fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Frú forseti. Þessi þingvetur hefur verið sérstakur og þessi þinglok núna eru í takti við þá staðreynd að ríkisstjórnin hefur lagt fram fá frumvörp og að við enduðum veturinn á því að öll þau mál sem átök voru um voru einfaldlega sett ofan í skúffu. Forsætisráðherra segir okkur að það merkilegasta við árangur ríkisstjórnarinnar núna sé að þau séu að klára þing á tilsettum tíma. Hún lætur líka hafa eftir sér í fjölmiðlum að það hafi ekki verið vert að fara inn í erfið mál á þessum tímapunkti, ekki vert að taka umræðuna og kannski ekki vert að stunda pólitík á þessum tímapunkti. Niðurstaða fjármálaáætlunar er spegill á þessa ládeyðu og þennan sofandahátt.
Fjárlaganefnd hélt tugi funda eftir að fjármálaáætlun hæstv. fjármálaráðherra var lögð fram. Svo gerðist ekkert. Áætlunin tók engum breytingum þrátt fyrir þunga ágjöf og merkilega samhljóða umsagnir og athugasemdir frá Samtökum atvinnulífsins, Viðskiptaráði, ASÍ og BHM. Þetta fólk gekk í takti og þungamiðjan er að ríkisstjórnin sé ekki að taka það hlutverk að sér sem hún ætti að vera að sinna í baráttunni gegn verðbólgu. Þetta fólk hefur bent á að það hefur alvarlegar afleiðingar fyrir heimilin í landinu þegar ríkisstjórnin tekur ekki hlutverk sitt nægilega alvarlega. Ríkisstjórn sem hagar sér þannig verður ekki í stöðu til þess í haust að biðla til vinnumarkaðar eða almennings um að sýna ábyrgð. Það er ekki hægt að biðja aðra um að standa sig betur þegar ríkisstjórnin sjálf hefur ekki staðið vaktina.
Ég nefndi hér í gær að grundvallarspurningin eftir fréttatilkynningu mánudagsins hljóti að vera spurningin um það hvort ríkisstjórnin búist við því að þessar tillögur hafi áhrif á næstu stýrivaxtaákvörðun. Það er prófsteinninn. Munum við sjá árangur við næstu stýrivaxtaákvörðun? Er það yfirleitt markmiðið? Munu skref stjórnvalda hafa þau áhrif að vextir lækki næst? Skýr skilaboð í þá veruna, um markmið annars vegar og árangur hins vegar, hefðu haft þýðingu í augum almennings. Það hefðu verið skýr skilaboð til atvinnulífsins og til markaðarins. En auðvitað er erfitt að senda slík skilaboð þegar tilkynning mánudagsins, fréttatilkynning ríkisstjórnarinnar um frekari aðgerðir gegn verðbólgu, innihélt fyrst og fremst endurtekið efni.
Forseti. Þegar fjármálaráðherra mælti fyrir fjármálaáætluninni í vor talaði hann um öfundsverða stöðu Íslands og um það að hagvöxtur hér á landi hafi verið meiri en í nágrannaríkjum okkar undanfarin ár. Ég spurði hér í gær, og mig langar til að nefna það atriði aftur, hvort þjóðin finni fyrir þessum hagvexti á eigin skinni. Ég held að við þurfum að ræða framsetningu hagvaxtar betur því að staðreyndin er líka sú að þrátt fyrir að hér mælist ágætur hagvöxtur er hagvöxtur á Íslandi á hvern íbúa bæði lægri en í nágrannaríkjum okkar og sá lægsti af öllum ríkjum OECD. Þetta er atriði sem hefur þýðingu og skiptir máli og mér finnst að stjórnvöld ættu að gefa meiri gaum. Það er auðvitað hætta í því að byggja aðgerðir á hæpnum forsendum og mjög líklega til þess fallið að hafa áhrif á útkomuna til verri vegar.
Ættu stjórnvöld t.d. að miða útgjaldaáætlanir meira við þróun framleiðni hér á landi og þróun um hagvöxt á mann? Stafar verðbólguþrýstingur ríkissjóðs mögulega af því að útgjaldaáætlun miðar einfaldlega við ranga mælikvarða þegar við tölum bara um hagvöxtinn en tökum ekki tillit til þess hvernig hagvöxtur á mann lítur út á Íslandi þar sem við erum eftirbátar annarra þjóða, þar sem við erum lægst allra OECD-ríkja? Annað atriði er umræðan um skuldahlutfall íslenska ríkisins í samanburði við önnur ríki og skuldahlutfallið er í sjálfu sér nokkuð gott. En aftur: Þarna þarf að skoða myndina alla. Fá Evrópuríki eru með hærri vaxtakostnað en íslenska ríkið, hærri fjármagnskostnað. Ég nefndi hér í gær að það mætti segja að ríkið sé hér í sömu stöðu og heimilin hvað það varðar að það er vaxtakostnaðurinn sem ræður úrslitum um fjármálin, um efnahaginn, um stöðuna. Ríkið borgar í aukavaxtagjöld vegna krónunnar 60 milljarða á ári. Vaxtamunurinn á milli krónu og evru er 60 milljarðar á ári. Þessir 60 milljarðar fara vitaskuld ekki í annað á meðan, ekki í aðrar fjárfestingar á meðan.
