fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.
Virðulegi forseti. Þingflokkur Viðreisnar styður ekki þessa fjármálaáætlun og mun greiða atkvæði gegn henni. Í lok umræðunnar um þetta mál, þegar maður horfir á stóru myndina og breiðu strokurnar í umræðunni, þá er staðan þessi: Fyrirtækin og heimilin í landinu finna fyrir mikilli verðbólgu. Heimilin finna fyrir þungum og síendurteknum vaxtahækkunum. Hér var lögð fram fjármálaáætlun í vor. Það dúndruðust inn neikvæðar umsagnir allra sem komu fyrir nefndina, hvort sem það var ASÍ, Samtök atvinnulífsins, Viðskiptaráð eða BHM — allir þessir aðilar ganga hönd í hönd og segja að þessi fjármálaáætlun geymi ekki þau svör sem heimilin eða fyrirtækin í landinu þurfa. Við styðjum ekki þessa fjármálaáætlun og ég verð að segja að þetta eru furðuleg þinglok, að koma með fjármálaáætlunina algerlega óbreytta hingað inn í þingsal núna eftir þá þungu ágjöf sem verið hefur á málið og slátra í leiðinni öllum stjórnarfrumvörpum. Hvað er eiginlega að á stjórnarheimilinu?