undanþága fyrir landbúnaðarvörur frá Úkraínu.
Virðulegur forseti. Það væri óskandi að stjórnarliðar töluðu saman vegna þess að í gær var það hæstv. utanríkisráðherra sem færði ábyrgðina á þessu alfarið á þingið, sagði að þetta væri í höndum þingsins og að henni fyndust það vonbrigði að ekki hafi náðst sátt um að halda þessum stuðningi við Úkraínu áfram. Nú kemur hér hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar og segir að þetta hafi verið á forræði ríkisstjórnarinnar og telur upp einhverja ráðherra sem hefði átt að gera eitthvað í þessu. Minn skilningur innan efnahags- og viðskiptanefndar þangað til fyrir mjög stuttu síðan var að það væri verið að vinna í þessu. Þetta heyrðum við endurtekið og vorum í góðri trú um að það væri verið að vinna í þessu innan nefndarinnar og það myndi koma fram frumvarp sem myndi framlengja þennan stuðning. Það er ekkert lágkúrulegt af hv. þm. Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur að benda á að þessi sami meiri hluti og sagði málið vera til vinnslu er síðan búinn að taka ákvörðun um að það eigi ekkert að vinna þetta mál. Og það er bara allt í lagi að upplýsa það. Þannig er það bara. En það væri ágætt ef það næðist einhver sátt um það innan stjórnarheimilisins hvort það var ríkisstjórnin sem átti að gera þetta, efnahags- og viðskiptanefnd, eða er þetta kannski bara allt stjórnarandstöðunni að kenna?