Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[12:13]
Horfa

fjármála- og efnahagsráðherra (Bjarni Benediktsson) (S):

Virðulegi forseti. Við erum að ljúka hér umræðu um fjármálaáætlunina og mig langar til að byrja á því að nefna nokkur atriði sem varða formsatriði og meðhöndlun þings og framsetningu fjármálaáætlunar fyrir Alþingi. Mér finnst kannski að við höfum gert okkur verkefnið dálítið erfitt og mér hefur þótt umræðan oft á tíðum litast af því að við rötum snemma inn í eitthvað sem ég myndi vilja kalla fimm ára fjárlagagerð, þegar við erum að ræða um fjármálaáætlun sem eiga að vera umræður um breiðu línurnar í ríkisfjármálum og þær áherslur sem stjórnin vill beita sér fyrir á komandi árum. Í þessu sambandi hef ég verið þeirrar skoðunar að við ættum mögulega að skoða það að það sem við gætum kallað fullbúna fjármálaáætlun með stefnumörkun í öllum málaflokkum ætti kannski fyrst og fremst heima í upphafi kjörtímabils hverrar ríkisstjórnar. Eftir það kæmum við fram á hverju ári með einhvers konar létta uppfærslu og miklu síður fullbúna nýja fjármálaáætlun með öllum textanum endurteknum sem áður hafði verið búið að skrifa. Þetta held ég að gæti hjálpað okkur við að beina sjónum okkar að aðalatriðum máls og hvernig ríkisstjórninni gangi í þeirri stefnumörkun sem hún boðar í upphafi kjörtímabils og á hverju ári farið fram umræða um það hvar við erum á braut stödd við að ná þeim markmiðum sem lagt var upp með. Fjármálareglurnar eru þá augljóslega eitt kjarnaatriði slíkrar umræðu. Ekkert af þessu sem ég er að segja var augljós afleiðing af lögunum um opinber fjármál heldur byggi ég þetta bara á þeirri reynslu sem við höfum fengið.

Aðeins áfram um slík formsatriði. Ríkisstjórnin boðaði það fyrir skemmstu þegar við greindum frá nokkrum nýjum áherslum ríkisstjórnarinnar sem hafa með fjármálaáætlunina að gera, t.d. því að auka framboð á íbúðum í almenna íbúðakerfinu um 1.000 á næstu tveimur árum. Þá greindum við frá því að við hygðumst næsta vetur leggja fram hér á þinginu skýrslu um reynsluna af fjármálareglunum og ég hyggst taka með inn í þá umræðu greinargerð um það sem er til skoðunar í öðrum löndum, t.d. um útgjaldareglur sem eru til skoðunar víða, og hvað hafi verið lögfest í öðrum ríkjum og hver reynslan af því hafi verið þar. Ég tel einfaldlega að það sé að verða tímabært fyrir okkur að leggja mat á árangurinn af setningu fjármálareglnanna og hvort við getum verið sammála um að þær sé hægt að uppfæra eða taka tillit til reynslunnar. Stundum hefur það verið rætt hér í þinginu að það hafi verið einhvers konar veikleikamerki á fjármálareglunum að við höfum þurft að veita ríkisstjórninni heimild til að víkja þeim til hliðar tímabundið. En ég tel að þau tilefni sem til þess urðu hafi vel réttlætt það og mér finnst það enginn áfellisdómur, hvorki yfir ríkisstjórn né regluverkinu sem slíku, að það hafi þurft að víkja þeim til hliðar tímabundið. Það voru einfaldlega slík áföll sem við vorum að takast á við. Ég ætla að láta þetta duga um formsatriðin þótt ég vilji nota tækifærið til að þakka nefndinni fyrir mjög fínt samstarf og ég tel að okkur hafi tekist með lögum um opinber fjármál, eins og ég hef margoft áður tekið fram hér í þinginu, að gjörbreyta umræðunni um opinberu fjármálin. Því var nú velt upp í ræðu áðan hvort það væri þörf á reglum yfir höfuð eins og fjármálareglunum eða útgjaldareglum og þá segi ég já. Mér finnst að þær reglur hafi hjálpað okkur við að þroska umræðuna hér á þinginu sem oft og tíðum var mjög tilviljanakennd og horfði ekki til lengri tíma. Þarna erum við a.m.k. komin með einhver sameiginleg viðmið sem við eigum að stefna að og það hefur stýrt umræðunni inn á miklu þroskaðri og betri brautir, finnst mér.

Aðeins um efnisatriði sem helst hafa verið til umræðu. Það kemur ekki á óvart að hér hefur verið talsvert tekist á um það hvort ríkisfjármálin styðji nægjanlega við markmið okkar um að ná verðbólgunni niður. Ég hef í því sambandi m.a. bent á að ég held að aðhaldsstig ríkisfjármálanna hafi mjög verið vanmetið í opinberri umræðu síðastliðna mánuði. Nýlega fengum við álit Alþjóðagjaldeyrissjóðsins t.d. á aðhaldsstiginu í ár og í fyrra og að mati sjóðsins er það mátulegt miðað við aðstæður og kom mér ekki á óvart að fá það formlega mat. Mér fannst sömuleiðis jákvæður tónn heyrast frá Seðlabankanum í vikunni um það hvernig við sjáum fyrir okkur að hlutirnir þróist fram veginn. En í umræðunni sem fór fram hér, t.d. í gær, er stundum í einhverri léttúð talað um að frumjöfnuðurinn skipti ekki miklu máli en ég hef lagt áherslu á það hversu mjög hann hefur lagast, um núna rúmlega 200 milljarða á einungis tveimur árum. Það eru engar smá sviptingar í afkomu ríkissjóðs á frumjöfnuði en frumjöfnuðurinn er forsenda þess að við höfum yfir höfuð bolmagn til þess að greiða af lánum okkar án þess að taka bara hrein ný lán á móti og allt sem gerist eftir að frumjöfnuðurinn er fundinn út eru fyrst og fremst þá fjármálahreyfingar og svo erum við með stórar reiknaðar stærðir. Ég nefni sérstaklega í því sambandi reiknaða vexti af ófjármögnuðum lífeyrisskuldbindingum sem eru ekki fjárhæð sem við þurfum að staðgreiða á því ári sem talan er fundin. Og við erum ekki að taka nein lán til að borga reiknaða vexti af ófjármögnuðum lífeyrisskuldbindingum og við erum að sýna gríðarlega mikið gagnsæi með því að birta þær tölur. Hins vegar munu verðbæturnar á sinn hátt koma til gjalda eftir því sem gjalddagar verðtryggða skulda ríkisins greiðast. Ég vil þess vegna algerlega hafna þessum sjónarmiðum sem hafa heyrst hér í þingsal um að frumjöfnuður sé einhver stærð sem engu skipti. Þetta er bara grundvallarstærð í þróun afkomu ríkissjóðs.

