Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

undanþága fyrir landbúnaðarvörur frá Úkraínu.

[13:05]
Horfa

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Þetta snýst líka um pólitíska ábyrgð og við erum hér undir okkar nöfnum líka sem einstaklingar og þá eigum við líka að þora að axla hana. Formaður Vinstri grænna notaði oft ákveðin orð, var náttúrlega kjarnyrtur, og mér koma í hug tvö orð úr hans orðaforða; heigulsháttur og ræfildómur, því að þetta er að mínu mati ekkert annað. Og þegar við hugsum síðan um það að þrýstingurinn kemur helst frá samtökum fyrirtækja í landbúnaði, hvers formaður er heiðursræðismaður Rússa á Íslandi, þá setur það þetta mál í enn verra ljós. Þess vegna er pólitísk ábyrgð hér skýr og hún er öllum ljós.