undanþága fyrir landbúnaðarvörur frá Úkraínu.
Herra forseti. Hv. þm. Guðrún Hafsteinsdóttir spurði hér hvort Viðreisn styddi bændur. Snýst þetta um það í huga þingmannsins, þ.e. ef veitt er áframhaldandi ívilnun fyrir Úkraínu og innflutning á kjöti með því að gefa eftir tolla á þessa einu afurð, kjúklingakjöt, þá sé maður á móti bændum á Íslandi? Styðja þá ráðherrarnir, hæstv. umhverfisráðherra, Guðlaugur Þór Þórðarson, og hæstv. utanríkisráðherra, Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir, sem sendi ákall til samflokkssystur sinnar í gær um að klára málið og til Alþingis alls, styðja þau þá ekki bændur á Íslandi? Er það þannig? Hér erum við að tala um pínulitla aðgerð til þess að styðja við sjálfsbjargarviðleitni þjóðar í landi sem hefur verið ráðist inn í. (Forseti hringir.) Ég verð að segja að ég er ekki stolt af því hvernig formaður efnahags- og viðskiptanefndar hefur ákveðið að leyfa nefndinni ekki að taka afstöðu til þessa máls. (Forseti hringir.) Mér finnst það snautlegt.