Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

undanþága fyrir landbúnaðarvörur frá Úkraínu.

[13:13]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V):

Virðulegi forseti. Það er sérstakt að hlusta á hv. þingmann nefna það að Sigmar Guðmundsson skuli nefna hér tolla á sama tíma og hún talar um bændur. Maður spyr sig: Hver er hin raunverulega afstaða í þessu máli? Hvers vegna er verið að þaga málið í hel? (Gripið fram í.) Talandi um að gera þinglokasamninga þá er það þannig að það var verið að tína út mál sem ríkisstjórnin vildi ekki fá í gegn. Þau voru bara sett út af dagskrá. Þetta mál var ekki komið í vinnslu og þess vegna gátum við ekki verið að fella það niður. Ég var algjörlega grunlaus í nefndinni um að það ætti bara að þaga þetta mál í hel, sem er búið að gera. Það er búið að þaga stuðning við Úkraínu í hel inni í efnahags- og viðskiptanefnd.