Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

undanþága fyrir landbúnaðarvörur frá Úkraínu.

[13:15]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P):

Virðulegur forseti. Ég nefndi hérna áðan þennan skollaleik sem er í gangi; ríkisstjórnin bendir á þingið, þingið bendir á ríkisstjórnina, þ.e. meiri hlutinn, og ætli þetta endi ekki á því að vera bara stjórnarandstöðunni að kenna? Einhvern veginn þannig er upptakturinn að síðari ræðu hv. þm. Guðrúnar Hafsteinsdóttur; það voru gerðir hér þinglokasamningar og það komi í veg fyrir þetta, þrátt fyrir að undirtónninn sem við heyrum hér sé að það er ekki vilji til að halda þessu áfram. Þess vegna var þetta stoppað, ekki út af einhverjum þinglokasamningum, vegna þess að þetta var ekki rætt í þinglokasamningum. Þetta kom hvergi fram í þeim samningum, þetta kom ekki til tals. Það var ekkert látið á það reyna hvort það væri hægt að klára þetta mál undir þeim pakka, þannig að það er ekki hægt að klína því á okkur í stjórnarandstöðunni að ekki hafi tekist að klára þetta mál. Það verður að segjast að fulltrúar minni hlutans, og sér í lagi hv. þm. Guðbrandur Einarsson, hafa verið mjög dugleg við að halda nefndinni við efnið og reynt að koma þessu máli áfram og á dagskrá nefndarinnar, þannig að ég afþakka pent þennan skollaleik.