fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegur forseti. Það hefur verið afar áhugavert að hlusta á umræður hér í þingsal um fjármálaáætlun fyrir árin 2024–2028. Ljóst er að þótt þingmenn séu með misjafnar skoðanir á áætluninni og þeim aðgerðum sem þar birtast, hvort sem þær eru á gjalda- eða tekjuhlið, er það niðurstaða þess sem hér stendur að allir þeir þingmenn sem hafa tjáð sig undir umræðunni séu sammála um hvert stóra verkefnið sé, þ.e. að ná niður verðbólgu og vaxtastigi í landinu. Í þeirri fjármálaáætlun sem nú liggur fyrir eru fjölmargar aðgerðir sem eru til þess fallnar að koma til móts við þau verkefni þótt þingmenn greini á um það hvort nægjanlega sé skorið niður eða of mikið skorið niður á gjaldahliðinni og hvort aðgerðir á tekjuhlið séu of miklar eða ekki nægjanlegar til að slá á verðbólgu og þar með lækka vaxtastig í landinu. Jú, hver og einn hefur sína skoðun varðandi smáatriði, en við sem horfum á stóru myndina sjáum að aðgerðir í fjármálaáætlun munu styðja við að leysa þau verkefni sem við sem þjóð glímum við um þessar mundir. Það eru margir ólíkir þættir sem hafa áhrif á verðbólgu og ríkisstjórnin á að sýna gott fordæmi í þeirri glímu. Það tel ég að við séum að gera í þessari fjármálaáætlun.
Verðbólga hefur verið þrálátari en væntingar stóðu til og innlend verðbólga hefur verið mikil. Á móti hefur verðbólga á heimsvísu lækkað og gengi krónunnar er sterkt sökum mikils gangs í ferðaþjónustu. Væntingar markaðsaðila um verðbólguhorfur eru enn of háar. Seðlabanki Íslands spáir að verðbólga verði 8% út árið. Samkvæmt könnun Seðlabanka Íslands í maí síðastliðnum búast markaðsaðilar við að stýrivextir verði um 8,5% út þennan ársfjórðung og verði komnir niður í 6% eftir tvö ár. Það er of hátt og því er mikilvægt að bregðast við líkt og gert hefur verið í þessari fjármálaáætlun.
Ríkisstjórnin hefur komið fram með aðgerðir sem miða að því að ná verðbólgu niður og eru í samræmi við peningamálastefnu Seðlabanka Íslands en mikilvægt er að fjármálastefna hins opinbera og peningastefnan séu í takt. Sú breyting sem lögð hefur verið til, að færa gjaldtöku fjármálareglna fram um eitt ár og láta gildistöku þeirra hefjast árið 2025 í stað 2026, er að mínu mati afar skynsamleg. Með því erum við að senda skýr skilaboð um aukið aðhald fyrr í fjármálum hins opinbera. Þessi aðgerð slær á verðbólguvæntingar sem er afar mikilvægt nú. Hækkun á húsnæðisverði, m.a. vegna skorts á íbúðum, er þáttur í að auka verðbólgu síðustu mánuði. Hluti af þeirri skýringu er að ekki hefur tekist að stuðla að auknu framboði til að mæta líffræðilegri þróun og aukinni fólksfjölgun. Frá árinu 2020 hafa yfir 19.000 manns flutt til landsins umfram brottflutta sem er álíka fjöldi og býr á Akureyri.
Það sem af er þessum ársfjórðungi er fólksfjölgunin hér á landi um 2.700 og á síðasta ári var fjölgunin 11.510, sem er 3,1% fjölgun, mesta fjölgun sem sögur fara af hér og einhver mesta hlutfallslega fjölgun í hinum vestræna heimi. Til að koma til móts við þessar gríðarlegu áskoranir hefur nú verið ákveðið að bæta í stofnframlög til uppbyggingar leiguíbúða innan almenna íbúðakerfisins. Þau verða tvöfölduð og framlög til hlutdeildarlána verða aukin enn frekar þannig að í stað þess að 500 íbúðir verði byggðar árið 2024 verða þær 1.000, auk þess sem um 250 íbúðum verður bætt fyrr í áætlanir þessa árs þannig að þá verða þær um 800. Það er mjög jákvætt að sjá að gripið sé inn í ástandið með jafn ákveðnum hætti og hér er gert því að hættan er að ef við gerum ekkert nú muni vandinn elta okkur næstu árin sem geti komið fram í gríðarlegum verðhækkunum á húsnæði þegar vextir fara niður og þiðna fer á fasteignamarkaði. Við ætlum okkur að leysa þann hnút sem nú er á þessum markaði.
Virðulegur forseti. Afkomubætandi aðgerðir í áætluninni eru um 36,2 milljarðar sem sýnir aðhald í rekstri sem og að áætlanirnar gera ráð fyrir rúmlega 90 milljarða kr. betri niðurstöðu þessa árs. Það hefur áhrif inn í áætlunina. Í þessari fjármálaáætlun eru raunhæfar aðgerðir í baráttunni við verðbólguna á sama tíma og velferðarkerfið okkar er varið. Það eru sömuleiðis afar mikilvæg og skýr skilaboð. Það er engu síður mikilvægt að við leggjumst öll á árarnar, atvinnulífið, verkalýðshreyfingin og samfélagið allt. Í þessu verkefni eins og öllum öðrum mun okkur farnast betur að vinna saman að sameiginlegri niðurstöðu þjóðinni til heilla.