undanþága fyrir landbúnaðarvörur frá Úkraínu.
Virðulegur forseti. Það er einföld skýring til á því hvers vegna það var ekki hægt að afgreiða þetta með einhverjum ákvæðum, jafnvel þannig að okkur gæfist tími til að skoða áhrifin af þessu og þar fram eftir götunum, eins og hv. þm. Jóhann Páll Jóhannsson var að benda á. Sú ástæða er annars vegar fjárhagsleg og hins vegar er það sú staðreynd að það hefur verið þannig um nokkra hríð að við höfum getað séð það svart á hvítu hvað tollar á Íslandi hækka matvöruverð mikið. Þessi áminning um kerfið okkar er það sem svíður mest undan. Það er ástæðan fyrir því að hér er barist með kjafti og klóm gegn því sjálfsagða máli að við höldum áfram þessum stuðningi við Úkraínu. Ég endurtek það sem ég sagði áðan: Við erum fá en í dag erum við smá.