undanþága fyrir landbúnaðarvörur frá Úkraínu.
Virðulegur forseti. Maður er hálfdapur yfir þessu öllu. Hér kom hv. formaður efnahags- og viðskiptanefndar og sagði að málið hefði verið á forræði ríkisstjórnarinnar meðan ríkisstjórnin hefur, eins og hv. þm. Þórhildur Sunna Ævarsdóttir benti á, einmitt bent á meiri hlutann í efnahags- og viðskiptanefnd. Hér hafa verið í gangi einhvers konar pólitískir leikir þar sem stjórnarliðar eru að kasta boltanum á milli sín í flótta undan ábyrgð, að því er virðist til að koma í veg fyrir að það geti farið fram atkvæðagreiðsla í þingsal þar sem þingmenn gefa til kynna með atkvæði sínu hvar þeir standa í þessu máli. Og það sem kannski hryggir mig sérstaklega er að það var ekki einu sinni hægt að ná fram samstöðu um að framlengja bráðabirgðaákvæðið með einhvers konar þaki, einhvers konar fyrirvörum, jafnvel einhvers konar mótvægisaðgerðum eins og sums staðar hefur verið ráðist í. Það var ekki einu sinni hægt að ná fram samstöðu um það heldur var þetta niðurstaða meiri hlutans, að sleppa því bara alfarið að framlengja þennan stuðning sem Úkraínumenn hafa kallað eftir og er mikilvægur táknrænn stuðningur við Úkraínu.