Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[13:22]
Horfa

Bjarkey Gunnarsdóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Hæstv. forseti. Eins og gefur að skilja er staða efnahagsmála okkur öllum hugleikin nú um stundir. Há verðbólga og vextir haldast í hendur við síbreytilegt ástandi í heimsmálunum sem á áhrif hér á landi eins og annars staðar. Stjórnvöld hafa nú þegar gripið til aðgerða til að takast á við verðbólguna með markvissum aðgerðum í þágu lágtekjufólks, einstæðra foreldra og barnafjölskyldna. Bætur almannatrygginga og frítekjumark atvinnutekna örorku- og endurhæfingarlífeyrisþega hafa hækkað sem og barnabætur og eignamörkin í vaxtabótakerfinu. Afkoma ríkisins er um 90 milljörðum betri en við gerðum ráð fyrir fyrir aðeins sex mánuðum og ættu allir að gleðjast yfir því. Í fjármálaáætlun er verið að leggja til 18 milljarða í tekjuöflun og annað eins í aðhald. Það er verið að flýta fjármálareglum fram um ár sem er eitt af því sem bæði fjármálaráð og AGS töldu mikilvægt. Framlög til húsnæðismála eru tvöfölduð. Að auki er unnið að lagabreytingum sem munu bæta réttarstöðu leigjenda. Við fylgjumst að sjálfsögðu grannt með þróun mála og ef grípa þarf til viðbótaraðgerða vegna verðbólgunnar þá munum við nálgast það eins og við höfum nálgast aðrar áskoranir undanfarin ár.