Forseti. Svör við fyrirspurn minni til viðskiptaráðherra á þessu þingi sýndu að um 250 íslensk fyrirtæki gera upp í öðrum gjaldmiðli, fyrst og fremst í evru og dollara. Ég hef nefnt hér fyrr í þessum sal að ég skil þessi fyrirtæki bara mjög vel. Þau vilja stöðugleika. Þau vilji geta gert áætlanir til lengri tíma og þau vilja draga úr kostnaði vegna gjaldmiðilsins. Þessi fyrirtæki eru fyrir vikið í skjóli fyrir vaxtaákvörðun Seðlabankans og það er líka gott. En skuldug heimili og lítil og meðalstór fyrirtæki þurfa þess vegna að bera þyngri byrðar en aðrir. Vegna þess að vextirnir bíta bara hluta samfélagsins, bara hluta hagkerfisins, þarf að hækka vextina meira til að þeir hafi áhrif. Réttláta spurningin finnst mér þá vera: Hvers vegna ætti ekki öðrum fyrirtækjum og hvers vegna ætti íslenskum almenningi ekki að bjóðast þessi kjör?
Ég nefndi líka í gær, af því að mér finnst það ekki fara hátt, en nú er verið að boða hér í þessari fjármálaáætlun, að fyrirtæki fái á sig 1% skattahækkun, sömu fyrirtæki og eru að glíma við verðbólgu og afleiðingar hennar. Þegar ég er að tala um háan vaxtakostnað, hann er þriðji stærsti útgjaldaliður ríkisins, þá finnst mér það vera atriði sem hefur auðvitað áhrif um það hver langtímasýn okkar er um fjárfestingu í heilbrigðiskerfinu, þ.e. að tækla ekki svona stóran kostnaðarlið hefur afleiðingar. Í því sambandi vil ég ræða nýjan Landspítala. Ríkisstjórnin hefur nú kynnt heildstæða áætlun um uppbyggingu innviða í heilbrigðiskerfinu til 2030, um byggingu nýs spítala, en viðbrögð þeirra sem til þekkja segja mikla sögu. Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélagsins, sagði um þessa áætlun: „Þarna er ekki talað um neina aðra þætti en steinsteypuna við Hringbraut, að það eigi að klára þetta hús.“ Hér finnst mér vera enn eitt dæmi þess að vegna þess að ríkisstjórnin gengur ekki í takti, getur ekki komist að niðurstöðu, þá gerist óskaplega lítið í heilbrigðismálum. Ég nefni það vegna þess að ég held að fjármálaáætlun eins og hún lítur út muni ekki breyta þeirri stöðu sem er uppi í heilbrigðismálum. Fólk sem þarf að leita til heimilislæknis á höfuðborgarsvæðinu getur fengið næsta lausa tíma í september. Á landsbyggðinni eru svæði þar sem útlit er fyrir að það verði enginn heimilislæknir. Börn dúsa á biðlistum árum saman, fólk leitar á bráðamóttöku og situr þar klukkustundum saman og fer jafnvel heim áður en það hefur fengið þjónustuna. Sterkt heilbrigðiskerfi hlýtur að byggja á því að við veitum góða heilbrigðisþjónustu og ekki síður á því að sú þjónusta sé þá aðgengileg og þess vegna þarf að búa vel um starfsfólk í greininni. Ég hef miklar áhyggjur af þeirri stöðu að ekki eru vísbendingar um að samningur við sérfræðilækna sé í nánd, engin merki um það. Það er ömurleg framkoma gagnvart fagfólkinu okkar. Starfsfólkið er hjartað í heilbrigðiskerfinu og það eru ömurleg framkoma gagnvart þjóðinni að gera ekki betur en þetta.
Forseti. Ríkisstjórnin hefur lagt fram tillögur um að koma þeim til aðstoðar sem verst eru settir sem er gríðarlega mikilvægt því að verðbólgan kemur alltaf verst niður á þeim sem minnst höfðu fyrir. En ég hef áhyggjur af millistéttinni sem fær á sig þungt högg núna, fyrstu kaupendum og barnafjölskyldum, af því að ég sé ekki að fjármálaáætlunin muni leika stórt hlutverk við að ná niður verðbólgu. Ég held því miður að við gætum gert mun betur. Mér finnst þessi niðurstaða hér ekki vera góð. Þetta þarf ekki að vera svona. Ég mun ekki geta stutt þessa fjármálaáætlun.