undanþága fyrir landbúnaðarvörur frá Úkraínu.
Virðulegur forseti. Ég óskaði eftir því fyrir nokkru síðan að fá upplýsingar um samskipti ráðuneytisins við nefndina vegna þess að mér hafði borist það til eyrna að þau hefðu verið til staðar í þessu máli en ég fékk ekki þær upplýsingar sem ég bað um af að þær hefðu verið óformlegar með einhverjum hætti. Ég gat ekki annað séð af þeim orðaskiptum sem áttu sér stað en að málið væri í vinnslu og þess vegna beið maður bara rólegur. Það sem virðist hafa gerst er bara að í staðinn fyrir að hafa mál í vinnslu þá er það bara ekki tekið á dagskrá. Mér finnst það í raun og veru ákveðinn heigulsháttur þegar það er stórt og mikið mál sem við erum að fjalla um og varðar stuðning við fólk í miklum erfiðleikum, að við skulum ekki hafa lagt í það að taka afstöðu, af hverju málið var ekki sett á dagskrá og við tækjum afstöðu, já eða nei, heldur er málið bara þagað í hel.