Menn hafa verið að velta því upp hvernig frumjöfnuðurinn hafi þróast í ljósi þess hagvaxtar sem nú mælist og þeirrar verðbólgu sem nú er í landinu og svörin við því eru: Ja, þessi þróun sem ég er hér að rekja er að hluta til vegna umsvifa í hagkerfinu og verðbólgunnar. Þegar við lögðum áætlunina fram greindum við frá því að batinn í frumjöfnuði á árinu 2023, sem sagt á líðandi ári, stefndi í að vera 70 milljarðar og þannig væri árið 2023 ekki í 50 milljarða mínus á frumjöfnuði heldur 20 milljarða í plús og núna er nýtt uppfært mat okkar að það hafi bæst aðrir 20 milljarðar við á yfirstandandi ári sem mun skila sér í a.m.k. 10 milljarða betri frumjöfnuði á næsta ári. Þannig að það er 90 milljarða sveifla sem er að verða á frumjöfnuði á líðandi ári frá því að við afgreiddum fjárlögin, sem er alveg stjarnfræðileg tala í raun og veru, yfir 2% af landsframleiðslu. Það hefði verið ágætt að hafa hana fyrir framan sig þegar menn voru að meta áhrifin af 2. umr. fjárlaga undir lok síðasta sprettsins hérna fyrir jól og hefði kannski aðeins breytt tóninum í umræðunni um það hvaða áhrif þær ákvarðanir sem þar voru teknar myndu hafa á hagkerfið í heild. En þetta er allt að koma í ljós núna og við höfum betri forsendur til að reikna þetta.

Ég tek eftir því að menn telja ýmist að ríkisstjórnin skattleggi landsmenn ekki nægilega mikið, nú eða að ríkisstjórnin drægi ekki nægilega mikið úr útgjöldum. Í því sambandi má alveg hafa í huga að við erum í stórum skrefum að boða verulegan samdrátt í ívilnunum, t.d. vegna ökutækja og eldsneytis, á næsta ári. Þar munar 7,5 milljörðum, bara svo ég taki þá ákvörðun eina sem er stórt skref. Við erum sömuleiðis að boða talsverðar gjaldabreytingar sem munu birtast sérstaklega fyrir ferðaþjónustuna í landinu og þannig eru ráðstafanir til að styrkja tekjuhlið ríkissjóðs upp á um 18 milljarða á næsta ári. Við erum sömuleiðis með 2% aðhald og svo 3% aðhald í Stjórnarráðinu og því til viðbótar erum við núna að útfæra 9 milljarða aðhald sem áður var óútfært fyrir árið 2024. Þeir sem vilja yfirbjóða þetta, þeim er velkomið hérna við lokaafgreiðslu þessa máls að koma með tillögurnar þannig að það standi eitthvað eftir, eftir öll stóru orðin sem hafa fallið hér í umræðunni um að það sé ekkert verið að gera í því að draga úr útgjöldum ríkissjóðs. Í því sambandi myndi ég segja að upphafsverðmiðinn ætti að vera 25 milljarðar. Þeir sem koma með tillögur um að gera eitthvað minna en 25 milljarða eru ekki að leggja neitt markvert til í baráttunni gegn verðbólgu. Þeir sem ekki geta lagt fram tillögur hér á þinginu um að auka aðhaldið og draga úr hallanum sem nemur svona hálfu prósenti af landsframleiðslu eru eiginlega ekki marktækir í umræðunni, eins og Samfylkingin sem telur sig hafa lagt eitthvað til í baráttunni gegn verðbólgu en lagði í raun og veru bara til 4 milljarða betri afkomu sem mælist ekki þegar við erum að reyna að átta okkur á aðhaldsstigi ríkisfjármálanna.

Þetta vildi ég hafa sagt og sömuleiðis á þetta við um þá sem telja að ekki sé nóg gert í skattlagningu. Ég mun virða fyrir mér þær hugmyndir allar sem hljóta að birtast hér við afgreiðslu málsins. Að öðru leyti þakka ég fyrir gott samstarf enn og aftur og mér finnst hafa verið mjög góð umræða. Það er ekki nema von þegar við erum að glíma við verðbólgu og það eru ákveðin átök og kaflaskil að verða í hagkerfinu, gríðarlega mikil fólksfjölgun og fleira, að það sé dálítið tekist á hérna í þinginu (Forseti hringir.) og það finnst mér bara eðlilegt og mér finnst gott að við náum að afgreiða þetta mál hér síðar í dag.