Bráðabirgðaútgáfa.

153. löggjafarþing — 122. fundur,  9. júní 2023.

fjármálaáætlun fyrir árin 2024--2028.

894. mál
[13:26]
Horfa

Gísli Rafn Ólafsson (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við þingflokkur Pírata styðjum ekki þessa fjármálaáætlun. Ástæðan er mjög einföld: Hún er algerlega óraunhæf. Í henni eru ekki aðgerðir til að takast á við verðbólguna. Í henni er ekki fjármagn til þess að standa við þegar samþykktar aðgerðaáætlanir. Með öðrum orðum, þetta er ágætisskáldsaga en ekki eitthvað sem við ættum að vera leggja sem grundvöll að okkar fjármálum.