fjármálaáætlun fyrir árin 2024–2028.
Herra forseti. Ég tek hér við boltanum. Við greiðum hér atkvæði um fjármálaáætlun til næstu fimm ára. Þrátt fyrir að við séum flest sammála í breiðu línunni um stöðu hagkerfisins og verkefnis sem er fram undan; að endurheimta verðstöðugleika og ná niður verðbólgu og vaxtastigi, þá greinir okkur á um leiðir. Ríkisstjórnin boðar aðhalds- og tekjuöflunaraðgerðir en mætir nýjum útgjaldahugmyndum stjórnarandstöðunnar. Það er nauðsynlegt að kæla hagkerfið, það er öllum ljóst. Það er eina meðalið sem virkar. Þessi fjármálaáætlun er lyfseðillinn gegn verðbólgunni í hagkerfinu en svo getur okkur greint á um hversu sterkur skammturinn eigi að vera. Ég legg áherslu á að almenna aðhaldskrafan er lágmark en ekki hámark. Við höfum tækifæri í haust til að gera enn betur í nýjum fjárlögum. Það er mikill þróttur í atvinnulífinu og hagvöxtur hér á landi sem er ólíkt því sem margir í nágrannalöndum okkar í Evrópu þurfa að venjast nú um þessar mundir. Það gerir okkur kleift að auka aðhaldsstig ríkisfjármálanna (Forseti hringir.) en um leið standa vörð um mikilvæga grunnþjónustu og tekjulægri hópa.