undanþága fyrir landbúnaðarvörur frá Úkraínu.
Virðulegi forseti. Hér voru gerðir þinglokasamningar (Gripið fram í.) í upphafi þessarar viku. Þá var dregin sú lína í sandinn að þau mál sem ekki væru í nefndum myndu lenda þar fyrir utan. Þetta var eitt … (Gripið fram í.) Hér voru gerðir þinglokasamningar. Hér er kallað frammí: Farðu ekki að blanda þessu inn í, en þá ætla ég líka að fá að segja: Hvort ætlum við að ræða hér stuðning við Úkraínu eða tollamál, eins og hv. þm. Sigmar Guðmundsson kýs að beina athyglinni að, að þetta mál snúist eingöngu um að lækka tolla, eða er þetta stuðningur við fólk í neyð? Ég bendi á það að ríkisstjórn Íslendinga hefur veitt margvíslegan og góðan stuðning við Úkraínumenn og fólk í neyð. Ég ætla að endurtaka þau orð mín sem ég sagði hér í ræðupúlti á Alþingi Íslendinga í síðustu viku: Það getur ekki hafa verið vilji Alþingis Íslendinga (Forseti hringir.) þegar þetta var samþykkt á síðasta ári að þetta hefði afdrifaríkar afleiðingar á rekstrarafkomu bænda á Íslandi.