Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

undanþága fyrir landbúnaðarvörur frá Úkraínu.

[13:05]
Horfa

Sigmar Guðmundsson (V):

Virðulegi forseti. Hvernig getur það verið lágkúrulegt að nefna nöfn þingmanna sem koma í veg fyrir að mál rati inn í þingsal? Er það lágkúra? Fyrir hvað skammast menn sín þá? Af hverju er það lágkúrulegt að nefna nöfnin á þingmönnunum? Er það eitthvað til að skammast sín fyrir af hv. þingmönnum, að vilja ekki standa áfram með sama hætti að stuðningi við Úkraínu? Það er nefnilega þannig að við Íslendingar höfum alltaf sagt: Við erum vissulega fá en svona táknrænn skilningur skiptir miklu. Já, við erum fá. En í dag erum við smá.