153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

undanþága fyrir landbúnaðarvörur frá Úkraínu.

[13:14]
Horfa

Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir (V):

Virðulegi forseti. Mér finnst segja allt sem segja þarf um þetta mál og þessa stefnu og þá pólitík sem formaður efnahags- og viðskiptanefndar speglar hér, að hún líti á það sem lágkúru þegar nafn hennar er tengt við þá pólitík sem hún er að spegla hér í dag. Hvers vegna hennar pólitík þolir það ekki að við getum tengt nafnið við þær tillögur sem hún er að leggja hér á borð. Það var morgunljóst í huga allra þingmanna, þingsins alls, að þessi aðgerð snýst um stuðning við Úkraínu og formaður efnahags- og viðskiptanefndar treysti sér ekki lengur til að lýsa þeim stuðningi yfir.