fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Forseti. Róðurinn er að þyngjast fyrir fjölda fólks í samfélaginu. Um helmingur launafólks á erfitt með að ná endum saman og lifir því við ákveðinn afkomuótta. Þá hjálpar engum að tala um hversu gott fólk hefur það að meðaltali. Það er fólk á Íslandi sem býr við fátækt, það fólk á börn sem alast upp við fátækt, börn sem lifa við skerta heilsu og skert tækifæri. Á sama tíma er methagnaður hjá fjármagnseigendum, geðheilbrigðisvandi vex, vímuefnavandi vex, ofbeldi eykst, heilbrigðiskerfið annar ekki eftirspurn, fólk deyr á löngum biðlistum og heilbrigðisstarfsfólk brennur út. Lausnin er ekki að vopnavæða lögregluna. Guð minn góður, það er galið, algerlega galið. Lausnin er að setja fjármagn í að styðja við fólk og setja fjármagn í lífsnauðsynlegar stofnanir. Við þurfum að uppræta fátækt og við þurfum að uppræta neyð. (Forseti hringir.) Þessi fjármálaáætlun er ekki að gera það. Hún er ekki að taka á þessum gríðarlega vanda sem við stöndum frammi fyrir og það er ótrúlega skammsýnt af ríkisstjórninni.