þeir eru ekki skattaðir lengur, ekki taldir tekjur. Þá loksins skilaði það sér í réttum tilgangi.

Ég veit ekki hvort tilgangur ríkisstjórnarinnar og þeirra sem komu að þessu kerfi hafi verið sá, þegar þeir ákváðu að búa til styrki, að þeir myndu valda því að þeir yrðu teknir af fólki einhvers staðar annars staðar. Ég trúi því ekki en ég verð að trúa því vegna þess að það er enginn að breyta þessu. Hafið þið heyrt í einhverjum stjórnarþingmanni koma hér upp og segja að nú þurfi að taka á þessu? Við heyrum hæstv. fjármálaráðherra oft vísa í Tekjusöguna, tekjutíund, tíu lægstu, en þá er hann að vísa í Tekjusöguna, tíu lægstu 2021 — eins og hægt sé að lifa á tekjum frá 2021 í dag. Það er ekki hægt. Við verðum að tala um tekjur sem fólk er að fá í dag. Því miður tala staðreyndirnar sínu máli. Fólk er ekki að fá það sem það á rétt á.

Í skýrslu forsætisráðherra, um fátækt og áætlaðan samfélagslegan kostnað, sem sérfræðingar unnu fyrir forsætisráðuneytið nýlega, er sagt að sem fyrr standi einstæðir foreldrar, örorkulífeyrisþegar, aldraðir og innflytjendur langverst þegar kemur að fátækt. Á hinn bóginn kemur einnig fram í skýrslunni að það virðist sem staða eldri borgara í heild hafi lítið batnað. Benda höfundar á að aldrað fólk sem er á lífeyrislaunum almannatrygginga og hefur verið í fátækt búi nú við sárafátækt. Og menn voru að hæla sér af því að fara einu sinni að lögum. Það er alfarið í boði þessarar ríkisstjórnar því að þeir sem reyna að tóra á lífeyrislaunum, sem eru 10% lægri en lægstu ellilífeyrislaun, verða einnig fyrir krónu á móti krónu skerðingum og eru pikkfastir í sárafátæktargildru þeirra. Það var samþykkt með lögum þessarar ríkisstjórnar — hugsið ykkur ofbeldið — að gefa ákveðnum hópi lægsta ellilífeyri. Það dugði ekki til. Þeir urðu að skerða þennan hóp. Jú, hvað var gert? Hann var skertur um 10%. Dugði það til? Nei, það þurfti að bæta í. Menn fundu upp það sem þeir voru búnir að lofa að afnema. Hver einasti stjórnmálaflokkur á þingi var búinn að lofa að afnema krónu á móti krónu skerðingu. Það var fært niður í 65 aura á móti krónu, svakalega flott, en þeir tóku aftur upp krónu á móti krónu á þessum hópi, verst setta og fátækasta hópnum í okkar samfélagi. Þá kemur einnig fram að fátækt barna ætti að vera sérstakt viðfangsefni í skýrslunni enda má ætla að 9.000 börn hafi talist undir lágtekjumörkum árið 2020, ástandið er mun verra í dag. Þá er einnig tekið fram að helstu annmarkar á greiningunni séu þeir að upplýsingarnar nái lengst til ársins 2021, alveg eins og tekjutíundin, en síðan þá hafi ýmislegt gerst sem hafi að öllum líkindum haft áhrif á lífskjör almennings í landinu, svo sem vaxandi húsnæðiskostnaður, verðbólga og stýrivaxtahækkanir.

Virðulegur forseti. Þingmenn ríkisstjórnarinnar, hver á fætur öðrum, koma hingað upp og hæla sér af því að hafa einu sinni á löngum tíma farið að lögum og hækkað þá verst settu nákvæmlega um það sem þeir eiga að gera samkvæmt lögum, að bæta þeim verðbólguna, en það er ekkert til að hæla sér af. Og þeir gleyma milljörðunum sem þeir skerða fólk um sem veldur því að stór hópur fólks er ekki í fátækt núna í þeirra boði heldur í sárafátækt.