Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[11:55]
Horfa

Frsm. meiri hluta fjárln. (Bjarkey Gunnarsdóttir) (Vg):

Virðulegi forseti. Ég vil byrja á því að þakka þingmönnum fyrir umræðuna hér, bæði í gær og í dag. Efnahagsmálin eru sennilega veigamesti hlutinn af umræðunni hér á þingi þegar allt er talið. Án ábyrgrar efnahagsstjórnar yrði lítið úr verki. Hagstjórnin er alltumlykjandi og snertir alla málaflokka, framfylgd og útfærslu þjóðþrifamála og kerfin okkar öll og ekki síður daglegt líf fólksins í landinu. Verðbólgan hefur verið efst á baugi síðustu misseri, eðlilega. Hún er sá hluti hagstjórnarinnar sem undanfarið hefur haft mest áhrif. Orsakirnar eru jú margar og á breiðum grunni og það eru engar töfralausnir í sjónmáli. Umræðan hér í ræðustól Alþingis hefur verið á alla vegu og sitt sýnist hverjum um aðgerðir ríkisstjórnarinnar eða meint aðgerðaleysi. Það er óhjákvæmilegt að fá það stundum á tilfinninguna, þegar lagt er við hlustir hér, að hér sé allt á vonarvöl og framtíðin, já, eins og kannski veðrið undanfarið hér á suðvesturhorninu, eilíf rigning og alltaf 7°. En hvað sem líður deilum og dægurþrasi þá styttir alltaf upp að endingu. Verðbólgan mun hjaðna og ég tel að sú fjármálaáætlun sem við samþykkjum vonandi sem flest seinna í dag styðji við þau markmið.

Þegar harðnar á dalnum tel ég mikilvægt umfram allt annað að koma þeim í var sem minnst hafa bjargráð. Aðgerðir ríkisstjórnarinnar, þær sem komu til á síðasta ári og nú um áramótin, áherslurnar í þessari fjármálaáætlun og aðgerðapakkinn sem kynntur var fyrr í vikunni segja öll sömu sögu. Það er skýr vilji stjórnvalda að standa vörð um þá velferð sem hér hefur byggst upp á síðustu árum og það er skýr vilji stjórnvalda að standa vörð um grunnþjónustuna. Það sést til að mynda í því að ekki er gert ráð fyrir aðhaldi í heilbrigðiskerfinu og hinum stóru tilfærslukerfum almannatrygginga, kerfum sem hafa vaxið mikið síðustu ár og styðja við jöfnuð og félagslegt réttlæti. Frá árinu 2017 og til loka áætlunarinnar árið 2028 hækka rammasett útgjöld málaflokka mest en í heildina um 381 milljarð sem er um 45% hækkun. Þar endurspeglast skýrar áherslur ríkisstjórnarinnar um velferð. Mótvægisaðgerðir ríkisstjórnarinnar vegna stöðunnar í efnahagsmálum sýna þetta svart á hvítu og þegar talað er eins og stjórnvöld sitji auðum höndum sé ég mér ekki annað fært en að stikla á stóru enn og aftur í gegnum helstu aðgerðir frá því síðasta sumar.

Húsnæðisstuðningurinn var aukinn ríflega, bætur almannatrygginga hækkuðu um tæp 9% á síðasta ári, um 7,4% nú 1. janúar og bætist við núna 2,5% um mitt sumar. Húsaleigubætur hafa hækkað um 25% frá miðju síðasta ári. Eignamörk í vaxtabótakerfinu voru hækkuð upp í 50% í upphafi árs og barnabætur, ekki síst nú sem samtímagreiðslur, og breytingarnar þar leiða til þess að um 3.000 fleiri fjölskyldur fá barnabætur í þessu nýja kerfi. Þá var frítekjumark atvinnutekna örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega hækkað í 200.000 kr. í upphafi ársins. Loks hækkuðu persónuafsláttur og þrepamörk um 10,7% um áramótin og með þessum breytingum lækkar skattbyrði heimilanna svo um munar.

Virðulegi forseti. Til langs tíma er unnið að margvíslegum aðgerðum sem miða að því að auka framboð á húsnæði til að auka húsnæðisöryggi í samræmi við ríkisstjórnarsáttmálann. Í því sambandi er mikilvægt, að mínu mati, að ríkið stígi inn af festu og það hefur verið boðað til að bæta húsnæðisöryggi fyrir fólk sem er undir tilgreindum tekju- og eignamörkum. Í þessu sambandi erum við að auka hér og tvöfalda stofnframlög til uppbyggingar leiguíbúða í hinu almenna íbúðakerfi sem og að auka framlög til hlutdeildarlána. Ég vona svo sannarlega að þetta verði til þess að við verðum ekki hér á sama stað eftir tvö ár þar sem skortur er á húsnæði og verðið allt of hátt.

