undanþága fyrir landbúnaðarvörur frá Úkraínu.
Herra forseti. Hv. þm. Helga Vala Helgadóttir tók nú eiginlega af mér ómakið við að svara þessu sérkennilega kalli formanns efnahags- og viðskiptanefndar. Ég tek heils hugar undir þau orð og þær spurningar sem hún varpar fram. En mig langar kannski að bæta við, bara til að árétta, að í fyrsta lagi snýst þetta um örlítinn hlut af þeirri framleiðslu en snýst líka um risastórt mál, gildi íslenskrar þjóðar þegar kemur að stuðningi við þjóð í vanda. Styður Viðreisn bændur? Viðreisn styður bændur og hefur lagt fram tillögur sem miða að því að styðja bændur töluvert betur en það úrelta kerfi sem flokkur hv. þingmanns og formanns efnahags- og viðskiptanefndar stendur vörð um. Mig langar líka í því samhengi að benda á, af því að hér er verið að reyna að búa til skautun á milli hjálpar við Úkraínu og varðstöðu um bændur af hv. þingmanni, að það er áhugavert að því fékkst ekki svarað í nefndinni hvert raunverulegt eignarhald þeirra kjúklingaframleiðenda er sem verið er að vernda. Eru það litlu bændurnir?