Bráðabirgðaútgáfa.
153. löggjafarþing — 122. fundur, 9. júní 2023.
undanþága fyrir landbúnaðarvörur frá Úkraínu.
Virðulegi forseti. Það er sorglegt að það skuli kristallast í máli tengdu Úkraínu hversu stór ítök örfáir, litlir hagsmunaaðilar hafa í stjórnmálafólki á Íslandi. Við þurfum öll að líta í eigin barm og spyrja okkur hvort það hvernig hagsmunaaðilarnir geta bara ýtt á takka og fengið hlutunum breytt sé eitthvað sem eigi að vera við hæfi á elsta þjóðþingi heims.