Á tekjuhliðinni er hægt að nefna fjölda aðgerða sem eiga það sammerkt að sækja tekjur til fyrirtækja frekar en almennings í landinu, til að mynda lækkun á endurgreiðsluhlutfalli virðisaukaskatts vegna vinnu við íbúðarhúsnæði en sumir telja þá ráðstöfun leiða til verðhækkana og lengri byggingartíma. Ég tel eðlilegt að ráðast í þessa breytingu núna þar sem mikill kraftur hefur verið í uppbyggingu nýrra íbúða og afkoma byggingaraðila verið mjög mikil. Sömuleiðis er eftirspurnin eftir nýju húsnæði slík að ólíklega verður slegið af. Þá kemur til hækkun tekjuskatts lögaðila ásamt áformum um aukna gjaldtöku í ferðaþjónustu. Svo má nefna hækkun fiskeldis- og veiðigjalds. Í mínum huga snúa allar þessar aðgerðir að því að auka réttláta gjaldtöku af aflögufærum greinum enda atvinnuhorfur sem betur fer með allra besta móti. Í því samhengi má benda á að útflutningsverðmæti jukust umtalsvert á fyrsta ársfjórðungi þessa árs og námu ríflega 267 milljörðum. Aukin verðmætasköpun er mikilvæg á tímum sem þessum. Aukningin kemur til vegna hærra verðs, m.a. á sjávarafurðum, og vaxtar ferðaþjónustunnar sem er að ná vopnum sínum á ný eftir heimsfaraldurinn. Staðreyndin er sú að hér á Íslandi eru mikil efnahagsumsvif, hagvöxtur og hátt atvinnustig. Víða er atvinnuleysi mjög vaxandi og samdráttur ofan á mikla verðbólgu af því að verðbólgan er nefnilega ekki einkamál okkar Íslendinga þó að við þekkjum hana kannski betur en margar þær þjóðir sem við berum okkur saman við. Eins og hér hefur áður verið rætt er verðbólgan að hluta til innflutt. Ef við berum maí sem var að líða saman við sama mánuð í fyrra eru hækkanirnar mestar í innfluttum vörum, þ.e. í öðru en eldsneyti. Þess vegna gætir áhrifa hækkandi heimsmarkaðsverðs á ýmsum nauðsynjum eins og á mat og drykkjarvörum hér sem og annars staðar í Evrópu.

Við þekkjum öll þessa sögu, þessar verðhækkanir sem m.a. má rekja til ólögmætrar innrásar rússneskra stjórnvalda í Úkraínu. Á sama tíma hefur heldur hægst á verðhækkunum á húsnæðismarkaði hér á landi. Gleymum því ekki að fólk naut góðra vaxtakjara á lágvaxtaskeiðinu undanfarið ár. Þau kjör sköpuðust vegna farsællar hagstjórnar ríkisstjórnarinnar í heimsfaraldrinum og ýttu undir fjárfestingu á tíma þar sem hennar var þörf. Að sama skapi hefur hækkun vaxta nú áhrif til minnkandi eftirspurnar ásamt aukinni greiðslubyrði á herðar lántakendum, enda drifkrafturinn að baki aðgerðum stjórnvalda að ná tökum á verðbólgunni til heilla fyrir heimilin í landinu. Við höldum áfram aðgerðum sem styðja við verðbólgumarkmið og aðgerðir Seðlabankans. Fjármálareglunum var tímabundið vikið til hliðar vegna heimsfaraldurs kórónuveirunnar en munu nú taka gildi að nýju árið 2025, þ.e. ári fyrr en ætlað var, sem liður í þessum aðgerðum. Þessi breyting er í takti við athugasemdir bæði fjármálaráðs og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Margir hafa jú kallað eftir því hér en nú virðist lítið úr því gert. Þau sjónarmið get ég stutt, þ.e. að þessar reglur taki gildi ári fyrr, enda byggja þær undir stöðugleika og veita skýrt tölulegt aðhald við ríkisfjármálin. Þetta er jákvætt skref sem er mikilvægt að stíga enda afkoma ríkissjóðs —viðsnúningurinn er alger, 90 milljarðar og aðeins sex mánuðir síðan við samþykktum fjárlög. Ég held að við hljótum öll að geta glaðst yfir því.

Virðulegi forseti. Samkvæmt tölum Hagstofunnar frá því á föstudaginn fyrir viku lækkar ársverðbólgan um 0,4% og mælist nú rétt um 9,5%. Þó að vissulega sé of snemmt að fagna sigri gefa þessar vísbendingar og fregnir jákvæða vísun fram í tímann og minna okkur á að það styttir alltaf upp. Hagstjórn fyrri ríkisstjórnar Katrínar Jakobsdóttur í heimsfaraldrinum var farsæl. Nú eru uppi annars konar erfiðleikar í efnahagslífinu og róið öllum árum að því að ná þeim eftirtektarverða stöðugleika sem einkennt hefur íslenskt efnahagslíf frá því að ríkisstjórnin hóf störf árið 2017. Það mun gefa á bátinn, það hefur gefið á bátinn en verðbólgan fer niður, henni mun linna.

Virðulegi forseti. Að þessu sögðu þá vil ég þakka félögum mínum í hv. fjárlaganefnd fyrir samstarfið í vetur, nefndarritaranum, hagfræðingnum og öllum þeim sem að starfinu komu fyrir þennan góða en þunga þingvetur sem verið hefur í vinnunni. Ég vona svo sannarlega að sumarið verði okkur öllum gjöfult og gráðurnar verði nú helst hærri en 7 víðs vegar á landinu.