Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

undanþága fyrir landbúnaðarvörur frá Úkraínu.

[13:02]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Við erum núna að fara að henda okkur í atkvæðagreiðslur en á atkvæðagreiðsluskjalinu er hvergi tillaga frá hv. efnahags- og viðskiptanefnd um að framlengja undanþágur á tollum á úkraínskar kjúklingabringur. Ekki bara táknrænn stuðningur heldur mikilvægur stuðningur til þess að halda hjólum atvinnulífsins í Úkraínu gangandi. Þeir sem koma í veg fyrir það að þingið geti tekið afstöðu til þessa máls, því að við vitum afstöðu ráðherra, bæði forsætisráðherra, utanríkisráðherra og fleiri ráðherra að þau vilji sjá þetta inni, þeir sem eru að koma í veg fyrir að við getum greitt atkvæði um þetta eru hv. þingmenn Steinunn Þóra Árnadóttir, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Ágúst Bjarni Garðarsson, Guðrún Hafsteinsdóttir og Teitur Björn Einarsson. Þau koma í veg fyrir að við getum framlengt þessa undanþágu. Þetta er ekki gert í mínu nafni. Þetta er ekki gert nafni í Viðreisnar. Þess vegna finnst mér miður að við skulum fara núna inn í síðasta dag þingsins á þessum vetri án þess að fá þetta tækifæri og láta meiri hluta þingsins tjá raunverulegan vilja sinn. Það er verið að koma í veg fyrir að við getum greitt atkvæði um þetta mál.